Reginn - 04.02.1950, Page 5
5
REGIhiSi
Skólaæskan og 1. febrúar
★ I flestum Iskólum er 1. febrúar sérstaklega helgaður bindindismálum. í Gragnfræðaskóla Sigluf jarðar
er nokkrum hluta ikennslustunda þann dag varið til fræðslu um bindindismál. tAð þessu sinni heimsóttu
skólann nokkrir meðlimir Kotaryklúbhs Sigluf jarðar og flutti Andrés |Hafliðason, kaupm., þar erindi um
hindindismál. Þrír nemendur skólans fluttu ávörp og skólastjórinn, Jóhann Jóhannsson, þakkaði heim-
sóknina |og hvatti nemendur til bindindisstarfsemi. — Fara hér á eftir ávörp tveggja nemendanna, er þeir
fluttu ivið þetta tækifæri. i
Kæru skólasystkini, kennarar og Rotary-meðlimir!
Þegar Jóhann skólastjóri fól mér að segja hérna
nokkur orð, vissi ég eiginlega ekki, hvað ég ætti að
gera. Að tala um bindindism'ál almennt er að VÍsu
ekki erfitt, en það vill verða það sama upp aftur og
aftur. Það er að vísu satt, að góð vtísa verður aldrei
of oft kveðin, þess vegna ætla ég nú að tala hérna
ofurlítið um neyzlu áfengis í skemmtanalifinu. Mörg-
um finnst þeir vera jafn góðir, þó þeir drekki lítils-
háttar við hátíðleg tækifæri, t.d. í veizlum eða á dans-
leikjum til að verða samkvæmishæfari. Takið eftir:
til að verða samkvæmisíhæfari. Þessum mönnum er
undarlega farið að geta ekki glaðzt í góðum hóp,
þótt þeir séu með réttu ráði.
Þvi miður er ölvun algeng hér í Siglufirði á dans-
samkomum og skemmtistöðum. Og það er þvíí miður
algengt að sjá ungt fólk undir áhrifum áfengis. Þetta
fólk eyðileggur ekki aðeins sjálft sig, heldur hefir
það einnig áhrif á aðra. Mér er óhætt að fullyrða, að
margt fólk hefir sömu skoðanir á þessu og ég, þ.e.a.s.
það nýtur ekki skemmtana, þar sem mikið er um
neyzlu áfengis. Hvernig í ósköpunum er hægt að
skemmta sér með ölvuðu fólki, þegar maður
sjálfur er með réttu ráði. Það á ekki
saman, drukknir menn, sem röfla og geta ekki
staðið á fótunum og hafa oft ólæti í frammi, og fólk.
sem ekki er undir áhrifum áfengis, en er kátt og
f jörugt og skemmtir sér á heilbrigðan hátt. Eg þekki
meðal annars stúlku, sem lét sér fara þau orð um
munn, að hún gæti ekki hugsað sér að fara á dans-
leik, nema neyta áfengis. Hugsið ykkur þessa aum-
ingja stúlku, aðeins 19 ára, orðna forfallna drykkju-
manneskju.
Það mætti nú liíka minnast á hve það er, því miður,
algengt að sjá fulla menn, jafnvel útúrfulla, hanga
og rlífast eða slást í göngum á skemmtisamkomum
hér í Siglufirði. Þetta ætti ekki að sjást, og er til
stórrar skammar fyrir þá, sem að skemmtuninni
standa. Á Akureyri t.d. þekkist þetta ekki. Ef drukkn
ir menn koma inn á skemmtisamkomu, og ekki er
hægt að fá þá út með góðu, er hringt á lögregluna,
sem tekur manninn úr umferð. Eins gæti þetta verið
hérna, ef eitthvað væri hugsað um þetta.
Eg hefi nú litillega drepið á neyzlu áfengis á
skemmtistöðum. En það mætti kannske minnast á
heimilisfeður, sem eyða öllu því, er þeir vinna fyrir
í áfengi, meðan konur þeirra og börn hafa ekki fyrir
daglegum nauðsynjum, eða jafnvel svelta. Eg þekki
heimili, þar sem konan vinnur og þrælar baki brotnu
fyrir brýnustu þörfum heimilisins og barnanna. Nú
mundi kannske einhver góðhjartaður spyrja: Aum-
ingja konan, er hún ekkja? Nei, ekki alveg. Maður
hennar býr við ágæta heilsu, vinnur líítið sem ekkert
og er forfallinn drykkjumaður. Börn, sem alast upp
á slíkum heimilum, vitum við, að eiga hræðilega æfi.
Faðirinn sídrukkinn, ef til vill oft vondur við konu
og börn. Þið hugsið nú ef til vill sem svo: Hvað getum
við að þessu gert? — Við getum að vísu ekki gert að
þessu, en við getum bætt úr þessu voðalega ástandi
í þindindismálum okkar Islendinga sáðustu árin. Við
eigum að bæta úr þessu með því að ganga í bindindis-
félög, hlusta á bindindismenn tala og taka þátt í þvlí
af lífi og sál, að áfengi verði gert landrækt.
Æskufóik! Vinnið af alefli að útrýmingu áfengis,
og athugum afstöðu okkar til nautnalyf ja, sem aðeins
eru til smánar og niðurlægingar. Verum þjóð okikar
til sóma og sýnum, að við erum einhuga og sterk.
Takið aldrei fyrsta staupið.
Halldóra Jónsdóttir
Góðu skólasystkini, kennarar og gestir!
Hvaða gagn höfum við af því að vera bindindis-
menn? Þessi spurning er í of víðtækri merkingu, til
þess að ég geti svarað henni, nema á mjög ófullkomin
hátt, þvií að mig skortir þekkingu til þess. Læknar
og v'isindamenn eiga að geta svarað henni fullkom-
lega að mánum dómi.
Með því að vera bindindismenn, styrkjum við bæði
siðferðilegt og andlegt þrek okkar. Við ættum að
mörgu leyti að vera hæfari og dugmeiri til hverskonar
starfa, þegar við neytum engra eiturlyfja, er sljófga
okkur og veikja líkams- og sálarþrek okkar. En ein-
mitt það gera þeir menn, er neyta þeirra eiturlyfja,
er tóbak og áfengi eru. Ef við erum bindindismenn,
þá hljótum við að vera betri þjóðfélagsborgarar en
þeir, er neyta áfengis og tóbaks. Hugur okkar er
næmari og starfskraftar sterkari og betri, ef við
erum bindindismenn. Þeir, sem opihberum störfum
gegna og eins þeir, er vinna fyrir sig sjálfa, hljóta
(Framhald á 7. síðu)