Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Qupperneq 2
Ræflar og eldgos S varthöfði átti erfitt með að skilja hvers vegna al-mannavarnir og lögregla ákváðu að skipta sér af og tak- marka aðgengi almennings að ræfla-gosinu á Suðurnesjum. Á núna að fara að aðgangs- stýra fólki að náttúrunni allri bara eins og hún leggur sig? Hvað varð um ferðafrelsið? Svarthöfði viðraði þessa skoðun sína við vin sinn yfir einni kollu af öli á bjórknæpu í miðbænum áður en yfirvaldið skellti þar í lás á miðvikudag. Kunningi Svarthöfða andvarp- aði mæddur. „Veistu það ekki maður? Auðvitað ætti hver og einn maður að drösla sér upp að þessu gosi á eigin ábyrgð. En ég held að almannavarnir og lögregla viti það jafn vel og ég að ef einhver af þessum bjánum endar með að slasa sig þá verður almenningur ekki lengi að draga fram hey- gafflana og fordæma yfirvöld fyrir að hafa ekkert eftirlit með jafn hættulegum stað.“ Svarthöfði var satt best að segja kjaftstopp. Þetta er svo rétt. Það er líklega fátt sem á eins vel við Íslendinga og frasinn um að vilja eiga kök- una sína en borða hana líka. Við viljum bæði sleppa og halda. Ríkið á ekki að skipta sér of mikið af okkur, en samt vernda oss frá öllu illu. Við viljum borga lægri skatta en fá samt í staðinn öflugra vel- ferðarkerfi. Við viljum bera ábyrgð á okkur sjálfum, nema þegar eitthvað kemur fyrir eða eitthvað er óþægilegt. Þá eiga aðrir að bera ábyrgð. Gott dæmi um þetta er fjórða bylgjan af COVID sem er líklega hafin. Ekki ætlum við að nýta tækifærið og líta í eigin barm og viðurkenna að við vorum farin að slaka meira á einstaklingsbundnum sóttvörnum en þríeykið hafði leyft okkur. Enda var það hætt að henta okkur. Nei, frekar viljum við benda á ESB, ríkis- stjórnina fyrir að vera ekki búin að bólusetja okkur, Þórólf fyrir of harðar aðgerðir og að sjálfsögðu fyrst og fremst út- lendinga. „Það ætti samt ekki að hafa öll þessi afskipti,“ bætti kunn- inginn við og reif Svarthöfða upp úr hugsunum sínum. „Ef einhver áhrifavaldur sem ákveður að spássera um á ný- storknuðu hrauni endar ofan í sprungu á bara að afhenda viðkomandi Darwin-verð- launin, þakka sínum sæla fyrir náttúruvalið og halda áfram með lífið.“ Svarthöfði velti þessu fyrir sér. Það er kannski líka vanda- málið við Íslendinga. Við erum farin að treysta um of á að einhver grípi okkur þegar við föllum eða okkur skrikar fótur og erum hætt að kunna almennilega að standa á eigin fótum, eða bera ábyrgð á eigin hegðun. Kannski þarf þetta að breytast ef við viljum sjá breytingar í framtíðinni. Kannski þurfum við bara að leyfa fíflunum að detta ofan í rauðglóandi eldgos, það verður þá allavega einu fífl- inu færra og kannski hugsa hin fíflin sig um tvisvar áður en þau leika það eftir. En þetta eru náttúrulega bannaðar vangaveltur því allir eiga að vera vinir og allir að styðja alla og allt blómum þakið og enginn má móðgast því þá móðgast svo margir yfir móðguninni að það verður móðgana-keðjuverkun sem skapar risavaxinn hnút sem tekur tíma að skera á, og ekki ætlar Svarthöfði að bera ábyrgð á því verkefni. n SVART HÖFÐI Aðalnúmer: 550 5060 Auglýsingar: 550 5070 Ritstjórn: 550 5070 FRÉTTA SKOT 550 5070 abending@dv.is Sería 4 J æja, krakkar, þá er komið aftur afsakið hlé. Stillimyndin sem blasir við okkur er af fjórum manneskjum sem dreifast yfir skjáinn. Inn á milli er ýtt á play og stilli- myndin virðist hreyfast. Einhver fer út og annar kemur inn. Þetta er svokallað „slow TV“ þar sem allt gerist hægt og aðalpersónurnar eru heimilisvinir. Af og til fara þær í stutt leyfi og einhver svip- aður leysir af. Sem er oftast skellur. Flestum fannst Ronn Moss betri Ridge Forester en Thorsten Kaye í Glæstum vonum. Í Gölnu veirunni eru allavega nafnspjöld og tilkynnt um varamenn og skiptingar, annað en í Glæstum þar sem Ridge er allt í einu leikinn af öðrum manni án útskýringa. Hvort Rögnvaldur er betri Víðir en Víðir er smekksatriði. Ég hefði frekað komið með Rögnvald inn sem launson einhvers. Að Víðir veiktist og Alma varð amma eru stórtíðindi. Þórólfur tók lagið en mér finnst samt vanta einhvern ástar- þríhyrning þarna. Það má vera aukaleikari sem tekur það að sér. Annars er þetta orðið ansi þreytt efni eins og sést á aðalpersónunum sem hafa ekki fengið frí lengi. The show must go on. Hnyttinn netverji spurði í öngum sínum á Facebook í vikunni hvað RÚV hefði eiginlega keypt margar seríur af „þessu rugli“? Það minnti mig á vondan samning sem önnur sjón- varpsstöð gerði fyrir löngu. Þegar keyptir voru sjónvarpsþættir til sýn- inga voru gerðir svokall- aðir „end of life“-samn- ingar sem kváðu á um að stöðin væri skyldug til þess að kaupa allar þáttaraðir af þættinum á meðan hann væri í framleiðslu. Oft var þetta gott – til dæmis þegar stöðin keypti þætti sem hittu í mark. Þá þurfti ekki sífellt að endursemja og slást við aðra miðla um að ná næstu seríu. Svo voru keyptar þáttaraðir sem neituðu að gefa upp öndina – má þá helst nefna Law and Order: SVU, Bachelor og Survivor. Sá síðastnefndi reyndist þó hinn hrikalegasti dragbítur og neitaði að gefast upp. Sem er kaldhæðnislegt miðað við innihald og nafn þáttarins. Survivor kostaði himinháar fjárhæðir sem stöðin var skyldug til að greiða en ekki dugði það því í samningnum var einnig tekið fram að það yrði að sýna þættina. Stundum hlóðust þáttaraðirnar upp því alltaf voru einhverjir vitleysingar til í að sitja við varðelda og plotta í skítugum stuttbuxum. Ég get ekki annað en hugsað til þess að RÚV sé orðið innikróað í Survivor-samningi. Verði að sýna seríu eftir seríu af raunveruleikasjónvarpi með mis- góðum keppendum plotta sama plottið þar til einhver gefst upp og dettur út. n Þetta er svo kallað „slow TV“. UPPÁHALDS ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ágúst Borgþór Sverrisson, agustb@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Hrafn Norðdahl, hrafn@dv.is PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000. Sigga Dögg kynfræðingur er landsmönnum vel kunn enda hefur hún um árabil frætt unga sem aldna um kynlíf og allt sem því við kemur. Hún nefnir hér fimm uppáhalds hlutina sem koma henni í stuð fyrir kynlíf. 1 Hitastig! Ef mér er kalt þá geturðu gleymt þessu! Veit ekkert betra en að vera hlýtt og geta þannig slakað á og notið. 2 Sleipiefni! Ég vil hafa sleipiefni við höndina, alveg sama hvernig kynlíf ég er að fara að stunda. 3 Vatn! Sko, bæði það að vera ný- komin úr baði eða sundi OG að hafa vatns- glas hjá mér. Það getur alveg drepið stemm- inguna að vera að drepast úr þorsta. 4 Hreint á rúminu Augljóslega kveikir það í hvaða heilvita manneskju sem er! 5 Falleg birta Hvort sem það er sólarljós eða ljósasería eða kerti, það er eitthvað við fallega birtu sem hjálpar mér að slaka á en það er augljóslega mikil- vægt til að geta komið sér í stuð. HLUTIR SEM KOMA MÉR Í STUÐ Röggi, Thorsten, Víðir og Ronn. MYND/SOAPS.COM 2 LEIÐARI 26. MARS 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.