Morgunblaðið - 28.03.2021, Blaðsíða 12
Hekla 1970 Stór mynd tók nánast alla for-
síðu blaðsins í Skjólkvíagosinu í maí 1970.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Þau stórtíðindi gerðust í gær …“ Þannig byrjaði frétt
Morgunblaðsins af eldgosinu í Kötlu 1918 og oft hafa fréttir
af hamförum á Íslandi byrjað með líkum hætti. Eldgos eru í
eðli sínu miklir atburðir og hafa oft valdið búsifjum og erf-
iðleikum. Síðustu rúmlega 100 árin er forvitnilegt að sjá
hvernig blaðamenn hafa matreitt þessa atburði fyrir les-
endur sína.
Í þessari samantekt eru skoðaðar nokkrar forsíður og
sterkar fréttasíður í Morgunblaðinu í kjölfar eldgosa, en
blaðið kom fyrst út árið 1913. Sumar eru einfaldar en
áhrifaríkar, þar sem atburðurinn sem slíkur talar sínu máli,
aðrar myndrænni og lýsa hugmyndaauðgi. Ekki eru hér
tíunduð öll eldgos síðustu 100 ára, en nokkur af þeim
stærstu. Tímasetningar og tækni hvers tíma hafa áhrif á
frásagnir, en fyrst í stað var t.d. ekki möguleiki á að nota
myndir, síðan komu þær í svarthvítu og síðustu áratugi
hafa sterkar litmyndir sagt meira en mörg orð.
Óhætt er að segja að eldgos hafi oft valdið taugatitringi
og hækkuðum blóðþrýstingi hjá fjölmiðlafólki. Þau hafa
líka sýnt tilþrif í fréttamennsku og stórkostlegar ljósmyndir,
allt til að þjóna lesendum sem best. Þar er gosið í
Geldingadölum, sem hófst á föstudagskvöldi fyrir rúmri
viku, engin undantekning.
„Eldur í Kötlu“ var fyrirsögn blaðsins í gosinu 1918, en ef
stiklað er á stóru má sjá fyrirsagnir eins og „Háfjall Heklu
logandi eldhaf“ 1947, og „Eldgos í Heimaey“ var fyrirsögn
á forsíðu blaðsins er Eyjagosið hófst. „Hætta á sprengi-
gosum á öllu Mývatnssvæðinu,“ sagði í fyrirsögn er gaus
við Leirhnjúk í desember 1975, en það var fyrsta gos af níu
í Kröflueldum, „Eldur í iðrum Vatnajökuls“ sagði í fyrirsögn
1996, „Sprengigos í jökli“ var fyrirsögnin við upphaf eld-
goss í Eyjafjallajökli 2010 og „Grímsvötnin gretta sig“
sagði í forsíðufyrirsögn 23. maí 2011.
Farið var „að sjóða upp úr Kötlu“
Forvitnilegt er að skoða frétt Morgunblaðsins af eldgos-
inu í Kötlu, sem hófst 12. október 1918, fimm árum eftir að
blaðið kom fyrst út. Þar segir m.a.: „Skömmu síðar sáust
mekkir miklir yfir fjallinu Hettu, og vorn þá ekki í vafa um,
að tekið væri að sjóða upp úr Kötlu. Ferðamenn, sem
staddir voru við Múlakvísl, urðu frá að hverfa. Kvíslin ólm-
aðist fram með jakaferð svo mikilli, að engir menn núlifandi
hafa séð annað eins og flæddi yfir alla aura. […]
Vér náðum tali af símastöðinni í Vík kl. 6 1/2 í gærkvöldi.
Er mönnum órótt innanbrjósts, sem vonlegt er, og þó
munu þeir ver staddir, sem heima eiga austur á söndum,
milli vatna þeirra, sem ófær eru orðin vegna flóðsins. Menn
eru hræddir um, að ferðamenn hafi verið staddir á sönd-
unum, en þess getur orðið langt að bíða, að fréttir fáist
austan yfir Múlakvísl. […]
Skömmu eftir að gosið byrjaði, sást reyk- og gufumökk-
urinn héðan úr Reykjavík og bar hátt á himin. Jókst hann
stöðugt, og þegar tók að dimma, sáust eldglæringar og
eldstrókar í mökknum. Mátti svo að orði kveða, að alt aust-
urloftið hafi sýnzt sem eitt eldhaf, þegar dimt var orðið. Vit-
um vér þess engin dæmi, að nokkurt eldgos hafi sézt svo
glögglega héðan úr bænum og má því draga af því þá
ályktun, að þetta sé eitthvert hið mesta gos, er sögur fara
af.
Símasambandi við Vík var slitið í gærkvöldi, vegna þess
að stórhættulegt var að nota símalínuna sökum þess, hvað
loftið var þrungið af rafmagni.“
Skipt um forsíðu um morguninn
Heklugosið 1947 kallaði á að breyta forsíðu Morg-
unblaðsins er tíðindin bárust laugardagsmorguninn 29.
mars. Efst á forsíðunni hafði verið frétt um óeirðir víða í
Þýskalandi, en í seinni prentuninni var komin frétt yfir
þvera síðuna um Heklugos með þriggja dálka frétt. Enn var
á forsíðunni mynd af Davies, breskum hershöfðingja í
Jerúsalem, þar sem hann var að yfirheyra Gyðinga. Mynd
af Heklugosi birtist daginn eftir.
Í uppfærðu fréttinni segir að Hekla hafi byrjað að gjósa
skömmu fyrir kl. sjö á laugardagsmorgninum. Fólk í aust-
ursveitum hafi orðið vart við snarpan jarðskjálftakipp og
skömmu síðar hafi gosið upp gosmökkur frá Heklu eða
Hekluhrauni. Hálfri klukkustund síðar hafi Hekla verið um-
lukin gosmekki frá rótum og mökkinn borið við himin.
Aukablað um eldgosið á Heimaey
Næst verður staldrað við gosið á Heimaey, sem hófst 23.
janúar 1973. Þann dag voru þrjár útgáfur af Morgun-
blaðinu. Upprunaleg útgáfa var með aðalfrétt úr 50 mílna
landhelgisdeilu Íslendinga og Breta og var byggt á einka-
skeyti til Morgunblaðsins. Á þeirri forsíðu var líka meðal
annars að finna frétt um andlát Johnsons, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta.
Gosið í Eyjum hófst um klukkan tvö að nóttu 23. janúar
1973 og er tíðindin bárust var skipt um forsíðu, fréttin um
eldgos á Heimaey með stórri fyrirsögn bar uppi forsíðuna,
en þorskastríðið og Johnson fengu minna vægi. Þriðja út-
gáfa blaðsins, tólf síðna síðdegisútgáfa án auglýsinga,
kom síðan út upp úr hádegi og var þar að finna ítarlegar
fréttir, m.a. um gosið og flutning fólksins til lands, viðtöl og
margar myndir frá Vestmannaeyjum. Í ramma í síðdegis-
Hekla 1947 Eftir rúmlega 100 ára svefn hófst gos í Heklu snemma laugardags 29. mars og var forsíðu blaðsins breytt er prentun var komin vel
á veg. Næsta dag var stór forsíðumynd af gosmekkinum, en í upphafi náði hann í um 30 kílómetra hæð. Gosið stóð í þrettán mánuði.
Tilþrif og titringur
Surtur 1963 Aðalfréttin á fosíðunni 15. nóvember var um breytingar á ríkisstjórn, en mynd af
Surtseyjargosi neðst á síðunni. Á baksíðu var fjallað um gosið, sem og annars staðar í blaðinu.
Askja 1961 Gos hófst á stuttri sprungu í
öskjunni 26. október og stóð í um mánuð.
Katla 1918 Frásögn af gosinu var á forsíð-
unni daginn eftir, við hliðina á símfregnum.
- Þau stórtíðindi gerðust í gær … - Stiklað á stórum fréttasíðum af eldgosum síðustu áratugina
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021