Morgunblaðið - 17.03.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.03.2021, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021SJÓNARHÓLL EGGERT Á mánudaginn bárust okkur þau gleðitíðindi að Gísli Darri Halldórsson hefði verið til- nefndur til Óskarsverðlaunanna sem afhent verða 26. apríl næstkomandi. Tilnefninguna hlaut hann fyrir stuttmynd sína um Já-fólkið og getur með sigri fetað í fótspor Hildar Guðnadóttur sem tók Óskarsverðlaunastyttuna með sér heim af hátíð- inni í fyrra. Eflaust eru fáir verðlaunagripir þekktari en stytt- an af honum Óskari. Við tengjum hann við glys og glamúrlíf fræga fólksins í Hollywood, geðshræringu verðlaunahafa og sem vitnisburð um yfirburði hinna fremstu á hvíta tjaldinu. Þegar Hildur mundaði gripinn á sviðinu í fyrra var það staðfest- ing kvikmyndaaka- demíunnar á því að hún stóð öðrum tón- skáldum framar það kvikmyndaárið. En það býr þó meira að baki. Það var árið 1928, á hápunkti Art Deco- tímabilsins, sem list- rænn stjórnandi kvik- myndaversins Metro- Goldwyn-Meyer, Cedr- ic Gibbons, lét móta styttu eftir teikningu sinni. Myndhöggvarinn George Stanley sló 15 slíkar sem ári síðar voru afhentar þeim sem bera þóttu af á sínu sviði í kvikmyndagerð við fyrstu verðlaunaafhendingu kvikmyndaakademíunnar í Los Angeles. Sagan segir að það hafi verið árið 1934 sem starfsmaður akademíunnar, Margret Herrick, hafði orð á því að kappinn minnti á Óskar frænda hennar. Hvort sem einhver fótur er fyrir því hefur hann formlega verið kallaður því nafni frá 1939. Verðlaunaflokkum hefur fjölgað með árunum og í dag eru um 50 Óskarar veittir ár hvert og í heildina eru á fjórða þúsund þeirra á arinhillum víða um heim, þar á meðal hjá Hildi okkar Guðnadóttur, sem enn er eini Íslendingurinn sem unnið hefur til þeirra verðlauna. Ég kannaði hvort einhver Óskar hafi fengið Óskar og sýnist það einungis hafa verið tónskáldið Oscar Hammerstein, sem vann tvo nafna sína árin 1941 og 1946. En hversu verðmæt er styttan sjálf? Því er í raun ekki auðsvarað. Verðmæti hennar verður tæplega mælt í hráefnunum eingöngu en ef svo væri kæmi upphæðin ef til vill nokkuð á óvart. Þó svo hún glansi skínandi gulli er einungis um húð að ræða. Uppistaðan er brons, samsuða kopars og tins og kostnaður hverrar og einnar í námunda við 60.000 íslenskar krónur, það er allt og sumt. Úr skíragulli væri hún ekki bara níu kíló- grömm (líkt og þokkalegasta ketilbjalla) heldur kostaði um 30 milljónir króna. Verð- launahafar færu því heim með einn og hálfan milljarð króna ár hvert. Eins og gefur að skilja hefur þýðing, tilefni og saga einstakra verðlauna þau áhrif að margir væru til- búnir að greiða meira en 60.000 kr. fyrir gripinn. Leikstjórinn og kvikmynda- gerðarmaðurinn Steven Spielberg, sem unnið hefur þrjá sjálfur og verið til- nefndur 14 sinnum að auki, keypti þannig Óskar leikkon- unnar Bette Davis frá árinu 1938 á yfir 100 milljónir króna upp úr aldamótum. Verðlaunin hlaut Davis fyrir leik sinn í myndinni Jezebel og var það í annað sinn sem hún fór með sigur af hólmi. Átta sinnum var hún tilnefnd í kjöl- farið en aldrei kom þriðji Óskarinn. Í dag er þó víst bannað að selja hann Óskar nema akademíunni sé boðið að nýta forkaupsrétt sinn og henni nægir að bjóða einn bandarískan dollar. Hvert myndum við þá segja að sé raunverulegt verðmæti gripsins? Einn dollar? 60.000 krónur? 100 milljónir? Nei, ætli það sé ekki fyrst og fremst mælt í útbelgdu stolti eigandans? VIÐSKIPTI OG MENNING Björn Berg Gunnarsson deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka Óskarsverðlaunin ” Leikstjórinn og kvikmynda- gerðarmaðurinn Steven Spiel- berg, sem unnið hefur þrjá sjálfur og verið tilnefndur 14 sinnum að auki, keypti þannig Óskar leikkonunnar Bette Davis frá árinu 1938 á yfir 100 milljónir króna upp úr aldamót- um. Verðlaunin hlaut Davis fyr- ir leik sinn í myndinni Jezebel og var það í annað sinn sem hún fór með sigur af hólmi. Á ári hverju gefur tímaritið Drinks International út lista yfir dáðustu kampavínshús heimsins. Listans er alla jafna beðið með mikilli eftir- væntingu enda hreyfingin innan hans oft talsverð milli ára. Ekki liggja neinar vísindalegar rann- sóknir að baki því hvernig húsin raðast á listann en það dregur ekki úr gildi hans. Því ræður sú stað- reynd að röðunin ræðst af niður- stöðu nærri 300 manna dómnefnd- ar sem tímaritið leitar til hverju sinni. Í þeim hópi er að finna vín- sérfræðinga, vínþjóna, umboðsaðila og innflutningsfyrirtæki auk blaða- manna sem sérhæfa sig í skrifum um vín. Í vinnu sinni við mat á húsunum líta dómnefndarmeðlimir ekki síst til gæða og stöðugleika víngerð- arinnar og er sérstök áhersla lögð á að horfa til fjölárgangavína (non vintage) en þeim er oftast ætlað að bera sömu birtu í brjóst neytenda, ár eftir ár. Þá er dómnefndinni uppálagt að líta til umbúða og markaðssetningar vínsins og hvort hún sé í samræmi við stöðu við- komandi húss á markaðnum. Í þriðja lagi þarf dómnefndin að svara hinum einföldu spurningum: er húsið dáð og virt? Nýlega var listinn fyrir árið 2021 gefinn út og annað árið í röð trónir þar Louis Roederer á toppnum. Góðu fréttirnar fyrir Íslendinga eru þær að undir lok síðasta árs gerði heildsalan AFF Blitzz ehf. vínin frá LR aðgengileg í gegnum Vínbúðirnar. Fjölárgangavínin frá húsinu eru mikil gæðavín og ljúf- feng. Þá kemur einnig úr smiðju hússins hið goðumlíka Cristal- kampavín sem oftar en einu sinni hefur verið gert að umtalsefni á þessum vettvangi. Í öðru sæti situr svo Pol Roger sem færir sig upp um eitt sæti milli ára og er vel að því komið. Húsið verður í sérstöku heiðurs- sæti á Kampavínsdögum á Vox í apríl næstkomandi. Frægast hefur húsið orðið fyrir dálæti Winstons Churchills á því. Það breytir þó ekki því að eitt og sér, og án for- sætisráðherrans heitna, stendur húsið vel undir því að verma þetta sæti svo ofarlega á listanum. Í þriðja sæti er svo Krug en af Elskuðustu kampavíns- hús heimsins þetta árið HIÐ LJÚFA LÍF augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.isL Opið virk a dag a frá 9-18 lau f rá 1 0-16 Vefverslun brynja.is Yfir 20 gerðir til á lager Verð frá 10.260,- Vandaðir póstkassar frá

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.