Reginn - 04.02.1950, Qupperneq 8
REGINN
8
KADDIK ÆSKUNNAR
(Framhald af 4. síðu)
hann andlega og l'ikamlega og lamar mótstöðuafl
hans. Sá maður, sem drekkur getur tæplega skarað
fram úr á nokkru sviði. Hann verður aldrei nema
meðal maður. Það er ósamboðið siðmenntuðu þjóð-
félagi, að æskan neyti áfengis. Það á því að vera
áhugamál allra, að útrýma því böli, sem af því leiðir
fyrir mannfélagið, og bezta ráðið til þess er að bragða
það aldrei. Það hugsa ekki allir um það, hvað af bví
getur hlotnazt. Það eru ekki allir, sem geta haft
áfengi um hönd í hófi, og allra sízt unglingarnir. Það
eru ekki fáir æskumenn, sem hafa leiðzt út í allskonar
óknytti, einmitt af því, að þeir fóru að drekka v'in.
Eru til meiri aumingjar en þeir menn, sem verður
að taka dauðadrukkna á almannafæri?
Áfengið*er einn skæðasti óvinum mannsins. Vínið
hefur orðið mörgu efnilegu ungmenni að fótakeíli og
mætti sanna það með mörgum dæmum, að Bakkus
hefur mörgum á kné komið. Heyrt hef ég t.d. sögu
af ungum pilti, sem var búinn að missa föður sinn,
en átti góða móður, og var hann hennar eftirlæti og
augasteinn .Hún hafði næg efni til að koma honum
til mennta, og gerði það láka. Allt gekk vel í fyrstu.
Hann stóð sig ágætlega 'i skólanum, ogvar heima á
sumrin. Eitt haustið, þegar hann fór í skólann, fylgdi
móðir hans honum á leið, og lagði honum sérstak-
lega í þetta skipti ýmis góð heilræði, og að skilnaði
gaf hún honum vasaúr föður hans, og bað hann að
muna sig um það að farga því aldrei. En einmitt
þennan sama vetur kemst hann í vondan félagsskap,
og leggst i mestu óreglu, fer að slá slöku við námið,
og sóar miklum peningum, sem hann hafði fengið frá
móður sinni. Henni til mikilla sorgar fréttir hún,
hvernig komið er fyrir syni gínum og seint um vetur-
inn veikist hún og deyr. Honum varð mjög hverft
við fregnina, en alltaf héit hann uppteknum hætti að
drekka, og alltaf fór verr og verr fyrir honum. Svo
var hann búinn að sóa öllum eignum sínum, og ekki
gat hann borgað húsaleiguna. Að síðustu seldi hann
úrið, hafði engin önnur ráð. Nú stóð hann févana og
vinalaus uppi. Nú er aðfangadagskvöld. Honum líður
illa, þar sem hann situr einn uppi á herbergi s’inu.
Upp úr þessum dapurlegu hugleiðingum ráfar hann
út á götuna, og sér hann þá, hvað allt er jólaJlegt, og
voru kirkjuklukkurnar byrjaðar að hringja. Hann
gengur eins og leiðslu inni í kirkjuna, og sezt inn í
fremsta bekk, og hlustar með athygli á ræðu prests-
ins. Síðan reikar hann út úr kirkjunni ov aftur heim í
heribergi sitt, en iþá er eins og hann vakni og fer nú
að gera upp reikninginn við sjálfan sig. En sárast
þykir honum að hafa brugðizt ráðleggingum móður
sinnar og loforðinu um úrið. Hann heitstrengir þó, að
breyta um og ná úrinu aftur. Það efndi hann og gekk
nú í algjört bindindi. Þau eru mörg, mörg þessi sorg-
legu dæmi um það, hvernig vínið afvegaleiðir mörg
ungmennin, og því miður eru ekki allir, sem ná sér
aftur eins vel og þessi piltur. Það væri hægt að skrifa
um þetta langt mál, en ég læt þetta nægja.
Jóna Jakobína (Þorgeirsdóttir
Straumhvörf í rétta átt
Áfengissalan í Siglufirði minkar
um 932 þúsund krónur á einu ári.
var árið 1948 3 miljónir 410 þúsund
en 1949 2 miljónir 478 þúsund
Það mun rétt vera að flestum hugsandi
mönnum hafi ofboðið upphæðir þær er íslenza
þóðin eyddi í áfengi á árinu 148, en það voru
röskar 63 miljónir króna eða 475 krónur á hvert
einasta maniisbarn á öllu Iandinu þar með talið
barnið d vöggunni og gamalmennið í rúminu. Af
þeirri upphæð var Sigluf jörður einn með 3 milj.
410 þúsund krónur. Nú hefur þessi upphæð lækk
að niður í 2 miljónir 478 þúsund krónur á árinu
1949. Eru það sannarlega góð tíðindi og straum-
hvörf í rétta átt.
Um ástæðurnar fyrir þessari breytingu skal
ekki f jölyrt hér. Þær kunna að vera margar, er
vonadi að þessi straumhvörf haldi áfram á þessu
ári.
Bæjarstjórnarkosningar 1950
Sunnudaginn 29 jan. fóru fram bæjarstjórnarkosn-
ingar í 13 kaupstöðum auk þess var kosið ;í 34 kaup-
túnum. Kjósendur í þessum 47 sveitarfé-lögum voru
um 61 þúsund.
Tala framjóðanda var:
I kaupstöðum 850
I kauptúnum 760
Samtals 1610
Tala bæjarfulltrúa og hreppsnefndarmanna, sem
kjósa átti er:
I kaupstöðum 117
I kauptúnum 158
Samtals 275
I Siglufirði urðu úrslit kosninganna þessi:
A-listi (Alþ.fl.)
B-listi (Frams.fl.)
C-listi (Sósíal.fl.)
D-listi (Sjálfst.fl.)
440 atkv.
212 —
519 —
349 —
3 menn kjörna.
1 — —
3 — —
2 — —
Er það sama fulltrúatala hjá hverjum flokk og
þeir höfðu síðasta kjört'imabil.