Morgunblaðið - 25.03.2021, Side 2

Morgunblaðið - 25.03.2021, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 1 1 4 4 2 2 5 5 3 3 6 6 7 7 A A B B C C D D E E 2019 - 2022 Mannvit veitir ráðgjöf og þjónustu á sviði verkfræði, tækni og nýsköpunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur verkfræðinga og tæknimenntaðs starfsfólks með fjölbreytta reynslu. Mannvit er metnaðarfullur og skemmtilegur vinnustaður þar sem starfsfólki líður vel og hefur tækifæri til að móta framtíðina. Sérfræðingur á sviði innivistar og sjálfbærni Mannvit óskar eftir að ráða hönnuð á sviði húsbygginga með sjálfbærni að leiðarljósi. Menntunar- og hæfnikröfur: • Verk- eða tæknimenntun á sviði húsbygginga. • Þekking og áhugi á innivist bygginga almennt s.s. loftgæðum og byggingareðlisfræði. • Þekking á aðferðum til að meta orkunýtingu, varma- og rakaflæði bygginga æskileg. • Þekking á lífsferilsgreiningum og líftíma kostnaðargreiningum æskileg. • Þekking og áhugi á umhverfisvottunum svo sem BREEAM og Svansvottunum æskilegur. • Verkreynsla er ekki skilyrði, ef viðkomandi getur sýnt fram á að hafa kynnst sem flestum af ofangreindum þáttum í námi. • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni í mannlegum samskiptum. Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2021. Nánari upplýsingar veitir Einar Ragnarsson, sviðsstjóri mannvirkja og umhverfis í síma 422 3015. Loftræstihönnuður Mannvit óskar eftir að ráða hönnuð á sviði lagna- og loftræstinga í höfuðstöðvar okkar í Kópavogi. Fram undan eru skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni. Menntunar- og hæfnikröfur: • Iðnmenntun og/eða menntun á sviði verkfræði eða tæknifræði, framhaldsmenntun kostur. • Æskilegt að viðkomandi hafi starfsreynslu af loftræstihönnun. • Reynsla í hönnun loftræstikerfa í Revit og/eða MagiCad er kostur. • Reynsla af hönnunarstjórn og verkefnastjórn er kostur. • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni í mannlegum samskiptum. Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2021. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Sverrir Gunnarsson, sviðsstjóri véla og iðnaðarferla í síma 422 3088. Viltu vera hluti af sterkri liðsheild? Stafræn framtíð Við leitum að reyndum stjórnanda sem býr yfir: • Framsýni, metnaði, samskipta- og skipulagsfærni • Árangursríkri reynslu af stjórnun • Færni í að skapa liðsheild ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu hugarfari • Árangursríkri reynslu af stefnumótun og áætlanagerð • Háskólaprófi sem nýtist í starfi ásamt meistaraprófi eða mikilli reynslu sem nýtist í starfi • Góðri færni í íslensku og ensku í ræðu og riti • Þekking og reynsla af fjarskipta- og netöryggismálumæskileg • Reynsla á sviði nýsköpunar og tækni æskileg • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið leitar að stjórnanda sem hefur brennandi áhuga, þekkingu og/eða reynslu af stafrænni þróun til að stjórna skrifstofu stafrænna samskipta hjá ráðuneytinu. Hlutverk skrifstofunnar er að leiða og styðja við stafræna þróun í samfélaginu m.a. með mótun og eftirfylgni stefnu á sviði fjarskipta- og upplýsingatækni þar með töldum netöryggismálum. Þá krefjast verkefni skrifstofunnar töluverðra alþjóðasamskipta. Við leitum að einstaklingi sem vill ná árangri fyrir samfélagið með því að mæta áskorunum og nýta tækifæri sem fylgja stafrænum samskiptum og fjarskiptatækni. Umsóknarfrestur er til ogmeð föstudagsins 9. apríl. Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfimeð upplýsingum um ástæðu umsóknar og þann árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist embættinu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, ragnhildur.hjaltadottir@srn.is eða 545-8200. Umsóknum skal skila rafrænt á starfatorg.is Skipað verður í embætti skrifstofustjóra til fimm ára frá og með 1. júní nk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.