Fréttablaðið - 19.03.2021, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 19.03.2021, Blaðsíða 28
Leikkonan Zoë Kravitz er alltaf jafn óaðfinnanleg og flott í klæðavali. Hún er sérstaklega frumleg þegar kemur að vali á klæðnaði fyrir rauða dregilinn. Zoë er dóttir leikkonunnar Lisu Bonet og tónlistarmannsins Lenny Kravitz, sem hafa bæði verið þekkt fyrir að vera óhrædd í klæðavali og með afslappaðan og jafnvel smá hippalegan smekk. Zoë hefur slegið í gegn í þáttum á borð við Big Little Lies og High Fidel­ ity, en þeir síðarnefndu eru byggðir á kvikmynd sem móðir hennar lék í á sínum tíma. Á næsta ári munum við svo sjá leikkonuna í hlutverki Cat­Woman í næstu Batman­mynd. steingerdur@frettabladid.is Frumleg og flott tískufyrirmynd Leikkonan heldur mikið upp á tískumerkið franska Saint Laurent. Hér er hún í kjól frá merkinu í eftirpartíi Vanity Fair eftir Óskarsverðlaunin. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Hversdaglega er leikkonan með mjög afslappaðan og smá hippa- legan stíl líkt og móðir hennar. Leikkonan Zoë Kravitz er óhrædd við að fara sínar eigin leiðir í klæðavali. Hún er alltaf jafn flott á rauða dreglinum og leikur sér með óhefðbundin snið og öðruvísi fylgihluti. Hérna gera smá- atriðin allt eins og ermarnar í þessu tilfelli. Hér er hún í kjól frá Saint Laur- ent á Met-gala- kvöldinu. Enn og aftur í Saint Laurent á frumsýningu Racer and the Jailbird. Flott í ferskjulit- uðum Oscar de la Renta kjól á SAG-verðlaun- unum. Fallegur bleikur kjóll úr smiðju Rei Kawakubo hjá Comme des Garcons. 1 9 . M A R S 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.