Reginn - 12.12.1978, Síða 8

Reginn - 12.12.1978, Síða 8
8 R E G I N N Þriðjudagurmn 12. des. 1978 Hátíðafundur á Akureyri Umdæmisstúkan nr. 5 hafði hátíðlegan fund í félagsheimili templaga á Akureyri 16. nóv- ember. Þar var. minnst þess að 80 ár eru liðin frá stofnun umdæmisstúkunnar og fimm- tíu ár frá stofnun þingstúku Eyjafjarðar. Eiríku Sigurðsson fyrrver- andi skólastjóri flutti sögulegt yfirlit um þessi samtök stúkn- anna nyrðra. Starf umdæmisstúkunnar féll niður um skeið 1903 og aftur 1915, en síðan 1923 hef- ur hún starfað óslitið. Fyrsti umdæmistemplar var sr. Arni Björnsson á Sauðárkróki. Fyrsti Þingtemplar var Árni Jóhannsson gjaldkeri. Aðkomumenn á þessum hátíðafundi voru Kristinn Vilhjálmsson og Halldór Kristjánsson. Þeir fluttu heillaóskir og lögðu áherslu á þýðingamikið starf templara norðan lands, ekki aðeins fyrir hérað þeirra, heldur landið allt. Umdæmistemplar er nú Guðmundur Magnússon en þingtemplar er íngimar Eydal. A þessum hátíðafundi var þess líka minnst að Eiríkur Sigurðsson átti 75 ára afmæli á þessu hausti. Var það mjög að maklegleikum því að Eiríkur á langt og mikið starf að baki í bindindismálum, bæði í barnastúku, undirstúku og æðri stigum reglunnar og við sjómannaheimilið á Siglufirði á sínum tíma. Að hátíðafundi loknum settust menn að kaffiveiting- um og gamanmálum. Áfengismál á Alþingi. Vilhjálmur Hjálmarsson 213 menn leita lækningar vestur um haf á 9 mánuðum. Dvölin kostar almanna- tryggingar 150 miljónir. Hvernig er ríkisvaldinu beitt? Málefni áfengissjúklinga og utanfarir þeirra var til um- ræðu á Alþingi 31. öktóber vegna fyrirspurnar frá Braga Nielssyni lækni. í framsöguræðu sinni sagði læknirinn m.a. „Af aukinni áfengisneyzlu leiðir hið óhjá- kvæmilega, að áfengissjúkl- ingum fer fjölgandi". I svari félagsmálaráðherra kom fram að frá áramótum til 30. september 1978 fóru 168 karlar og 43 konur til hælis- vistar í Ameríku vegna drykkjuhneigðar. Sjúkrasam- lög borga dvölina vestra en hún er talin um 750 þús. kr. á mann. Nokkrar umræður spunn- ust af fyrirspurn Braga. Oddur Ólafsson læknir sagði m.a. „Þegar ég var að basla við að læra læknisfræði þá var því slegið föstu að kannski lukk- aðist að lækna í mesta lagi 4-5% af þeim áfengissjúkling- um sem reynt væri að lækna. Nú er þetta breytt í svo ríkum mæli, að talið er allt að 50% af þeim, sem teknir eru til með- ferðar, nái fullri heilsu.“ Fréttir af S.Á.Á SÁÁ, samtök áhugafólks um áfengismál, hafði aðal- fund sinn í október s.l. en þá var liðið ár frá stofnun sam- takanna. Þar voru lagðir fram reikningar og flutt skýrsla um starfsárið 1977-1978. Stofnfélagar urðu skráðir um 7.000 en ekki hafði nema röskur þriðjungur þeirra — 36% — greitt stofngjald Hins vegar hafa samtökin haft yfir 18 miljónir króna í tekjur. Þar i eru stofnframlög 7 miljónir og eru þar í framlög fyrirtækja, styrkur frá sveitar- félögum rúmar 4 miljónir og tekjur af útgáfu Tímarits SÁÁ tæpar fimm miljónir, en það er auglýsingastyrkur, en alls námu auglýsingatekjurnar fullum 7 miljónum. SÁÁ hefur stutt að ferðum 80 manna til Ameríku til dvalar í Freeport. Það rekur nú afvötnunarstöð í Reykjadal í Mosfellssveit og hefur þar 24 gistivini í senn og er jafnan fullt. Oft eru 30-40 manns á biðlista í Reykjadal. Starfs- menn eru þar 14. Bjarni Þjóð- leifsson læknir hefur flutt þar fyrirlestra vikulega. Þá hefur SÁÁ komuð upp hæli í Sogni i Ölfusi. Það er ætlað 20-25 manns en þó hef- ur tala vistmanna farið upp í 26 í einu ,og þegar aðalfund- urinn var biðu sjö menn í Ræykjadal eftir því að komast í Sogn. Talið er að ekki veiti af að taka við 60 manns í mánuði hverjum á sjúkrastöð. Dregið hefur úr Ameríku- ferðunum eftir að starfsemin í Sogni hófst. Hilmar Helgason, sem hef- ur verið endurkosinn formað- ur samtakanna, lét svo um mælt í skýrslu sinni að þau ættu í baráttu við þjóðfé- lags-óvin númer eitt, versta og skæðasta óvin íslenskrar þjóð- ar. Hann sagði að orðið hefði út undan að vinna fyrirbyggj- andi starf og þar yrði að taka sig á. Takmarkið yrði að vera að minnka tíðni alkóhólist- anna eins og hann orðaði það í þessari skýrslu koma fram ýmsar upplýsingar um áfeng- ismál íslendinga. Sú heilbrigðisþjónusta sem hér er sagt frá, og vissulega er rekin af myndarskap, dugar ekki til að taka við framleiðslu alkóhólistanna eins og tíðni þéirra er nú. Þessi hjálpar- starfsemi er og verður alls ófullnægjandi meðan áfengis- nautn er jafn almenn og al- geng og hún er nú. Þetta er því vonlaust nema bindindissemi vaxi. Samkvæmt þessu virðist talið vonlítið að helmingur fái verulegan bata þrátt fyrir allt. Nokkuð töluðu þingmenn um gæsluvistarsjóð og töldu ýmsir að framlög til hans hefði verið og væru um of af skorn- um skammti. Hitt nefndi eng- inn að undanfarin ár er þetta líklega eini liður sem er lægri á ríkisreikningi en fjárlögum. Gæsluvistarsjóður hefur nefnilega ekki fengið það lítið sem honum var þó veitt að lögum. Vilhjálmur Hjálmarsson sagði m.a.: „Ég held að það, sem fram hefur komið í þessum umræð- um, gefi alveg ótvírætt til kynna að fjölgum áfengis- sjúklinga er mjög ör og það verði að neyta allra ráða, það megi hvergi slaka á og verði að leita allra úrræða til að mæta þessum vágesti. Hitt er svo merkilegt, að það skuli helzt ekki hvarfla að neinum í sam- bandi við þessi mál, að það sé ástæða til þess fyrir hið opin- bera að breyta háttum sínum og hætta þeirri siðvenju að gera allt sem unnt er til þess að rótfesta þá skoðun, að daga- munur og góðra vina fundur sé óhjákvæmilega tengdur áfeng- isneyslu. Það held ég að menn ættu að íhuga í leiðinni, þegar þessi vandamál eru rædd.“

x

Reginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.