Reginn - 19.04.1942, Blaðsíða 4
NÝJA-BÍO
Sýnir sunnud. 19. apríl kl. 6:
Stúlkan frá Mexikó
Kl. 9:
Þrír synir.
Vil kauþa
notaða sjónauka.
Pétur Björnsson.
ágæta íslenzkumann, lektor Björn
Guðfinnsson.ogvillhann að verið sé
fast á verði gegn hverskyns mál-
skemmdum. Hefur hann og sýnt
frábæran áhuga um þessi efni,
bæði með kennslubókum sinum og
kennslustörfum, við útvarp og
skóla.
Þakka eg nefndum mönnum alla
vinsemd í minn garð. Studdur
ummælum þeirra, eru það vin-
samleg tilmæli mín til útvarpsins,
allra kennara, rithöfunda og ann-
arra áhrifamanna, að þeir taki nú
þegar upp baráttu gegn umræddri
málfarsbreytingu: þáguíallssýk-
inni.
Nýtt bindindisfélag.
Bindindisfélag var stofnað í
Akrahreppi í Skagafirði snemma á
þessum vetri fyrir forgöngu frú
Ingibjargar Stefánsdóttur á Vöglum
og Bjarna Halldórssonar bónda á
Uppsölum. Stofnendur voru um
30. flestir ungt fólk. Stjórn félags-
ins skipa: Halldór Bjarnason, Upp-
sölum, formaður, Jórunn Sigurðar-
dóttir, Hjaltastöðum, féhirðir og
Ragnar Fjalar, Miklabæ, ritari.
Meðstjórnendur: Ingibjörg Stefáns-
dóttir, Vöglum og Sigurður Einars-
son bóndi, Hjaltastöðum.
Það er gleðilegt framtak af unga
fólkinu i Akrahreppi að mynda
þessi samtök til að spyrna við
fótum gegn þeirri eiturnautna-
REGINN
Auglýsing
Samkvæmt heimild i 5. gr. bráðabirgðalaga nr. 1, 8. jan. 1942
er hér með bannað að leggja meir á eftirtaldar vörur í heildsölu og
smásölu en gert var í árslok 1941:
Vefnaöarvörur og fatnaöur, hvers konar sem er-
Skófatnaður, hvers konar sem er.
Samkvæmt tilvitnaðri lagagrein er gerðardóm í kaupgjalds- og
verðlagsmálum þó heimilt að fengnum tillögum verðlagsnefndar
að úrskurða um breytingar á álagningunni og ákveða hana að nýju.
Viðskiptamálaráðuneytið, 19. marz 1942.
Eysteinn Jönsson.
Torfi Jóhannsson.
frá Viðskiptamálaráðuneytinu.
Gerðardómur í kaupgjalds- og verðlagsmálum hefir, að fengnum til-
lögum verðlagsnefndar, ákveðið hámarksverð á kaffi svo sem hér segir:
Heildsala. smásala
Kaffi óbrennt...................... 3.05 3.80
Kaffi brennt og malað .... 4.80 6.00
Verðlagsnefnd hefir ákveðið samkvæmt heimild í lögum nr. 118, 2
júlí 1940, að álagning á kaffi megi þó aldrei vera hærri en hér segir.
I heildsölu 6|- af hundraði
í smásölu 25 af hundraði.
Þetta birtist hér með öllum þeim er hlut eiga að máli.
Viðskiptamálaráðuneytið, 2. marz 1942.
plágu, sem fer nú umheiminn eins
og drepsótt. Það er vonandi, að
þessum fámenna félagsskap takist
landvarnirnar vel í sinni fögru og
blómlegu sveit.
H. J. M.
Br. Aðalsteinn Kristjánsson,
tollþjónn, Iézt hér á Sjúkra-
húsinu 16. þ. m.
Barnastúkan Eyrarrós
no. 68, sér um skemmtikvöld á
Sjómannaheimilinu 19. apríl.
Barnasýning kl. 4.
Alménn sýning kl. 8£.
Ágæt skemmtiatriði.
Útbreiðið »Reginn«.