Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Page 31
KYNNING 31DV 26. MARS 2021
H eilsuvegferðin hófst hjá Gyðu Dís þegar hún tók afdrifaríka ákvörðun árið 2003 um að
taka lífsstílinn rækilega í gegn. „Ég
eignaðist son minn sem er langveik-
ur og er í dag orðinn ungur maður.
Til þess að geta sinnt mínu hlutverki
sem móðir langveiks barns og þeim
krefjandi en skemmtilegu verkefnum
sem því fylgdu, þá þurfti ég að setja
sjálfa mig í fyrsta sæti,“ segir Gyða.
Frumkvöðull á Íslandi
Gyða Dís starfrækir jógastúdíóið
Shree Yoga, en shree/shre/sri kemur
úr sanskrít og stendur fyrir hina
glitrandi fegurð sem finna má í öllu
sem er. Þar býður hún upp á jóganám-
skeið, kennaranámskeið og heilsumið-
aðar jóga- og matarferðir á vegum
stúdíósins. Einnig hefur hún kynnt
spennandi nýjungar í jógafræðum
fyrir Íslendingum. Þá var hún sú
fyrsta hér á landi til þess að kynna
handstöður inn í jógatímana.
„Ég var með handstöðuáskorun
í 365 daga þar sem ég hvatti fólk
til þess að tileinka sér handstöðu-
tæknina. Í öllu mínu starfi hef ég
lagt áherslu á að vera með heild-
ræna nálgun. Því jóga er ekki bara
stöðurnar, heldur er gríðarlega
mikilvægt að fara líka í öndunina.
Svo blanda ég Ayurveda-fræðunum
alltaf saman við, enda er svo mikinn
lærdóm að draga af þeim.“ Gyða Dís
heldur líka úti fræðandi bloggi, www.
shreeyoga. is, þar sem hún fræðir
lesendur um Ayurveda, jóga, heilsu
og birtir mataruppskriftir.
Leyniráð Ayurveda
„Í minni heilsuvegferð sem hófst
2003 var allra fyrsta verkefnið hjá
mér að taka út gosdrykki og rusl-
fæði, en samkvæmt Ayurveda-fræð-
unum, sem snúast um líf og vísindi
í grunninn, er mikil áhersla lögð á
fæðið og er það ávallt í fyrsta sæti
þegar kemur að heilsunni. Þá er
mælt með plöntumiðuðu fæði og
mikið rætt um lækningamátt jurta.
Við erum því í raun að nota jurtir og
mataræði til þess að heila líkamann.
Næst á eftir er svefninn, og er ég
mjög glöð yfir því að það hefur orðið
mikil vitundarvakning í samfélaginu
um mikilvægi svefns. Hreyfingin
kemur svo ekki fyrr en í þriðja sæti.
Það er líka svo skemmtilegt að í
Ayurveda-fræðunum er að finna svo
mörg leyniráð og þaðan höfum við
lært hvað túrmerik er hollt og bólgu-
eyðandi, hvað kanillinn er frábær og
hversu kardimommur eru bráðhollar
fyrir okkur.
Hægt og bítandi tók ég svo út mjólk-
urvörur. Því næst tók ég út kjötið og
síðast hætti ég í kjúklingi og fiski. Svo
varð ég grænmetisæta og árið 2009
fór ég á hráfæði. Því hélt ég fram til
ársins 2016 og er nú hægt og blíðlega
að bæta inn heitum mat í mataræðið.
Nú er ég á plöntumiðuðu fæði og passa
mig á því að borða engar unnar mat-
vörur. Breytingin varð mér mjög til
batnaðar. Fólkið í kringum mig var
fljótt að taka eftir þessari breytingu
og er ég mjög þakklát í dag að búa að
því að hafa tekið lífsstílinn í gegn.“
Ólöglegur sveppur með
jákvæða eiginleika
Gyða Dís byrjaði snemma að drekka
kombucha á svipuðum tíma og hún
var að fara yfir í hráfæðið. „Á sínum
tíma var hvergi hægt að komast í
kombucha-teið og var ég ein af þeim
sem „smyglaði“ sveppinum inn í
landið, þar sem hann var í raun ólög-
legur. Þessi tilraunastarfsemi er
nokkuð plássfrek og var ég komin í
HIN GLITRANDI FEGURÐ
FINNST LÍKA Í KOMBUCHA
Gyða Dís hefur um árabil boðið Íslendingum upp á heilsumið-
aða jógatíma, jógakennaranám og heilsumiðaðar jógaferðir. Þá
hefur hún kafað djúpt í Ayurvedafræðin og segir þann lærdóm
tengjast ást sinni á kombucha-drykknum órjúfandi böndum.
Iceland fyrir máltíðir. Kombucha hefur
gríðarlega jákvæð áhrif á mig, gefur
mér orku og róar meltinguna.
Uppáhaldsbragðið mitt er klárlega
krækiberja-kombucha frá Kombucha
Iceland, en auk þess að vera framleitt
úr íslensku vatni þá eru í því íslensk
krækiber beint úr náttúrunni sem eru
alveg stútfull af andoxunarefnum.
Mér finnst frábært að geta stutt
íslenska framleiðslu og svo er þetta
bara svo gott hjá þeim. Annars er ég
líka virkilega hrifin af glóaldinbragð-
inu, en krækiberja er alltaf í uppá-
haldi. Þetta byrjaði hægt hjá þeim og
það var stundum erfitt að komast í
kombucha frá Kombucha Iceland. En
nú hefur greinilega orðið framþróun
í fyrirtækinu og ég vona svo innilega
að framleiðslan haldi áfram að vera
svona lífvænleg og flott hjá þeim í
Kombucha Iceland.“ n
ýmiss konar tilraunastarfsemi með
kombucha heima hjá mér. Sumt tókst
vel, annað ekki. En sveppurinn er
snöggur að stækka og þá fjölgar ílát-
unum fljótt sem þarf til að geyma og
ala sveppinn. Þegar ég heyrði af því
að verið væri að hefja framleiðslu á
íslensku kombucha úr okkar frábæra
íslenska vatni, þá varð ég virkilega
spennt.“
Kærkomið framtak
„Í öllu mínu starfi þreytist ég seint á
því að dásama kombucha-tedrykkinn.
Í heilsuferðunum gef ég jógunum mín-
um alltaf skot af kombucha á fastandi
maga, en þetta er það besta sem þú
gerir til þess að keyra meltingarkerfið
í gang. Kombucha er stútfullt af góð-
gerlum sem bústa kerfið á morgnana.
Sjálf drekk ég um eina flösku á dag
sem er feykinóg fyrir mig. Ég er með
jógatíma klukkan sex á morgnana og
fæ mér alltaf sopa af kombucha frá
Kombucha Iceland áður en ég fer að
kenna. Svo fæ ég mér sopa eftir á líka.
Þá drekk ég aldrei með mat en ég fæ
mér oftast kombucha frá Kombucha
Uppáhaldsbragð Gyðu Dísar er krækiberja
og hefur verið um árabil, enda eru íslensku
krækiberin stútfull af andoxunarefnum.
Gyða er líka hrifin af glóaldinbragðinu enda
er það frískandi og milt á bragðið.
Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru meðlimir
í Kombucha Iceland-fjölskyldunni:
Krónan | Melabúðin | Fjarðarkaup | Heilsu-
húsið | Matarbúðin Nándin | Brauð og co.
og nú nýlega er það fáanlegt í Heimkaupum.
Einnig fæst Kombucha Iceland í
BioBorgara | Kaffihúsi Vesturbæjar | Le Kock |
Kaffi Laugalæk | Mr. Joy | Mamá | Te og kaffi
| Systrasamlaginu og á fleiri stöðum.
Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi:
Vistvera á Selfossi| Ljómalind í Borgarnesi |
Fisk kompaní á Akureyri | Hús handanna á
Egilsstöðum og Kaja Organic á Akranesi.
Á sínum tíma var Gyða Dís ein af þeim sem „smyglaði“ sveppnum inn í landið, þar sem hann var í raun ólöglegur. MYND/STEFÁN
MYND/DANI GUINDO MYND/DANI GUINDO