Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - Mar 2006, Page 2
2
Kæru félagar.
Nú þegar vetur er kaldur og ónotalegur
við okkur lungnasjúklinga, finnst mér
mjög gott að vita til þess að við eigum
skjól og yl í Síðumúla 6 á mánudögum.
Það er nú einu sinni þannig að maður er
manns gaman. Stundirnar sem við
eigum saman þar eru öllum til mikillar
ánægju, því fleiri því betra.
En öll él birtir upp um síðir og nú er
komið að því að hugsa til vorsins og
sumarsins. Samtökin verða með tvo
fræðslufundi, annan í febrúar um þung-
lyndi og þann síðari í mars, um bakflæði.
Báðir mjög athyglisverðir og eiga erindi
til okkar allra. Aðalfundurinn verður svo
4. maí kl. 20 að Síðumúla 6.
Okkur var gefin plöstunarvél til þess að
útbúa félagsskírteini sem við höfum
mikinn áhuga á að drífa í sem fyrst.
Þetta skírteini komum við til með að
sýna í Lyfju til þess að fá afsláttinn sem
þeir eru svo rausnarlegir að veita okkur.
Er þá miðað við þá sem greiða
félagsgjaldið. Um leið og félagsgjaldið
Formannsspjall
er greitt þá fær viðkomandi skírteinið
sent um hæl.
Ég vil einnig minna ykkur á að mynd-
bandið Tímasprengja í heilbrigðiskerf-
inu er til á skrifstofu SLS og er hægt að
nálgast það á mánudögum kl. 16 – 18,
eða í síma 8474773.
Ég vil einnig minna ykkur á minningar-
kortin okkar, þau er einnig hægt að
nálgast á sama stað og síma.
Nýtt: Framvegis á mánudögum kl. 16
verður öllum aðildarfélögum SÍBS heim-
ilt að koma í kaffi og spjalla, og hitta
aðrar deildir, vonandi sjá sem flestir sér
fært að mæta og hafa gaman af. Óska
öllum góðs heilsufars og gæfu á árinu.
Jóhanna Pálsdóttir, formaður
Nýtt!
Mánudaginn 20. febrúar kl. 16 verður opið hús fyrir alla félagsmenn allra deilda
(aðildarfélaga) SÍBS að Síðumúla 6 (gengið inn á bak við húsið). Þannig verður það í
framtíðinni alla mánudaga, nema annað sé auglýst sérstaklega.
Nýtt!
Samtökin eru komin með nýja heimasíðu, endilega skoðið hana: www.lungu.is
Fræðslufundir:
Fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20 í SÍBS húsinu að Síðumúla 6 (gengið inn á bak við húsið)
Hörður Þorgilsson sálfræðingur talar um vanlíðan í kjölfar veikinda.
Fimmtudaginn 16. mars kl. 20 í SÍBS húsinu að Síðumúla 6 (gengið inn á bak við húsið)
Sigurbjörn Birgisson, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum talar um bakflæði.
Allir hjartanlega velkomnir!
kveðja Jóhanna
A U G L Ý S I N G A R