Fréttablaðið - 19.03.2021, Blaðsíða 16
Það er krefjandi að sýna ballett
daglega og stundum tvisvar á dag.
Hrefna hefur fundið fyrir álags
meiðslum og segir að í rauninni
hafi fríið undanfarið verið kær
komin hvíld fyrir líkamann þótt
æfingar haldi áfram daglega
hér heima. Það eru ekki margir
Íslendingar atvinnuballettdans
arar og þess vegna er gaman að
því að tvíburasysturnar Hrefna
Kristrún og Erna Kristín hafi náð
svona langt. Ballet Theatre UK er
staðsett norðan við London en það
er farandleikhús sem ferðast um
Bretland. „Við erum undir sérstöku
álagi vegna ferðalaganna. Í fyrra
voru fyrirhugaðar 130 sýningar en
það breyttist vegna COVID. Við
vorum búin með 78 sýningar þegar
allt varð stopp. Núna er akkúrat
eitt ár síðan leikhúsinu var lokað.
Það breyttist heilmikið í okkar lífi
við það,“ segir Hrefna Kristrún.
„Það er auðvitað svekkjandi að
missa svona langan tíma í leik
húsinu en við lítum bjartsýnum
augum á að það verði hægt að opna
aftur í sumar.“
Hrefna Kristrún og Erna Kristín,
tvíburasystir hennar, voru aðeins
þriggja ára þegar þær hófu ballett
nám í Washington DC í Banda
ríkjunum. Þá bjó fjölskyldan þar.
„Við systurnar vorum dolfallnar
yfir myndinni Barbie in the Nut
cracker. Afi okkar, Knútur Halls
son, ráðuneytisstjóri og formaður
Kvikmyndsjóðs Íslands, var mikill
ballettunnandi. Hann setti iðu
lega klassíska tónlist á fóninn og
við dönsuðum með. Móðir okkar,
Halldóra Þórarinsdóttir, ákvað að
skrá okkur í balletttíma þegar hún
sá þennan áhuga. Sjálf hafði hún
alist upp á Hvammstanga og þar
var ekki boðið upp á ballettnám
sem hana dreymdi þó um. Þegar
við fluttum aftur heim til Íslands
hófum við nám hjá Listdansskóla
Íslands og útskrifuðumst þaðan.
Einnig sóttum við tvisvar sumar
námskeið hjá San Francisco ballett
inum og í eitt skipti í Chic ago auk
námskeiðs í Kaupmannahöfn. Við
höfum því farið víða og sótt okkur
reynslu,“ segir Hrefna Kristrún.
Harður listaheimur
Fyrir tveimur árum fóru systurnar
að leita eftir atvinnutækifærum í
ballettinum í Evrópu. Þær komust
í nokkrar prufur, meðal annars í
Grand Audition í Barcelona, þar
sem umsóknir voru yfir eitt þús
und. Rúmlega tvö hundruð manns
fá að mæta í prufu. Syst urnar
komust í gegnum fyrstu þraut og
var boðið að koma aftur og dansa
sóló. „Eftir það voru 30 kallaðir í
viðtal og við vorum meðal þeirra.
Í lokin fengu 4 dansarar samning
hjá BTUK og við systurnar meðal
þeirra,“ segir Hrefna Kristrún. „Það
eru einungis tvö prósent dansara í
heiminum sem fá atvinnutækifæri
svo þetta er harður heimur,“ segir
hún. „Við ákváðum að skrifa undir
samning og flytja til Bretlands.“
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergs-
dóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Þessi mynd
lýsir lífinu hjá
Ballet Theatre
UK best,“ segir
Hrefna. „Mynd-
in var tekin á
milli tveggja
sýninga af
Galdrakarlinum
í Oz, í Brighton
Dome um jólin,
þar sem svo
skemmtilega
vill til að ABBA
vann Eurovison
og söngvarar
eins og David
Bowie, Elton
John og Jimi
Hendrix hafa
komið fram.
Acai-skálin sem Hrefna matreiðir með kollageninu frá Feel Iceland.
Fyrsta sýningin sem systurnar
tóku þátt í var Galdrakarlinn í Oz.
„Það urðu sjötíu sýningar víða um
Bretland. Síðan tók við ballettinn
Giselle sem er dramatískt verk.
Það er mikið ævintýri að taka þátt
í þessu. Ballettinn er bæði íþrótt,
listgrein og tjáningarform. Maður
þarf að vera sterkur til að geta
höndlað æfingar í átta tíma á dag
auk sýninga. Næsta sýning hjá
okkur verður Snjódrottningin eftir
H.C. Andersen sem er mjög spenn
andi verkefni.“
Hrefna Kristrún segist vera
ævinlega þakklát Listdansskóla
Íslands því þar hafi hún fengið
mikla hvatningu. „Við höfum
fengið að stunda æfingar í skól
anum núna í COVID sem við erum
afar þakklátar fyrir. Við verðum
að halda okkur í formi og það er
ómetanlegt að hafa fengið að nota
sali skólans til æfinga.“
Sjúkraþjálfarinn mælti
með Feel Iceland kollageni
Hrefna Kristrún fann mikið fyrir
álagi á fæturna og var með mikla
verki í ökkla sem er algengt meðal
dansara. „Vegna þess hversu
sýningar voru margar gafst aldrei
tími til að hvíla ökklann. Þar sem
ég var komin með samning var
ekki um annað að ræða en dansa
þótt ég fyndi til í fætinum. Það var
þess vegna lán í óláni að loka þurfti
leikhúsinu. Ég hvíldi fótinn í tvo
mánuði en fékk ekki bata enda
kom í ljós eftir myndatöku að ég
var með aukabein í fætinum. Eftir
skurðaðgerð þurfti ég að ná aftur
liðleikanum hjá sjúkraþjálfar
anum mínum. Ásta Arnardóttir,
sjúkraþjálfari í Orkuhúsinu, benti
mér á að taka Joint Rewind hylkin
frá Feel Iceland. Ég trúði varla
hversu mikinn mun ég fann strax
á líðan minni. Þetta var eins og að
fá smurningu á liðinn. Ég hætti
að taka hylkin í nokkra daga til
að prófa og fann þá strax aftur
til í fætinum. Ég hef því haldið
áfram að taka þau inn með góðum
árangri og bætti kollageninu frá
Feel Iceland við. Það hefur haft
mjög góð áhrif á húð og hár. Núna
er það partur af daglegri rútínu hjá
mér að taka bæði þessi fæðubótar
efni,“ segir Hrefna Kristrún.
Joint Rewind er í hylkjaformi en
kollagenið er duft sem hún setur út
vatn, smoothie eða appelsínusafa.
„Stundum bý ég til acaiskál og
set kollagenið út í hana. Þetta eru
ofurber sem ég blanda saman við
jarðarber, banana og bláber. Það er
mjög einfalt að útbúa svona graut
og í raun auðvelt að gúgla upp
skrift. Ég set eina til tvær skeiðar
af kollageni saman við acaiberin.
Svona skál gefur manni góðan
kraft fyrir daginn. Ég er alveg viss
um að kollagenið hefur góð áhrif á
beinin á meðan Joint Rewind smyr
liðina. Það er ekki hægt annað en
að mæla með þessum vörum því
þær hafa flýtt fyrir bata mínum,“
segir Hrefna Kristrún. „Þetta er
þar að auki íslensk vara og maður
treystir innihaldinu mjög vel.“
Acai-skál
Hér kemur uppskrift að morgun
verði frá Hrefnu Kristrúnu
2 stórar matskeiðar af vanilluskyri
1 matskeið af acai-dufti
1 banani, betra ef hann er frosinn/
kaldur
2 lúkur af frosnum bláberjum
1 lúka af jarðarberjum
Ofangreint blandist saman og
hægt að stinga í frystinn í 30 mín
útur. Að lokum er hægt að toppa
með ýmsum ávöxtum, til dæmis
þurrkuðum banönum, hind
berjum, bláberjum, jarðarberjum,
sólblómafræjum, chiafræjum og
granóla.
Þakklátir áhorfendur
Ballerínan segist hlakka mikið til
að fara aftur til Bretlands og hefja
ferilinn á nýjan leik. „Við förum út
í ágúst og verðum í endurþjálfun
í mánuð áður en allt fer í gang.
Yfirleitt fara þrjár vikur í æfingar
á nýju verki. Markmið flokksins
er að halda miðaverði hóflegu og
leyfa fólki úti á landsbyggðinni að
eiga þess kost að sjá ballett. Við
komum því í marga fallega smábæi
og fólkið þar er svo þakklátt og
ánægt. Litlu krakkarnir brosa til
okkar úr salnum og það er svo fal
legt,“ segir hún.
Hrefna Kristrún segist gjarnan
vilja dansa á Íslandi en tækifærin
séu ekki til staðar. „Það væri mjög
skemmtilegt ef hægt væri að setja
upp klassíska ballettsýningu hér á
landi enda margir hæfaleikaríkir
dansarar. Rætur mínar liggja á
Íslandi og það væri frábært að geta
búið hér en sem atvinnumaður
þarf ég að starfa erlendis. Ég stefni
á að vera áfram í Bretlandi en
það gæti breyst ef ég fæ samning
annars staðar. Við systurnar erum
mjög samrýmdar í öllu sem við
gerum og höfum nánast sömu
áhugamál. Það eru margir kostir
við að vera saman í þessu. Síðan
hafa foreldrar okkar verið ein
staklega hvetjandi og sýnt okkur
mikinn stuðning.“
Feel Iceland fæst meðal annars í
öllum helstu apótekum og heilsu-
vöruverslunum, svo sem Lyfju,
Heilsuhúsinu, Lyfjum og heilsu,
Apótekaranum, Fjarðarkaupum,
Hagkaup, Krónunni, Nettó og í
Fríhöfninni.
Sjá nánar á feeliceland.com
Hrefna Kristrún
er einn af
fáum atvinnu-
mönnum í
ballettdansi.
Hún starfar í
Bretlandi en
leikhúsið hefur
verið lokað
vegna COVID.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
2 kynningarblað A L LT 19. mars 2021 FÖSTUDAGUR