Víkurfréttir - 27.05.2021, Blaðsíða 14
„Ég verð að segja að ég hef alltaf verið góður námsmaður.
Ég er hálfgerður fullkomnunarsinni. Ég er mjög skipulögð og
legg 100% metnað í allt sem ég tek mér fyrir hendur,“ segir
María Tinna Hauksdóttir, dúx frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja
á vorönn 2021. María var í góðum hópi góðra nemenda en tíu
þeirra voru með meðaleinkunn yfir níu á vorönn.
– Hvað er svo eftirminnilegast eftir
námið í FS, námslega séð og félags-
lega séð?
„Það sem mér finnst eftirminnilegast
úr FS námlega séð voru skemmti-
legir kennarar, fjölbreytt og krefjandi
nám þar sem ég gat valið úr mörgum
mismunandi áföngum og raðað
niður á annir eftir mínum þörfum.
Félagslega séð þá standa böllin og
skemmtikvöldin upp úr. Því miður
var minna um félagslíf eftir að covid
byrjaði.“
María Tinna Hauksdóttir
er dúxinn á vorönn í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Dúxinn dansar og
vill verða grunn-
skólakennari
– Hvernig var að útskrifast á tímum
Covid-19?
„Covid-19 breytti heilmiklu í hvernig
náminu var háttað. Námið fór meira
fram í fjarnámi og gekk það mjög vel
þar sem ég er frekar skipulögð. Það
var leiðinlegt að geta ekki mætt í
skólann því fjarnámið tók í burtu öll
bein samskipti, sérstaklega við kenn-
arana. Útskriftardagurinn var mjög
skemmtilegur þó það hefði verið
skemmtilegra að foreldrarnir fengju
að vera viðstaddir.“
– Áttirðu von á því að verða dúx?
„Ég vissi að ég væri með góðar ein-
kunnir, en ég vissi ekki stöðu ann-
arra nemenda þannig ég gat ekki
gert ráð fyrir því. En þetta var mjög
skemmtilegur endir á útskriftarat-
höfninni.“
– Einhver uppáhaldsfög?
„Já, auðvitað eru alltaf einhver fög
sem standa upp úr og verð ég að
nefna félagsfræði og spænsku sem
ein af mínum uppáhaldsfögum. Ég
hafði samt sem áður mjög gaman af
mörgum öðrum fögum.“
– Framtíðaráform, draumastarf?
„Planið núnar er að fara í Háskóla
Íslands í haust og læra grunnskóla-
kennarann. Ég hlakka mikið til að
takast á við þær áskoranir sem það
mun veita mér. Einnig langar mig að
sinna danskennslu í framtíðinni.“
– En sumarið, hvernig verður það?
„Ég er að vinna á leikskóla í sumar
og svo eru strangar æfingar hjá mér
í samkvæmisdansinum og gera mig
tilbúna fyrir keppnir haustsins.
Stefnan er sett á að komast erlendis
í ágúst til að keppa í einni stærstu
keppni í heimi. Öruggt er að það
verður nóg hjá mér að gera næsta
vetur.“
– Þú hefur verið dugleg í dansi?
„Já, ég hef verið í keppnisdansi síðan
ég var ung. Ég er í A-landsliði Ís-
lands og hef verið það í sex ár. Ég er
margfaldur Íslandsmeistari og bikar-
meistari í mínum aldursflokkum og
ég sérhæfi mig í „ballroom“-dönsum.
Ég ferðast mjög mikið og keppi er-
lendis fyrir hönd Íslands.
Af árangri mínum erlendis má
helst nefna þriðja sæti á heims-
meistaramóti, þrefaldur Norður-
landameistari, úrslit á Evrópumeist-
aramóti ásamt því að vera í sjöunda
sæti á einni stærstu og virtustu
keppni í heimi: The British Open í
Blackpool í U21 ballroom. Einnig
fékk ég og herrann minn, Gylfi Már,
þann heiður að komast á meðal 44
bestu dansara í heimi í flokki full-
orðinna á The International Cham-
pionships og fengum því að keppa
á lokakvöldinu í The Royal Albert
hall. Núna í Covid höfum við ekkert
gefið eftir og verið í Zoom-kennslu
og æfingum til að vera tilbúin þegar
allt opnast á ný,“ segir dansarinn og
dúxinn María Tinna.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
María Tinna Hauksdóttir,
dúx frá FS á vorönn 2021.
VF-mynd/Oddgeir Karlsson.
TRYGGJUM
BARÁTTUMANNI
3. SÆTIÐ
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
29. maí 2021
Guðbergur
Reynisson
14 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár