Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Page 13
FRÉTTIR 13DV 26. MARS 2021 gera sitt eigið og skapa verk- efni. Ef þú ætlar raunverulega að lifa á þessu það sem eftir er ævinnar þá þarftu að skapa þín eigin tækifæri. Það er ekki lengur þannig að þú sért ævi ráðinn í leikhúsinu. Ég er heppin, ég fékk þá flengingu snemma og lærði að reikna ekki með neinu.“ Kjaftamaskínan Lilju var boðinn árssamning- ur bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu þegar hún útskrifaðist og valdi Þjóðleik- húsið þar sem hún lék hið eftir- sótta hlutverk kvenhetjunnar Snæfríðar Íslandssólar í Ís- landsklukkunni. „Ég gaf mig alla í hlutverkið en því var misvel tekið. Fólk- inu fannst ég góð en brans- anum ekki. Það er allt í þessu fína en það eru þessi átök sem voru í þessu húsi sem voru það ekki. Konur sérstaklega lenda í þessari kjaftamaskínu þar sem einhvers staðar segir einhver eitthvað um að hún sé erfið og það sé ekki hægt að vinna með henni en oftast getur enginn sagt af hverju eða nefnt dæmi. Ástæðan er þá kannski að ein- hverjum einum karli fannst erfitt að vinna með henni því hún var ekki sammála öllu sem hann sagði.“ Lilja segist sjálf hafa gerst sek um að dæma konu úr leik því hún hafði heyrt að við- komandi væri erfið í sam- starfi. „Ég var að leita að manneskju til að skrifa með mér handrit og Þórhallur Gunnarsson stingur upp á konu sem ég afskrifaði strax. Þegar hann spurði mig hvort ég þekkti hana eða hefði unnið með henni varð ég að átta mig á að ég var þarna orðin hluti af vandamálinu. Þetta var svo gott á mig – og ég var svo pirruð á því að ég hefði tekið þátt í þessu því ég hafði lent í hinni hliðinni.“ Þetta fyrsta ár Lilju í Þjóð- leikhúsinu hafði hún tekið þátt í nokkrum uppsetningum þegar farið var að kalla fólk í prufur fyrir næsta leikár. „Það voru bara prufaðar leikkonur. Leikararnir þurftu ekki að fara í prufur, þeir fengu bara sín hlutverk, en leikkonurnar urðu að mæta í prufur. Eðli- lega varð mikill kurr í húsinu og mikið talað inni í lokuðum herbergjum. Ég með mína út- blásnu réttlætiskennd og litlu meðvirkni gat ekki setið á mér þegar ég var boðuð í prufu og rétti upp hönd og sagði: Má ég spyrja að einu, af hverju er bara verið að prufa konur?“ Lilja segir að það hafi ekki verið tekið vel í þá fyrirspurn og fátt hafi verið um svör. „Ég var ung og nýútskrifuð og átti bara að þegja og vera þakklát fyrir að vera í vinnu. Ég fékk svo ekkert hlutverk í þessu leikhúsi árið eftir. Ég fór í kjölfarið mjög langt niður. Ég hafði fengið þarna gífurlega eftirsótt hlutverk í Íslands- klukkunni sem átti að vera upphafið mitt. Ég skildi ekki hvar mér hafði mistekist því ég lagði mig alla fram. Svo ári seinna kemur í ljós að kjafta- maskínan hafði farið í gang eftir þessa spurningu mína, að ég væri svo erfið og mikil stjarna og þættist of góð til þess að mæta í prufu. Hvort maskínan kom því eitthvað við að ég var ekki ráðin veit ég ekki en það hjálpar ekki. Þess vegna var það svo hug- vekjandi fyrir mig að átta mig á að ég hafði sjálf tekið þátt í þessu með því að vilja ekki íhuga þessa konu sem hand- ritshöfund því ég „hafði heyrt“ að hún væri erfið sem hún var svo alls ekki og er algerlega brilljant.“ Er þetta ekki ekki öðruvísi núna? Er fólki ekki fagnað fyrir að taka slaginn? „Jú, að einhverju leyti, en svo eru alltaf einhverjir sem hugsa: Gott hjá þér svo lengi sem þú tekur slaginn við aðra og vinnur annars staðar. Ég nenni ekki að vinna með þér, hvað ef þú ferð að taka slaginn við mig?“ segir Lilja og segist þó sjálf ekki vera upptekin af því hvaða afleiðingar réttlætis- kenndin hefur. Hún þarf að fá að brjótast fram. „Ég áttaði mig heldur ekki á því fyrr en ég var ráðin aftur í Þjóðleikhúsið að þessi draumastaður sem ég sá fyrir mér – að geta valið úr verk- efnum – ég var á honum. Hann leit bara öðruvísi út en ég hélt nokkrum árum áður. Þarna hafði ég hafði losað mig undan kvíðanum, eignast barn og var komin nær sjálfri mér. Þá fann ég kraftinn til að velja. Ég þarf ekki að taka öll verkefni sem mér bjóðast, ég ber ábyrgð á því sem listamaður að velja verkefnin mín.“ n Lilja er með sjónvarps- handrit í smíðum þar sem sagn- fræðiáhugi hennar fær að njóta sín. MYND/VALLI Það voru bara prufaðar leik­ konur. Leikar­ arnir þurftu ekki að fara í prufur, þeir fengu bara sín hlutverk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.