Morgunblaðið - 28.03.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 28.03.2021, Qupperneq 12
Hekla 1970 Stór mynd tók nánast alla for- síðu blaðsins í Skjólkvíagosinu í maí 1970. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Þau stórtíðindi gerðust í gær …“ Þannig byrjaði frétt Morgunblaðsins af eldgosinu í Kötlu 1918 og oft hafa fréttir af hamförum á Íslandi byrjað með líkum hætti. Eldgos eru í eðli sínu miklir atburðir og hafa oft valdið búsifjum og erf- iðleikum. Síðustu rúmlega 100 árin er forvitnilegt að sjá hvernig blaðamenn hafa matreitt þessa atburði fyrir les- endur sína. Í þessari samantekt eru skoðaðar nokkrar forsíður og sterkar fréttasíður í Morgunblaðinu í kjölfar eldgosa, en blaðið kom fyrst út árið 1913. Sumar eru einfaldar en áhrifaríkar, þar sem atburðurinn sem slíkur talar sínu máli, aðrar myndrænni og lýsa hugmyndaauðgi. Ekki eru hér tíunduð öll eldgos síðustu 100 ára, en nokkur af þeim stærstu. Tímasetningar og tækni hvers tíma hafa áhrif á frásagnir, en fyrst í stað var t.d. ekki möguleiki á að nota myndir, síðan komu þær í svarthvítu og síðustu áratugi hafa sterkar litmyndir sagt meira en mörg orð. Óhætt er að segja að eldgos hafi oft valdið taugatitringi og hækkuðum blóðþrýstingi hjá fjölmiðlafólki. Þau hafa líka sýnt tilþrif í fréttamennsku og stórkostlegar ljósmyndir, allt til að þjóna lesendum sem best. Þar er gosið í Geldingadölum, sem hófst á föstudagskvöldi fyrir rúmri viku, engin undantekning. „Eldur í Kötlu“ var fyrirsögn blaðsins í gosinu 1918, en ef stiklað er á stóru má sjá fyrirsagnir eins og „Háfjall Heklu logandi eldhaf“ 1947, og „Eldgos í Heimaey“ var fyrirsögn á forsíðu blaðsins er Eyjagosið hófst. „Hætta á sprengi- gosum á öllu Mývatnssvæðinu,“ sagði í fyrirsögn er gaus við Leirhnjúk í desember 1975, en það var fyrsta gos af níu í Kröflueldum, „Eldur í iðrum Vatnajökuls“ sagði í fyrirsögn 1996, „Sprengigos í jökli“ var fyrirsögnin við upphaf eld- goss í Eyjafjallajökli 2010 og „Grímsvötnin gretta sig“ sagði í forsíðufyrirsögn 23. maí 2011. Farið var „að sjóða upp úr Kötlu“ Forvitnilegt er að skoða frétt Morgunblaðsins af eldgos- inu í Kötlu, sem hófst 12. október 1918, fimm árum eftir að blaðið kom fyrst út. Þar segir m.a.: „Skömmu síðar sáust mekkir miklir yfir fjallinu Hettu, og vorn þá ekki í vafa um, að tekið væri að sjóða upp úr Kötlu. Ferðamenn, sem staddir voru við Múlakvísl, urðu frá að hverfa. Kvíslin ólm- aðist fram með jakaferð svo mikilli, að engir menn núlifandi hafa séð annað eins og flæddi yfir alla aura. […] Vér náðum tali af símastöðinni í Vík kl. 6 1/2 í gærkvöldi. Er mönnum órótt innanbrjósts, sem vonlegt er, og þó munu þeir ver staddir, sem heima eiga austur á söndum, milli vatna þeirra, sem ófær eru orðin vegna flóðsins. Menn eru hræddir um, að ferðamenn hafi verið staddir á sönd- unum, en þess getur orðið langt að bíða, að fréttir fáist austan yfir Múlakvísl. […] Skömmu eftir að gosið byrjaði, sást reyk- og gufumökk- urinn héðan úr Reykjavík og bar hátt á himin. Jókst hann stöðugt, og þegar tók að dimma, sáust eldglæringar og eldstrókar í mökknum. Mátti svo að orði kveða, að alt aust- urloftið hafi sýnzt sem eitt eldhaf, þegar dimt var orðið. Vit- um vér þess engin dæmi, að nokkurt eldgos hafi sézt svo glögglega héðan úr bænum og má því draga af því þá ályktun, að þetta sé eitthvert hið mesta gos, er sögur fara af. Símasambandi við Vík var slitið í gærkvöldi, vegna þess að stórhættulegt var að nota símalínuna sökum þess, hvað loftið var þrungið af rafmagni.“ Skipt um forsíðu um morguninn Heklugosið 1947 kallaði á að breyta forsíðu Morg- unblaðsins er tíðindin bárust laugardagsmorguninn 29. mars. Efst á forsíðunni hafði verið frétt um óeirðir víða í Þýskalandi, en í seinni prentuninni var komin frétt yfir þvera síðuna um Heklugos með þriggja dálka frétt. Enn var á forsíðunni mynd af Davies, breskum hershöfðingja í Jerúsalem, þar sem hann var að yfirheyra Gyðinga. Mynd af Heklugosi birtist daginn eftir. Í uppfærðu fréttinni segir að Hekla hafi byrjað að gjósa skömmu fyrir kl. sjö á laugardagsmorgninum. Fólk í aust- ursveitum hafi orðið vart við snarpan jarðskjálftakipp og skömmu síðar hafi gosið upp gosmökkur frá Heklu eða Hekluhrauni. Hálfri klukkustund síðar hafi Hekla verið um- lukin gosmekki frá rótum og mökkinn borið við himin. Aukablað um eldgosið á Heimaey Næst verður staldrað við gosið á Heimaey, sem hófst 23. janúar 1973. Þann dag voru þrjár útgáfur af Morgun- blaðinu. Upprunaleg útgáfa var með aðalfrétt úr 50 mílna landhelgisdeilu Íslendinga og Breta og var byggt á einka- skeyti til Morgunblaðsins. Á þeirri forsíðu var líka meðal annars að finna frétt um andlát Johnsons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Gosið í Eyjum hófst um klukkan tvö að nóttu 23. janúar 1973 og er tíðindin bárust var skipt um forsíðu, fréttin um eldgos á Heimaey með stórri fyrirsögn bar uppi forsíðuna, en þorskastríðið og Johnson fengu minna vægi. Þriðja út- gáfa blaðsins, tólf síðna síðdegisútgáfa án auglýsinga, kom síðan út upp úr hádegi og var þar að finna ítarlegar fréttir, m.a. um gosið og flutning fólksins til lands, viðtöl og margar myndir frá Vestmannaeyjum. Í ramma í síðdegis- Hekla 1947 Eftir rúmlega 100 ára svefn hófst gos í Heklu snemma laugardags 29. mars og var forsíðu blaðsins breytt er prentun var komin vel á veg. Næsta dag var stór forsíðumynd af gosmekkinum, en í upphafi náði hann í um 30 kílómetra hæð. Gosið stóð í þrettán mánuði. Tilþrif og titringur Surtur 1963 Aðalfréttin á fosíðunni 15. nóvember var um breytingar á ríkisstjórn, en mynd af Surtseyjargosi neðst á síðunni. Á baksíðu var fjallað um gosið, sem og annars staðar í blaðinu. Askja 1961 Gos hófst á stuttri sprungu í öskjunni 26. október og stóð í um mánuð. Katla 1918 Frásögn af gosinu var á forsíð- unni daginn eftir, við hliðina á símfregnum. - Þau stórtíðindi gerðust í gær … - Stiklað á stórum fréttasíðum af eldgosum síðustu áratugina 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.