Öreigaæska - 01.05.1934, Page 1
Öreigar allra landa, sameínist!
I. árg.
5. blað.
I maí 1934.
ÖREIGAÆSKA
Útgefandi ísaf jarðardeild S. U. K.
1. mai
Baráttudagur verkalýðsins um allan heim. Til samíylktr-
ar baráttu undir forustu Kommunistaflokksins og’ Sam-
bands ungra kommunista fyrir valdatöku verkalýðsins og’
fátækra bænda á íslandi.
Á þrepskildi tímabils
byltinga og stríða.
Þeirri tímabundnu festingu, sem
auðvaldið náði eftir heimsstyrjöld-
ina, er nú lokið. Iðnaðar- og
fjárhags-kreppa auðvaldsins hefir
farið siharðnandi í 4 ár, innri mót-
setningar hinnar almennu þjóð-
félagslegu kreppu auðvaldsinshafa
vaxið gífurlega og auðvaldsþjóð-
skipulagið siglir hrað-
byri inn í nýtt tímabil
byltinga og heims-
styrjalda.
Hvers vegna eru
viðhorf auðvaldsþjóð-
skipulagsins þessi?
Síðasta heimsstyrj-
öld var afleiðing af
stórkostlegum vexti
innri mótsetninga auð-
valdsins. Það var bar-
átta um að skifta
markaðinum og hrá-
efnalindunum upp að
nýju. Það leysti þó
ekki og stóð heldur
ekki til að það gæti
leyst mótsetningar
auðvaldsins. Þvert á
móti sköpuðust nýjar
mótsetningar. Verka-
lýðurinn og fátækir
bændur tóku völdin í
einum sjötta hluta
heimsins. Auðvalds-
þjóðskipulagið komst inn í hina
almennu þjóðfélagslegu kreppu
sína og fór að smiða sina eigin
likkistu.
Auðvaldinu tókst að ná tíma-
bundinni festingu eftir heímsstyrj-
öldina, og þó komust nokkur
lönd eins og t. d. Þýskaland og
England aldrei jafnfætis því, sem
þau voru áður. Bandaríki Ame-
riku græddu ein verulega á heims-
stríðinu.
En nú er auðvaldið búið að l
vera fjögur ár í iðnaðar- og at-
vinnukreppu. Þessi kreppa er orðin
alþjóðleg, ekkert land er undan-
skilið nema Sovétlýðveldin og
Sovétkína. Hún nær yfir allar iðn-
greinar og grípur ekki síst hatram-
lega um sig á sviði landbúnaðar-
ins. En samt er ein iðngrein, sem
ekki er þjökuð af kreppunni, það
er hernaðariðnaðurinn.
Iðnaðar- og fjárhagskreppan er
timabilskreppa og, eins og endra-
nær, hefir auðvaldið velt byrðum
hennar yfir á verkalýðsstéttina og
fátæka bændur. Miljónir hinna at-
vinnulausu margfaldast, verksmiðj-
l ur og atvinnutæki hætta að starfa,
framleiðsluvörur eru eyðilagðar f
stórum stíl, verklýðsækan er ofur-
seld þvingunnarvinnu og sulti,
fátækir bændur flosna
upp af jörðum sínum
og þær seldar á nauð-
ungaruppboðum, árás-
ir auðvaldsins á kjör
þeirra verkamanna,
sem enn hafa vinnu,
vaxa gííurlega, árásir
á samtök verkalýðsins
og baráttu eru stór-
kostlegri en nokkurn-
tíma hefur áður þekst
í veraldarsögunni, o.
s. frv. o. s. frv.
En þessar ráðstaf-
anir auðvaldsins duga
ekki til þess að losna
út úr kreppunni. Það
hyggur á nýja skift-
ingu markaðsins og
hráefnalindanna, og
fyrst og fremst árásar-
stríð á Sovétlýðveldin.
Kreppan er því orðin
óleysanlegá „friðsam-
legan” hátt fyrir auð-
valdið. Ný heimsstyrjöld stendur
óhjákvæmilega fyrir dyrum. þess
vegna er líka hernaðarundirbún-
ingur stórveldanna æðisgengnari
en nokkru sinni fyr.
Jafnhliða hinni sívaxandi stríðs-