Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - Mar 2006, Page 4

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - Mar 2006, Page 4
4 SAMTÖK LUNGNASJÚKLINGA Fréttabréf 1.tbl.9.árgangur mars 2006 Samtök lungnasjúklinga, Síðumúla 6, 108 Reykjavík, sími 552-2154 Heimasíða: www.lungu.is Netfang: lungu@sibs.is Ábyrgðarmaður: Jóhanna Pálsdóttir AstraZeneca styrkir útgáfu þessa fréttabréfs Þú kannast kannski við þetta, en hvað er til ráða? Ráðin eru mörg og þú hefur sennilega fundið einhverjar leiðir til að minnka mæðina. Mig langar að tæma úr reynslubrunninum sem sjúkraþjálfari og segja þér hvað hefur reynst mínum sjúklingum best og hvað þeir segja að þurfi að varast. Flestir reyna að forðast mæðina með því að hreyfa sig minna. Það reynist oft vel í byrjun en síðan syrtir í álinn; mæðin kemur við minni og minni áreynslu. Á þessu stigi verða margir vonlitlir, hætta að fara út og hafa tilhneigingu til að einangra sig heima, hreyfa sig minna og minna og verða móðari og móðari. Til að losna úr þessum vítahring er besta leiðin að hreyfa sig meira en ekki minna. En það er svo erfitt, ég verð svo móð/ur að mér finnst ég vera að kafna. Þetta segja mjög margir, en það er hægt að þjálfa sig án þess að verða mjög móður. Þeir sem hafa reynt og náð tökum á því hafa stutt mig í því að kenna þessar aðferðir. Best er að kunna og hafa gott vald á því sem við köllum þindaröndun. Það er meðvituð öndun í neðsta hluta lungn- anna. Hún er gerð þannig að kviðurinn lyftist fram þegar andað er inn, eða neðstu rifin þenjast út til hliðanna í innöndun. Þjálfunin getur falist í göngu, sundi eða þeirri hreyfingu sem þér finnst skemmti- leg. Ráðlegt er að byrja rólega án þess að mæðast. Best er að anda inn um nefið og út um munninn. Þegar þú finnur að öndunin verður aðeins hraðari, þá setur þú stút á munninn og andar þannig frá þér. Mjög mikilvægt er að þvinga ekki útöndunina, heldur hafa hana meira en helmingi lengri en innöndunina. Anda inn á 2 töktum gegnum nef og út á 5-6 töktum gegnum hálflokaðar varir. Þegar þú missir tökin á þessari öndun ertu að fara of hratt! Þá skaltu fara þér hægar og stoppa ef það dugar ekki. Þegar þú hefur aftur náð tökum á önduninni er kominn tími til að halda af stað að nýju. Ekki gefast upp í fyrstu atrennu. Þetta tekur tíma. Best er að byrja heima í stofu, anda í takt við skrefin og nota stút á varirnar í útöndunni. Að telja taktinn í huganum hefur hjálpað mjög mörgum. Þegar þú ert orðin/n það góð/ur í önduninni að þú treystir þér út, mundu þá eftirfarandi: • Borðaðu reglulega en þjálfaðu ekki fyrr en a.m.k. 1 klst. eftir máltíð • Þjálfaðu 3-5 sinnum í viku • Farðu hægar í kulda og miklum hita • Hafðu trefil eða grímu fyrir vitum í roki og kulda og húfu á höfði • Þegar þú gengur úti áttu eftir að fara til baka - ekki fara of langt í einu! • Byrjaðu rólega og endaðu rólega. Gangi þér vel, Jóhanna M Konráðsdóttir, sjúkraþjálfari LSH Fossvogi og HL stöðinni í Reykjavík. Alveg sama hvað ég rembist, ég get ekki andað meira inn! Hvað get ég gert við þessari endalausu mæði? Hreyfing - öndun Frá aukaþingi 2005

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.