Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 6

Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 kopavogur.is Leikskólastjóri í leikskólann Arnarsmára Leikskólinn Arnarsmári er 5 deilda leikskóli sem stendur á Nónhæð. Í leikskólanum er starfað samkvæmt Uppbyggingarstefnunni og einkunnarorð hans eru frumkvæði, vinátta og gleði. Mikil og virk útikennsla ein- kennir Arnarsmára, sem og áhersla á dyggðir, stærðfræði, læsi og virðingu fyrir umhverfinu. Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega for- ystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsmenn, forráðamenn og leikskóladeild. Menntunar- og hæfniskröfur · Kennaramenntun og leyfisbréf kennara · Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla · Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða · Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum · Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi · Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi · Góð tölvukunnátta · Góð íslenskukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2021. Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningavef Kópavogsbæjar. Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is kopavogur.is Leikskólastjóri í leikskólann Álfatún Leikskólinn Álfatún er staðsettur í skjólsælum reit austast í Fossvogsdalnum og er í beinum tengslum við útivistarsvæðin í dalnum. Í leikskólanum er mikil áhersla lögð á málörvun, hreyfingu og skapandi starf. Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega for- ystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsmenn, forráðamenn og leikskóladeild. Menntunar- og hæfniskröfur · Kennaramenntun og leyfisbréf kennara · Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla · Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða · Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum · Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi · Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi · Góð tölvukunnátta · Góð íslenskukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2021. Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningavef Kópavogsbæjar. Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is. Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR Úthlutað verður í ár tæp- lega 1,6 milljörðum króna úr Landsáætlun um uppbygg- ingu innviða og Fram- kvæmdasjóði ferðamanna- staða sem gerir kleift að halda áfram að byggja upp innviði á ferðamannastöðum. Þetta kom fram á fundi í vikunni þar sem Þórdís Kolbrún Reyk- fjörð Gylfadóttir ferða- málaráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverf- isráðherra kynntu áherslur ársins í úthlutun fjármuna til uppbyggingar innviða, nátt- úruverndar og annars slíks. Innviðir bættir Mikill árangur hefur náðst frá síðustu úthlutun í að bæta innviði um land allt og auka getu svæðanna til að taka á móti ferðamönnum, segir í til- kynningu. Árið 2020 var metár með tilliti til umfangs fram- kvæmda á ferðamannastöðum. Meðal verkefna sem farið var í var gerð gönguleiða og bíla- stæða við Jökulsárlón, kamra við Dettifoss og fráveita í Skaftafelli. Þá var haldið áfram með gerð Heimskauts- gerðis við Raufarhöfn. Gert er nú ráð fyrir rúmlega 2,6 milljarða króna framlagi til þriggja ára, sem rennur til verkefnaáætlunar Landsáætl- unar um uppbyggingu innviða sem gildir fyrir árin 2021-2023. Alls 85 ný verkefni bætast við að þessu sinni og sem fyrr er áhersla lögð á að um sé að ræða heildstæða nálgun í gegnum svæðisheildir. Verk- efni eru nú á áætlun á rúmlega 100 ferðamannastöðum, -svæðum og -leiðum og ber helst að nefna fyrirhugaða uppbyggingu ofan við Öx- arárfoss með stórbættu að- gengi í þinghelgina, auk þess sem lokið verður við göngu- palla við Dettifoss sem auka öryggi og aðgengi Bryggja í Drangey Hæstu styrkirnir að þessu sinni eru styrkir til að hanna og byggja uppgöngu- og hjóla- stíg frá Svínafelli yfir í þjóð- garðinn í Skaftafelli, bygging þjónustuhúss fyrir ferðamenn við Hengifoss og lokastyrkur til uppbyggingar við Þrístapa í Vatnsdal. Alls fá 17 verkefni styrki sem eru hærri en 20 milljónir króna. Eitt þeirra er til dæmis gerð flotbryggju í Drangey á Skagafirði. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þingvellir Bæta á aðgengi að Öxarárfossi og að þinghelginni. Framkvæmdir á ferðamannastöðum  1,6 milljörðum kr. úthlutað Fjórðungur sveitarfélaga á Íslandi vinnur nú markvisst að því að innleiða Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna í allt sitt starf með stuðningi UNICEF á Íslandi og félags- málaráðu- neytisins. Þessum áfanga var náð í vikunni þegar sveit- arstjórar fimm sveit- arfélaga undirrituðu samstarfs- samning við UNICEF á Íslandi og félags- málaráðuneytið um þátttöku í verkefninu Barnvæn sveit- arfélög. Sveitarfélögin fimm eru Fjarðabyggð, Hrunamanna- hreppur, Rangárþing eystra, Seltjarnarnes og Vopna- fjarðarhreppur. Fyrr á árinu bættist Mosfellsbær einnig í hópinn. Með undirskriftinni í gær eru sveitarfélögin sem taka þátt í verkefninu því orðin 17 talsins og yfir helm- ingur barna á Íslandi býr í þeim. Mikil tímamót „Undirskriftin er mikil tímamót þegar við tökum þetta stóra skref í áttina að Barnvænu Íslandi. Það er ánægjulegt að sjá fimm ólík sveitarfélög hefja vegferðina í sama skrefi því það undir- strikar að Barnasáttmálinn er algildur og öll sveit- arfélög geta orðið barnvæn,“ sagði Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Í undirbúningi fyrir undir- skriftina var leitað til barna í hverju sveitarfélagi og þau spurð að því hvað þeim fynd- ist gera sveitarfélög barn- væn. Þar nefndu börnin að- gengi allra að menntun, vernd gegn ofbeldi, öruggt heimili fyrir öll börn og góð leiksvæði. Mörgum barnanna fannst vanta meira val um íþróttir. Einnig nefndu þau að lengja mætti útivistartíma og bæta umferðaröryggi. Skýrast kom þó fram að börnunum finnst miklu skipta að fá tækifæri til þess að láta skoðanir sínar í ljós og að fullorðnir virði þær. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Börn Líf og fjör á landsmóti skáta austur á Úlfljótsvatni. Barnvænir bæir  Sáttmáli  Sveitarfélögin og UNICEF  Álits barna leitað Birna Þórarinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.