Morgunblaðið - 28.03.2021, Blaðsíða 4
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Eldgosið í Geldingadölum kom svo hægt og
hljótt að það tók enginn eftir því þegar það
hófst. Það var ekki fyrr en Grindvíkingar sáu
roðann í austri, yfir Fagradalsfjalli, föstudags-
kvöldið 19. mars að mönnum varð ljóst að eld-
gos var hafið.
Aðdragandinn var allt annað en hægur og
hljóður. Allt frá því í desember 2019, þegar
mikil jarðskjálftahrina hófst við Fagradals-
fjall, höfðu íbúar Suðurnesja búið við skjálfta-
hrinur, kvikuinnskot og landris á Reykjanes-
skaga. Mikil jarðskjálftahrina hófst að morgni
24. febrúar. Jarðskjálfti af stærð 5,7 með upp-
tök 3 km suðsuðvestur af Keili fannst víða um
land. Kröftugir eftirskjálftar og gikkskjálftar
fylgdu. Upptök margra þeirra voru við Fagra-
dalsfjall. Almannavarnir lýstu yfir hættustigi á
höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Lít-
ið lát var á jarðskjálftavirkni næstu daga.
Gervihnattamyndir í byrjun mars sýndu af-
lögun jarðskorpunnar milli Fagradalsfjalls og
Keilis. Líklegasta ástæðan var talin vera
kvikuinnskot. Æ fleiri vísbendingar studdu þá
tilgátu og vísindamenn fylgdust grannt með
því hvernig kvikugangurinn tróð sér eins og
lóðrétt borðplata upp í jarðskorpuna milli
Fagradalsfjalls og Keilis. Gangurinn lengdist í
báða enda og hækkaði sem olli því að jarð-
skjálftar urðu svo ótt og títt að annars eins
þekktust ekki dæmi.
Stóra spurningin var hvort þessi atburðarás
endaði með eldgosi? Þegar dró úr skjálftunum
og gangurinn var jafnvel talinn vera storkn-
aður að hluta smeygði kvikan sér upp úr jarð-
skorpunni þar sem heita Geldingadalir. Fáir
vissu af þeim áður en nú veit hvert mannsbarn
á Íslandi hvar þetta örnefni er.
Gæti orðið langvinnt eldgos
„Eitt af því áhugaverða í þessu eldgosi er
hvað kvikuflæðið hefur verið stöðugt. Það er
lítið miðað við mörg önnur eldgos en það hefur
verið stöðugt og jafnt. Það virðist vera jafn-
vægi á milli inn- og útflæðis úr kerfinu. Það
styður við hugmyndir um að þetta getið orðið
langvinnt gos,“ sagði Þorvaldur Þórðarson,
prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands.
Breytingar hafa orðið á gígunum frá því eld-
gosið hófst. Þorvaldur sagði að þær breytingar
komi ekki á óvart. „Þessi gos byrja yfirleitt í
nokkrum gígopum svo fer þetta að færa sig í
færri og færri gígop. Þetta endar væntanlega í
einu opi,“ sagði Þorvaldur. „Ef gosið heldur
áfram nógu lengi þá verður Geldingadalur að
hrauntjörn. Síðan fer að flæða út úr henni en
hvert það fer verður fróðlegt að sjá. Sennilega
fer það bæði þarna suður af og austur af.“
Kvikuflæðið hefur verið áætlað 5-10 rúm-
metrar á sekúndu. Þorvaldur telur að ef flæðið
helst meira en fimm rúmmetrar á sekúndu
haldi gosið áfram en fari það niður fyrir þrjá
rúmmetra muni gosið enda.
Miðað við fimm til tíu rúmmetra kvikuflæði
á sekúndu geta liðið 10-30 dagar frá gosbyrjun
þar til fer að flæða út úr dalnum. Svo getur
mögulega lokast fyrir leiðir hraunsins út úr
dalnum og þá dregst það að hraunið fari ann-
að.
Fara þarf varlega við gosið
Fara þarf með gát þar sem eldfjallagas er.
Þorvaldur sagði að virða bæri þá reglu að vera
alltaf með vindinn í bakið og forðast að fara
niður í lægðir heldur halda sig uppi á hæð-
unum.
„Ég veit að þetta er spennandi og fólk lang-
ar að komast nær gígnum. En hvað ætlar fólk
að gera ef gígveggurinn hrynur og hraunið
gusast fram? Hraunið er mjög þunnfljótandi,
kvikan vel yfir 1.200 gráðu heit og seigjan
mjög lág. Þetta er næstum því jafn þunnfljót-
andi og vatn,“ sagði Þorvaldur. Hann sagði að
hraunkvika væri flókinn vökvi sem snögg-
kólnar ekki. Það myndast seigja í hrauninu og
þá hægir það á sér en um leið byggist upp
þrýstingur þar á bak við ef þunnfljótandi
hraunkvikan hefur ekki aðra útgönguleið. Á
endanum brýtur hún stífluna og þá gusast
þetta fram.
„Hraunið er farið að setjast í polla og þetta
er farið að mynda hrauntjörn. Þá erum við
komin með allt aðrar aðstæður. Þá er eiginlega
vökvi undir allri skorpunni. Ég vil því ráð-
leggja fólki að vera ekki að stíga mikið á
hraunið. Það borgar sig að halda sig í öruggri
fjarlægð og njóta lífsins,“ sagði Þorvaldur.
Myndi fylla lægðir á 3 mánuðum
Jóhann Helgason jarðfræðingur segir að
þróist eldvarpið í Geldingadölum sem dyngja,
eins og margir telja, muni það hafa mikil áhrif
á allt hraunflæði á svæðinu.
„Dyngjur, sbr. Skjaldbreiður, hlaðast upp
frá einum punkti og dreifa hrauni jafnt í 360°
hring umhverfis. Dyngjur hafa þannig full-
komna lögun flestra ef ekki allra gerða eld-
varpa. Þetta mun hafa áhrif á upphleðslu
hrauns í Geldingadölum en lega gígsins í lægð-
inni skiptir einnig máli,“ skrifar Jóhann í sam-
antekt sem Morgunblaðið fékk að styðjast við
ásamt korti sem birt er í skýringarmynd í
næstu opnu.
Hann bendir á að neðsti hluti lægðarinnar
þar sem gýs sé í 180 metra hæð yfir sjávarmáli
(m.y.s). Op er úr henni til austurs í 209 m.y.s.
Aflangur hóll er í dalnum og nær hann upp í
216 m.y.s. Gígurinn er nánast í toppi hans.
Fjarlægð gígsins frá skarðinu fyrir austan er
aðeins um 350 metrar. Jóhann studdist við ná-
kvæm hæðargögn frá Landmælingum Íslands
þegar hann spáði í flæði hrauns frá gosstöðv-
unum í Geldingadölum að gefnum nokkrum
forsendum varðandi rennsli og þær leiðir sem
líklegt er að hraun fari.
Jóhann telur líklegt að hraunflæðið haldi sig
fyrst við Geldingadali. Síðan flæði hraunið um
skarðið til austurs og þaðan líklega fyrst norð-
ur í Meradali. Ekki er hægt að útiloka rennsli
suður í Nátthaga á einhverju stigi. Jóhann
segir að rúmmál Geldingadala sé 6,8 Mm3
(milljónir rúmmetra), Nátthaga 4,3 Mm3 og
Meradala 44,7 Mm3. Samtals er stærð þessara
þriggja lægða 55,8 Mm3.
Kvikuuppstreymið í Geldingadölum er 5-10
m3/sek að mati jarðfræðinga. Rætt er um að
gosið geti orðið langvinnt. Hraunrennsli miðað
við 5 m3/sek í eitt ár gefur 158 Mm3 og ef
hraunrennslið er 10 m3/sek verður hraunið
orðið 316 Mm3 eftir eitt ár.
„Samkvæmt þessum útreikningum myndu
allar lægðirnar fyllast á innan við 3 mánuðum.
Nái hraun að renna í Nátthaga er, fljótt á litið,
mesta hætta á tjóni þar því sú lægð er lítil og
þunnfljótandi hraunið ætti greiða leið til sjávar
ef hún fylltist,“ skrifar Jóhann. Hann bendir
einnig á að sunnar í Geldingadölum sé annað
skarð til austurs í 229 metra hæð. Ætla má að
þaðan geti lekið hraun niður í Nátthaga.
„Upphleðsla dyngju í Geldingadölum myndi
ekki stöðvast þar þótt rennsli yrði um skarð að
austanverðu (ofan í Meradali eða Nátthaga).
Hraun héldi áfram að hlaðast upp innan lægð-
arinnar og reyndar má ætla að minnihluti gos-
efna næðu út um skarðið,“ skrifar Jóhann enn
fremur í samantekt sinni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hraun gætu fyllt lægðirnar
verði eldgosið langvinnt
- Kvikuflæði í Geldingadölum hefur verið stöðugt - Aðgát skal höfð á gosstaðnum - Haldi núver-
andi kvikustreymi áfram nógu lengi mun hraun flæða úr Geldingadölum í Meradali og Nátthaga
Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eld-
fjallafræði við Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/Eggert
Jóhann Helgason jarðfræðingur hefur
skoðað hvert hraunið kann að leita.
Ljósmynd/Aðsend
Eldfjall er að myndast á
Reykjanesskaga og mann-
fólkið má sín lítils í sam-
anburðinum við náttúruöflin.
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021