Morgunblaðið - 17.03.2021, Page 11

Morgunblaðið - 17.03.2021, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021 11FRÉTTIR Undanfarin ár hefur Kristinn verið með mörg járn í eldinum. Síðasta sumar var hann ráðinn til Sotheby‘s-uppboðshússins og á dögunum var hann skipaður for- maður stjórnar nýja sprota- og nýsköpunarsjóðsins Kríu. Hverjar eru helstu áskor- anirnar í nýsköpunargeiranum þessi misserin? Það er mjög margt gott að gerast í nýsköpunarumhverfinu og mikilvæg hugarfarsbreyting hefur átt sér stað, að mér finnst, á mörgum sviðum samfélagsins. Fólk skilur betur að þær at- vinnugreinar sem eiga það sam- eiginlegt að vera byggðar á hug- viti og snúast að langmestu leyti um útflutningi eru komnar til að vera og eru mikilvægar. En það er áskorun að uppbygging á sjálfbæru langtímaumhverfi sem byggir á þessum nýrri atvinnu- greinum tekur tíma. Það er ekk- ert „quick fix“ og fólk er oft að leita að því: einföldum og hröðum lausnum við flóknum vanda- málum. Við þurfum að vera þol- inmóð hvað varðar þá uppbygg- ingu. Hver var síðasti fyrirlesturinn sem þú sóttir? Seinasti fyrirlestur sem ég sótti var fundur FVH um leikja- iðnaðinn á Íslandi og mér fannst hann frábær. Ég tók þátt í að skipuleggja viðburðinn og er því kannski hlutdrægur. Ég fer lítið á ráðstefnur, finnst betra að læra og heyra um nýja hluti á aðra vegu – með því að lesa og fylgj- ast með sjálfur, eða í gegnum samtöl við áhugavert fólk. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? High Output Management eftir Andy Grove er besta bók um stjórnun sem ég hef lesið og ég gríp oft í hana, en beinustu áhrif- in á hvernig ég starfa koma hjá mér yfirleitt í gegnum samstarf við aðra, t.d. fyrrum yfirmenn eða samstarfsaðila, þar sem ég sé ákveðnar aðferðir eða hug- myndafræði í notkun og get þá dregið ályktanir byggt á því. Ég les einnig þó nokkuð af frétta- bréfum, t.d. Stratechery eftir Ben Thompson, sem fer yfir stóru myndina í tækniheiminum á heimsvísu og rammar inn á góðan hátt þær breytingar sem eru að eiga sér stað. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég reyni að lesa mikið, bæði beintengt mínum verkefnum og áskorunum í stafrænni vöruþró- un, stafrænni umbreytingu fyrir- tækja og því tengdu, en finn oft jafn mikinn eða meiri innblástur í óbeinum tengingum úr öðrum greinum, hvort sem það er eðlis- fræði (skammtafræði sérstak- lega), skógrækt (mæli með Hid- den Life of Trees) eða ævisögum – finnst mjög gaman að læra og fá hugmyndir í gegnum upplif- anir annarra. Hugsarðu vel um líkamann? Ekki nógu vel. Reyni að hlaupa og lyfta regulega en það kemur og fer með álagstímum. Reyni að borða alla vega vel. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Geimfari. Því til að vera geim- fari þarf maður að vera í ofboðs- lega góðu formi og mjög klár í einhverri raungrein. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Fer að öllu leyti eftir því hverju ég væri að leitast eftir með því að bæta við mig gráðu. Ég hef ekki trú á því að gráður séu markmið í sjálfu sér, heldur reyni ég að temja með mér það að læra í og með vinnu án þess að námið sé endilega formlegt. Ef (og þegar) ég fer aftur í há- skóla til að læra verður það lík- lega tengt einhverju sviði sem ég hef mikinn áhuga á að læra meira um og þar sem formlegt nám er líklegasta leiðin til árang- urs. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Ég stóla á tvennt: samstarfs- fólk og framtíðarsýn. Best af öllu er samstarfsfólk með stóra framtíðarsýn því það skiptir miklu að vita hvert maður er að stefna. SVIPMYND Kristinn Árni Lár Hróbjartsson stjórnarformaður Kríu Uppbygging sem kallar á þolinmæði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þýski ferðatöskuframleiðandinn Ri- mowa hefur líklega átt frekar erfitt ár enda lítil eftirspurn eftir töskum í kórónuveirufaraldri. Þar er kannski komin skýringin á því að hönnuðir Ri- mowa ákváðu að skapa þessa agnar- smáu ferðatösku sem er ætluð til dag- legs brúks innanbæjar frekar en fyrir ferðalög langt út í heim. Það er hluti af tilveru margs skrif- stofufólks að burðast með skjöl og ýmislegt smálegt til og frá vinnu og í fjármálahverfum erlendra stórborga er algengt að sjá jakkafataklædda sérfræðinga á harðahlaupum með handfarangurstöskur í eftirdragi. Rimowa Essential Sleeve Compact er sniðin að þörfum þessa hóps: minni en venjuleg handfarangurstaska en nógu stór til að rúma netta fartölvu, nokkur bréfabindi, gott nesti eða strigaskó og tilheyrandi fyrir líkams- ræktina. ai@mbl.is Rimowa fyrir stússið malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum NÁM: Stúdent frá MH. BS í viðskiptafræði frá HÍ; útskrifaðist 2014, eitt ár í skiptinámi (2012-13) í Texas Tech University. STÖRF: Byrjaði ferilinn hjá QuizUp 2014 og var undir lokin rekstrarstjóri þar til við lokuðum 2016. Stofnaði Northstack 2015 og hef rekið meðfram öðrum störfum síðan, og verið í ýmsum greiningar- og ráðgjafahlutverkum tengdum því. Ráðgjafi og teymisþjálfi hjá Kolibri 2016-2018; greinandi hjá fjárfest- ingasjóðnum Nordic Makers 2017; rekstrarstjóri hjá Gangverki 2018-2020; forstöðumaður vöruþróunar hjá Sotheby‘s í New York frá ágúst 2020; stjórnarformaður Kríu, sprota- og nýsköp- unarsjóðs frá mars 2021. Sit í stjórn Félags viðskipta- og hag- fræðinga og í stjórn Nemenda- og hollvinasambands MH. ÁHUGAMÁL: Myndlist, nýsköpun, nýsköpunarumhverfi og op- inber stefna tengd málaflokknum, vísindaskáldskapur, matur, ferðalög og skógrækt. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Sunnu Karen Einarsdóttur kór- stjóra. HIN HLIÐIN „Ég hef ekki trú á því að gráður séu markmið í sjálfu sér,“ segir Kristinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.