Reginn - 04.02.1950, Page 4

Reginn - 04.02.1950, Page 4
REGINN 4 ÆSKAN OG ÁFENGIÐ RADDÍR ÆSKUNNAR Eftirfarandi kaflar eru úr stílum nemenda Gagn- fræðaskóla Siglufjarðar. — Stílinn voru nemend- urnir látnir gera um áfengismál „Aldrei verður góð vlísa of oft kveðin,“ segir mál- tækið. Aldrei verður nógsamlega brýnt fyrir æskunni hversu áhrif áfengisnautnarinnar eru geigvænleg á líkama og sál æskumannsins. Nú eru erfiðir t'ímar framundan fyrir Islendinga og því enn ríkari ástæða fyrir okkur en nokkru sinni fyrr að sýna manndóm og þjóðfélagslegan þroska. Nú reynir á hvernig við höfum varið góðærisárunum okkar.. Jú, við höfum byggt mikið ,og skyldi sízt lasta það. Við gumum af því, að Islendingar séu í tölu mestu bókmenntaþjóða heims og að þjóðin sé fádæma vel menntuð. Og ekki er sparað, hvorki í blöðum né tímaritum, að marg- faida hæfileika og getu. Má vera að þetta sé nauðsyn- legt. Vissuelga hefur þjóðin lyft miklu Grettistaki á mjög skömmum t'ima og er ekki að furða, þótt eitt- hvað sé ekki eins og það á að vera í þessum mikla hraða, sem einkennt hefur allt hér á 20. öldinni. — En það sem aflaga fór, mátti sízt koma niður á æsk- unni (eins og það, því miður gerði, að nokkru leyti), ungmennunum, sem erfa skyldu landið og stýra milli skers og þáru í erfiðleikum þeim, er framundan kynnu að vera. Eldri kynslóðin gaf slæmt fordæmi í mörg- um tilfellum, eyddi og sóaði peningum á báða bóga og að sjálfsögðu jókst áfengisneyzla til mikilla muna. Þeir sem eldri voru, urðu steinhissa þegar sumt æsku fólk fór að feta í fótspor þeirra og leið ekki á löngu, áður en óskapazt var út af spillingu æskufólksins. — „Af því lærir barnið málið, að það sé fyrir því haft.“ Það er því ekki eingöngu hægt að skella allri skuld- inni á æskuna, — þeir eldri gengu á undan og gáfu fordæmið. Hjá okkur var tími viðreisnar og framfara, meðan flestar þjóðir heims háðu blóðugar styrjaldir. Pen- ingarnir, sem gerðu okkur kleyft að hefja þessar miklu framfarir, voru því blóðpeningar frá þjóðum í flakandi ófriðarsárum. Enn berast okkur þannig peningar, á þeim auðgumst við ekki. Blóðpeningar er vér nú fáum eru látnir af hendi af mönnum, sem áfengið er að mergsjúga. Æskan segir hingað og ekki lengra. Það má ekki, og verður ekki þannig, að sjálfstæðið, sem Islendingar hafa barizt fyrir öldum saman, glatist vegna dáðleysis þegnanna, sem stafar að miklu leyti af hóflausri áfengisneyzlu. Enn er meiri hluti æskunnar þjóð sinni til sóma, sameinumst nú öll um að hrinda af okkur slyðruorðinu. Hrekjum burt vald Bakkusar og munum að „sameinaðir stönd- um vér, en sundraðir föilum vér.“ Eitt mesta bölið fyrir íslenzku þjóðina er áfengis- neyzlan, er náð hefir alltof föstum tökum á svo mörg- nm þjóðfélagsiþegnum. Islendingar verða að smjúga úr þessum glímutökumvjnguðsins, Bakkusar, ogleggja hann að velli. Til þess að þetta sé hægt, þurfa ungl- ingamir að taka höndum saman og vinna gegn áfeng- inu. Mörg bindindisfélög eru starfandi hér á landi til þess að sporna við neyzlu áfengra drykkja. En það eru alltof margir imglingar og einnig fullorðnir, sem virða þennan félagsskap að vettugi og starfssvið hans. Það ber ekki ósjaldan fyrir augu, að sjá ungl- inga ölvaða. Eru þessir unglingar að leita gleðinnar með neyzlu áfengis, eða halda þeir, að þeir séu meiri menn, af þvá að þeir hafa gerzt svo djarfir „að smakka það ?“ En þá skjátlast þeim hrapalega. Hver æskumaður ætti að geta leitað gleðinnar á annan hátt. Það er áreiðanlegt, að þeir eru ekki meiri menn en þeir sem hafa strengt þess heit að bragða aldrei áfengi. Því hversu miklu tapar hver og einn af hæfi- leikum s'inum til ýmislegra starfa með neyzlu áfengis. Það hlýtur að vera mikið. Margir fullorðnir fara svo gáleysislega með áfengið, að þeir bjóða jafnvel unglingum 1 staupinu. Þá reynir á, hvort unglingurinn stenzt freistinguna eða ekki. En mundu það að drekka aldrei fyrsta staupið, og iþú munt ei yðrast þess. En ef unglingurinn hefði fallið fyrir freistingunni, og það hefði haft í för með sér, að hann hefði orðið ofdrykkjumaður. Hverjum væri þá um að kenna? Áreiðanlega þeim fullorðna, sem freistaði hins lítt þroskaða unglings. „Af því læra börnin, að fyrir þeim er haft.“ En fyrst við sjáum, að kynslóð sú, sem eldri okkur er, og ætti að benda okkur á betri leiðir til þroska og farsældar, hampar sífellt áfengisagninu og ærir burt sjálfstæðið frá ungu fólki með því, þá eru það við, sem nú erum að komastá þroskaár, sem eigum að standa fastar í móti áfengisbölinu, svo að næsta kynslóð verði ekki undir sömu syndina seld. En hvernig á að losna við áfengisbölvunina, spyrja margir. Sumir vilja minnka hina sterku drykki en auka neyzlu daufari drykkja, svo sem öls. Aðrir vilja algert bann. Það, sem ég álít heppilegast, er það, að æskan vinni kappsamlega á móti neyzlu allra áfengra drykkja. — Og svo óska ég þess, að íslenzkt æskufólk beri gæfu til þess að hrynda af sér þeirri ánauð, sem áfengis- bölið hefur í för með sér, og strengja þess heit að bragða aldrei áfengi. „Sem l'ífsins sterki hrausti her, skal heilög æskan fylkja sér.“ F. S. ★ Frá ómunatíð hefur áfengi verið notað til nautna. Neyzla þess er orðin rótgróin hefð. Menn alast upp með það í kring um sig, og flestir kynnast þvl að eigin raun. Drykkjuskapur er löstur, sem allir þurfa að forðast. Allir æskumenn vilja vera hraustir á sál og líkama, en það geta þeir ekki, ef þeir neyta áfengis, því eins og allir vita, hefir áfengið skaðleg á'hrif á líkama og sál. Hvernig á unglingur að stunda íþróttir, ef hann neytir áfengis, þar sem það veiklar (Framhald á 8. síðu) (

x

Reginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.