Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Síða 34
Reffilegar og rakaðar stjörnur Margar skærustu stjörnur Holly- wood hafa á einhverjum tíma- punkti rakað af sér hárið af hin- um ýmsu ástæðum. Algengast er stjörnurnar hafi rakað hárið af sér fyrir hlutverk, en dóttir Bruce Willis, Tallulah bað föður sin um að raka af sér hárið í sóttkví. TALLULAH WILLIS Tallulah Willis dóttir Bruce Willis og Demi Moore lét lokkana fjúka á síðasta ári þegar hún var í sóttkví ásamt foreldrum sínum og systur. Það var enginn annar en stórleikarinn faðir hennar sem rakaði af henni hárið en hann er einmitt krúnurakaður líka. Fal­ legt höfuðlag fjölskyldunnar ber klippinguna vel eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Demi rakaði hár sitt af fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni G.I. Jane árið 1997. CARA DELEVINGNE Cara Delevingne fyrirsæta og leikkona rakaði af sér hárið fyrir hlutverk í myndinni Life in a year (2020). Áður en hún hafði landað hlutverkinu hafði hún greint umboðsmanni sínum frá því að ef hún fengi hlutverkið myndi hún raka af sér hárið. Myndin fjallar um unga konu sem á ár eftir ólifað sökum veikinda. SIGOURNEY WEAVER Sigourney Weaver var ein sú fyrsta til að láta lokkana fjúka fyrir hlutverk. Hún fékk samkvæmt seigum sögu­ sögnum 4 milljónir Bandaríkjadala fyrir að raka af sér hárið fyrir tökur á myndinni Alien. Hvort sem það er satt eða ekki borgaði fórnin sig engu að síður þar sem hún lék í 4 Ailien kvikmyndum. TONI COLETTE Toni Colette rakaði hárið á sér árið 2015 af fyrir hlutverk sitt í Miss You Already þar sem hún leikur konu sem berst við krabba­ mein. Leikkonan þurfti að raka höfuð sitt fimm sinnum á meðan á tökum stóð og segir það hafa verið afar frelsandi. CHARLIZE THERON Charlize Theron rakaði hárið á sér fyrir leik sinn í kvikmyndinni Mad Max: Fury Road sem kom út árið 2015. Leikkonan vinsæla er ein þeirra sem virðist bera hvaða greiðslu og háralit sem er. MYNDIR/PINTEREST KIRSTEN STEWART Kirsten Stewart rakaði hárið af sér við tökur á myndinni Und­ erWater (2020) þar sem hún leikur rannsóknarkonu á rann­ sóknarstöð undir yfirborði sjávar. Stewart sagði hlutverkið hafa verið fyrirtaks afsökun til að raka af sér hárið, þar sem hana hafi langað að prófa það lengi. 34 FÓKUS 26. MARS 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.