Morgunblaðið - 17.03.2021, Page 6

Morgunblaðið - 17.03.2021, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021VIÐTAL „Í grunninn má þó segja að það hafi skort skýra sýn á hlutina. Það var verið að vinna í of mörgu og á sama tíma og ráðist var í yfirtökur á fyrirtækjum virðist ekki hafa tekist að sameina fyrirtækin og þau grunnkerfi sem þau notuðu í eitt. Þau urðu í raun dýrari í rekstri en þau voru fyrir kaupin. Markmiðið með kaupum af þessu tagi er alltaf það að reka sameinað fyrirtæki með minni kostnaði.“ Verðmatið fjarri veruleikanum nú Þegar hugmyndir komu upp um að selja Val- itor eða greiða fyrirtækið jafnvel út til hluthafa Arion banka í formi arðs mætti það mikilli and- stöðu víða í samfélaginu, m.a. meðal þingheims en á þeim tíma var íslenska ríkið hluthafi í bank- anum. Voru í ræðustól Alþingis nefndar tölur sem bentu til þess að Valitor væri jafnvel 60 til 70 milljarða virði. Blasir nú nokkuð önnur mynd við og félagið er nú metið á 8,5 milljarða króna í bókum Arion banka. Telur þú að slíkt verðmat hafi átt rétt á sér á sínum tíma? Það var ekki laust við að margir hrykkju við um mitt síðasta ár þegar tilkynnt var að kortafyrir- tækið Valitor hefði tapað nærri 10 milljörðum á árinu 2019. Hvernig gat fyrirtæki sem lengst af var álitið nærri því að teljast peningaprentunar- vél fyrir eigendur sína tapað slíkum fjármunum? Ástæðnanna var að leita í mörgum samverkandi þáttum, slæmum ákvörðunum og breytingum á aðstæðum á markaði. Staðreyndin var hins veg- ar sú að Valitor hafði brennt peningum allt frá árinu 2014 og þótt uppi hafi verið stór áform um gríðarlegan vöxt á erlendum mörkuðum virtist fyrirtækinu alls varnað þegar kom að því að skapa tekjur umfram þann kostnað sem stofnað var til. Í árslok 2019 var Herdís Dröfn Fjeldsted kos- in í stjórn Valitor ásamt tveimur öðrum ein- staklingum. Hún kom að félaginu í gegnum stjórnarstörf á vettvangi Arion banka þar sem hún sat á þeim tíma. Hún gerði sér grein fyrir því að fyrirtækið var í kröggum og var farið að valda stjórnendum bankans hugarangri. Hún viðurkennir þó að það sem hafi blasað við þegar tekið var að kafa ofan í starfsemina hafi verið stærra í sniðum og alvarlegra en hana hafði órað fyrir. „Við gerðum okkur í raun grein fyrir því mjög fljótt að það yrði að taka hart í handbremsuna ef ekki ætti illa að fara. Búið var að ganga á mest- allt lausafé félagsins og það gekk illa að stöðva útflæði fjármagns. Stjórnin gekk því hreint til verks ásamt stjórnendum fyrirtækisins í árslok 2019.“ Úr stjórnarsæti í forstjórastól Þremur mánuðum síðar var Herdís Dröfn orð- in forstjóri fyrirtækisins – nokkuð sem hún hafði aldrei ætlað sér. Reynsla af breytingastjórnun og endurskipulagningu fyrirtækja á vettvangi Framtakssjóðs Íslands, hvar hún var fram- kvæmdastjóri frá 2014 til 2018, kom sér vel í þeim aðstæðum sem þarna höfðu teiknast upp. „Við réðumst í algjöra uppstokkun á fyrir- tækinu. Það voru einingar inni í fyrirtækinu sem brenndu gríðarlegum fjármunum og toguðu arð- samar einingar í starfseminni niður með sér.“ Þar vísar Herdís í rekstrareiningar eða fyrir- tæki sem Valitor hafði keypt í eins konar útrás á árunum á undan, bæði í Bretlandi og Danmörku. „Starfsemina í Danmörku seldum við strax í maí 2020 og tengda starfsemi í Bretlandi tveim- ur mánuðum síðar. Við erum enn með starfsemi í Bretlandi en hún er á sviði færsluhirðingar og sölu og leigu á posum. Skömmu eftir að ég kom inn í stjórnina fengum við í hendur skýrslu sem sýndi að lausnin sem búið var að verja millj- örðum króna í var ekki skalanleg, þ.e. að hana var aðeins hægt að nýta í þjónustu við stærri fyrirtæki en ekki lítil og meðalstór fyrirtæki eins og þau sem við erum helst að þjónusta. Það sem var enn alvarlegra var sú staðreynd að þjón- ustan sem þessi lausn átti að veita var sams kon- ar og sú þjónusta sem við veittum þegar og erum raunar enn að veita á grundvelli annarrar lausn- ar sem virkar vel.“ Spurð hvað hafi farið úrskeiðis á vettvangi Valitor segir Herdís að erfitt sé að henda reiður á einhverju einu tilteknu atriði sem rekja megi allar ófarir fyrirtækisins til. „Það voru uppi mikil áform um mikinn vöxt og á einhverjum tímapunkti hafa þeir sem að fyrir- tækinu stóðu metið það svo að ef hlutirnir gengju upp yrði félagið afar verðmætt. Það má ekki gleyma því að stjórnendur fyrirtækisins voru ekki einir á þessari vegferð. Þeir nutu stuðnings eigandans á þeim tíma. En hlutirnir fóru hins vegar ekki eins og lagt var upp með.“ Það voru ekki aðeins vonbrigðin með lausnina sem ekki reyndist unnt að skala. Áskoranirnar voru fleiri og birtust m.a. í því að stærsti við- skiptavinur fyrirtækisins í færsluhirðingu ákvað að sinna þeirri þjónustu af eigin rammleik árið 2018. Þá stóð fyrirtækið einnig frammi fyrir sí- fellt harðari samkeppni á sviði greiðslumiðlunar á öllum mörkuðum og reyndi sú staða mjög á framlegð af starfseminni. Drógust tekjur félags- ins saman um nærri 4,5 milljarða króna milli ár- anna 2018 og 2019 og stóðu í tæpum 16 millj- örðum síðarnefnda árið. „Aðgerðirnar sem við gripum til voru afger- andi og sársaukafullar. Það birtist m.a. í því að starfsfólki fyrirtækisins hefur fækkað úr ríflega 400 í rúmlega 200. Að stórum hluta tengist fækk- unin sölu fyrirtækjanna í Danmörku og Bret- landi en við höfum einnig þurft að laga okkur að nýjum veruleika í áframhaldandi starfsemi,“ segir Herdís. Öllum steinum velt við „Við endurnýjuðum framkvæmdastjórn fyrir- tækisins skömmu eftir að ég tók við forstjóra- stólnum. Við ákváðum að fara þá leið að leita að framtíðarstjórnendum í fyrirtækinu sjálfu í stað þess að fara út fyrir fyrirtækið. Eitt af því sem maður horfir til í endurskipulagningu er mann- auður fyrirtækisins og hér hjá Valitor vorum við svo heppin að hafa á að skipa frábæru starfs- fólki. Í framkvæmdastjórn eru nú einstaklingar sem allir hafa góða og langa starfsreynslu hjá Valitor. „Við þurftum að velta við öllum steinum. Það létti undir eftir að sölurnar í Danmörku og Bret- landi gengu í gegn. Það stöðvaði útflæðið og þá Hafa snúið stöðunni Val Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það hefur reynst nauðsynlegt að taka margar afdrifaríkar ákvarðanir á vettvangi Valitor síðustu misserin í þeirri viðleitni að snúa miklum tap- rekstri við. Herdís Dröfn Fjeldsted fékk það verkefni í fangið á liðnu ári að veita fyrirtækinu forystu og hún segir áskoranirnar hafa verið marg- ar og spennandi. Vel hafi tekist til og fyrirtækið sé hætt að brenna pen- ingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.