Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2021, Qupperneq 35
Evert Víglundsson 6. október 1972 Vog n Málamiðlari n Samstarfsfús n Örlátur n Félagsvera n Óákveðinn n Forðast deilur Þuríður Guðmundsdóttir 29. ágúst 1984 Meyja n Metnaðarfull n Traust n Góð n Vinnuþjarkur n Of gagnrýnin n Feimin I lmur Kristjánsdóttir leikkona fagnaði af-mælisdegi sínum fyrir stuttu og er á sama tíma að undirbúa frumsýningu á nýjum sjónvarpsþætti sem heitir Systrabönd. Í Ilmi sameinast list og orka sem er fisknum svo eðlislæg. Fiskar eru skemmtilega flóknir persónu- leikar, eiga það til að ofhugsa og flækja ein- falda hluti. En á móti eru þeir afar listrænir og þægilegir í umgengni, þeir eru til í flest allt flipp og vilja bara vera í flæðinu. Hengdi maðurinn Bið | Sleppa tökum | Ný sjónarhorn Það er augljóst að það hefur reynt aðeins á þolinmæðina þína síðustu mánuðina. Þú er með alls konar drauma og væntingar og þér finnst hlutirnir ekki rúlla áfram nógu hratt og örugglega. Nú er tími til að treysta á alheims­ orkuna og trúa því að allt sé eins og það á að vera. Nýttu þennan rólega tíma til þess að hlúa vel að sjálfri þér og til þess að gera undirbúningsvinnuna fyrir það sem koma skal. Mátt ekki vanmeta hugsanaferlið á meðan að draumarnir eru ekki orðnir áþreifanlegir. Tunglið Óvissa | Kvíði | Undirmeðvitund | Innsæi Ekki örvænta þótt þú sjáir ekki annað hvort fyrir end­ ann á einhverju ákveðnu eða sért óviss hvert þú ert að stefna nákvæmlega. Þetta snýst allt um viðhorf, þú getur séð þetta sem ævintýri. Nú þarftu að sleppa tökunum og leyfa því að gerast sem þarf að gerast. Þetta er ekki endilega þægilegasta staðan að vita ekki hvernig málin fara en spilið er þér hliðhollt, þú ert ekki ein og þú munt verða leidd áfram. Hlustaðu vel á innsæið og vittu til hvort þú fáir ekki svör við þessum spurningum... Nía í myntum Gnægð | Lúxus | Sjálfbærni | Fjárhagslegt sjálfstæði Jæja, hér sjáum við mjög gjöfult spil sem segir að þú munir svo sannarlega fá að uppskera. Þú verður verð­ launuð fyrir þolinmæði þína. Hlutirnir munu ganga vel og þér í haginn þannig að það er nú alveg óþarfi að vera kvíðin yfir óvissunni sem er um þessar mundir. Þetta Skilaboð frá spákonunni Eitthvað segir mér að þú hafir verið að pæla í að iðka íhugun, eftir hverju ertu að bíða? Margir sem stunda innhverfa íhugun ná mjög langt í lífinu. STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Ilmur Kristjánsdóttir SVONA EIGA ÞAU SAMAN Vikan 26.03. – 01.04. Innhverf íhugun er svarið Stjörnuþjálfari fjölgar sér MYND/STEFÁN KARLSSON stjörnurnarSPÁÐ Í Þ jálfarinn og eigandi CrossFit Reykjavík, Evert Víglundsson, og eiginkona hans, Þuríður Guðmundsdóttir, eiga von á barni í ágúst. Þetta er fyrsta barn þeirra sam- an en fyrir á Evert tvö börn. Hjónin gengu í það heilaga í nóvember 2018 og lék DV forvitni á að vita hvernig hjónin eiga saman ef litið er til stjörnumerkjanna. Evert er Vog og Þuríður er Meyja. Þau ná mjög vel saman vitsmunalega en líkamlega þurfa þau að hafa fyrir því. Þau þurfa að fylgja takti hvort annars og finna sameiginleg áhuga- mál. Meyjan og Vogin leggja bæði áherslu á að byggja sambönd á traustum grunni. Þau virða tilfinningar hvort annars og er það algjört lykilatriði þegar kemur að því að ná vel saman þar sem bæði eru með mjög viðkvæmt egó. Meyjan vill þóknast öðrum og mun auðveld- lega taka yfir ábyrgðarhlutverk Vogarinnar en þau þurfa að muna að tala saman og ná sáttum. n MYND/FACEBOOK Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna? Hrútur 21.03. – 19.04. Elsku, duglegi og útsjónarsami Hrútur. Þú fagnar krefjandi verkefnum og færð mikið út úr því að leysa þau. Þú kannt svo sannarlega að hugsa út fyrir boxið og vekur mikla aðdáun á vinnustaðnum fyrir útsjónarsemi þína og sköpunargleði. Naut 20.04. – 20.05. Nautið er í góðu jafnvægi þessa vikuna. Það er ekki mikið um að vera. Það kemur þér í opna skjöldu hversu auðvelt þú átt með að vera bara í núinu, staldra þar við og hefur ekki neinar óþarfa áhyggjur. Tvíburi 21.05. – 21.06. Tvíburinn er spennufíkill og mun því vera einn af þeim sem pakkar niður nesti, græjar gönguskóna og fer í ævintýraleiðangur upp að eldgosinu góða. Þú færð mikinn kraft frá móður náttúru og ert ævinlega þakklátur fyrir að eiga heima á svona einstökum og mögnuðum stað. Krabbi 22.06. – 22.07. Krabbinn er þekktur fyrir „pabba húmor“ og býður öllum sem koma í heimsókn velkomna með Hrauni og gosi við komu. Að venju er krabbinn líka mikil fjölskylduvera og eyðir vikunni í að ákveða hvað hann geti fengið alla til að gera með sér um páskana. Ljón 23.07. – 22.08. Ljónið fer aðeins meira inn á við þessa vikuna. Þú skrifar í dag­ bókina sem þú hefur ekki gert í nokkra mánuði. Þú leyfir þér að vera í mýktinni og grætur mikið yfir einni, væminni klassískri kvikmynd. Meyja 23.08. – 22.09. Þú tekst á við nýjar aðstæður og ert örlítið stressuð. Það er fullkomlega eðlileg tilfinning en þú munt finna þig vel í þessu nýja verkefni og hlutirnir munu ganga betur en þú hefðir vogað þér að ímynda þér. Vog 23.09. – 22.10. Þú færð nýjan starfskraft sem þú ert búin að vera bíða eftir. Nú lítur þú til baka og óskar þess að þú hefði nýtt tímann betur, en það þýðir ekkert, þannig að þú skalt bara hætta því og halda ótrauð áfram. Áfram þú! Sporðdreki 23.10. – 21.11. Þú þarft að vera sáttasemjari þessa vikuna eða hjálpa einstakl­ ingum að finna lausnir á málum þar sem allir verða sáttir, þrátt fyrir að þurfa að gefa eitthvað eftir. Þú er með góða leiðtoga­ hæfni, því ætti þetta ekki að vera stórmál fyrir þig. Bogmaður 22.11. – 21.12. Loks fer boltinn að rúlla og þú sérð fyrir endann á einum kafla og ert svo sannarlega spenntur fyrir þeim næsta. Þú klárar við­ skiptaáætlun og færð styrk fyrir vikulok sem mun hvetja þig áfram í þessu nýja verkefni. Steingeit 22.12. – 19.01. Ef þig langar að slökkva á símanum og fela þig undir teppi þá gerirðu það bara. Það kemur vika eftir þessa og þú getur verið afkastamikil þá. Það er svo mikil­ vægt að hlusta á þarfir sínar og nauðsynlegt að passa vel upp á að vera ekki of hörð við sig. Vatnsberi 20.01. – 18.02. „Blast from the past“ ef okkur leyfist að sletta smá. En einhver úr fortíðinni lætur í sér heyra og vill tengjast þér á nýjan leik. Þið hafið bæði breyst mikið á þessum tíma í sundur og nú mögulega tilvalinn tími til þess að endurbyggja sambandið á nýjum grundvelli. Fiskur 19.02. – 20.03. Þér líður eins og það sé ekkert um að vera en það er ekki raunin. Þú er að leggja mikla grunnvinnu fyrir það sem koma skal. Stundum byrjar ferlið bara með hug­ myndinni sjálfri en hún er einmitt mikilvægasta fræið. spil segir þér að hlutirnir verða í lagi og hvetja þig til að njóta ferðalagsins, annars munt þú sjá eftir því og gera leiðina að leiðarendanum lengri en hún þarf að vera. Reyndu að stilla hugann og finna þér hugarró. FÓKUS 35DV 26. MARS 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.