Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Síða 18
18 EYJAN
VALDIÐ SEM FELST Í BJÖLLUNNI
26. MARS 2021 DV
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Í hugum margra er forseti Alþingis sá sem kynnir næsta ræðumann og
hringir bjöllunni þegar ræðu-
tíminn er búinn. Hlutverk
forseta Alþingis er hins vegar
mun veigameira og er það í
raun valdamesta hlutverkið
þegar kemur að störfum
þingsins.
„Dagskrárvaldið á Alþingi
er hjá forseta þingsins. Þeir
sem veljast í þetta embætti
eru venjulega gamalreyndir
stjórnmálamenn sem kunna
vel á hefðir þingsins og eru
vel í stakk búnir til að stjórna
starfi þess. Þeir sem hafa orð-
ið forsetar Alþingis á síðustu
áratugum hafa oftast verið
fyrrverandi ráðherrar og
oftast úr flokki forsætisráð-
herra. Þannig er dagskrár-
valdið því í raun í höndum
ríkisstjórnarinnar sjálfrar,
sér í lagi foringja ríkisstjórn-
arflokkanna,“ segir Ólafur
Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands.
Steingrímur J. Sigfússon
var kjörinn forseti Alþingis
eftir að sitjandi ríkisstjórn
tók við, í desember 2017. Hann
hefur verið þingmaður síðan
1983, í tæpa fjóra áratugi.
Hann er fyrrverandi for-
maður Vinstri grænna, flokks
forsætisráðherra, hefur verið
ráðherra fjölda ráðuneyta og
sinnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir þingflokk sinn. Þetta er
raunar ekki í fyrsta sinn sem
Steingrímur gegnir embætt-
inu en hann var stuttlega for-
seti Alþingis frá 2016-2017.
Viðeigandi endir á ferlinum
Ólafur segir að lengi vel hafi
embættið verið meiri virð-
ingarstaða en valdastaða. Það
hafi hins vegar breyst með
aukinni áherslu á sjálfstæði
þingsins.
„Þegar ríkisstjórnir eru
myndaðar hefur það verið
keppikefli flestra frammá-
manna í flokkunum sem fara
saman í ríkisstjórn að fá ráð-
herraembætti. Þar á eftir
hefur komið embætti forseta
þingsins. Stundum hefur það
einmitt verið þannig að þegar
hefur farið að síga á seinni
Steingrímur J.
Sigfússon var
kjörinn for-
seti Alþingis
í desember
2017. Hann
hættir á þingi
eftir kosn-
ingar.
MYND/ERNIR
Þau sem gegna embætti
forseta Alþingis eru jafnan
virðulegir þingmenn sem
eru framarlega í sínum
flokki en hlutu ekki ráð-
herrastól. Dagskrárvald
á Alþingi er formlega hjá
forseta þingsins en í praxís
hjá ríkisstjórninni sjálfri.