Morgunblaðið - 28.03.2021, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021
Aron Már Ólafsson, betur þekktur á sam-
félagsmiðlum sem Aronmola, var á meðal
þeirra 5-6.000 sem heimsóttu Geldingadali á
miðvikudaginn.
„Þetta var bara þjóðhátíð „all over again“.
Við vorum þarna með gítar og héldum brekku-
sönginn hátíðlegan og þetta var í raun og veru
bara galinn fjöldi fólks, mun fleiri en hafa áður
komið saman síðan faraldurinn hófst. Það var
bara frábært að upplifa svona marga á einum
stað aftur og gleyma Covid-19 í smá stund,“
segir Aron.
Hann fylgdi þó tilmælum stjórnvalda og var
kominn til byggða áður en hert samkomubann
skall á á miðnætti og kvaðst vissulega hafa
orðið nokkuð þreyttur við gönguna. „En ég get
ekki beðið eftir að fara aftur,“ segir Aron. Aron Már Ólafsson leikari og áhrifavaldur.
Mesta samkoma frá
því faraldurinn hófst
Ragnar Þorvarðarson er búsettur í Frakk-
landi en var heppinn að vera í löngu páska-
fríi heima á Íslandi þegar gosið hófst. Það
eru ekki margir sem fá beinlínis áskorun
um að skunda inn á hamfarasvæði við virka
eldstöð en slíkt var tilfellið hjá Ragnari.
Ástæðan er sú að hann gerði garðinn fræg-
an í eldgosinu við Fimmvörðuháls 2010 þeg-
ar hann tók mynd af sér í skyrtu og með
bindi við gosopið. Nú var hann hvattur til að
endurtaka leikinn.
Hann rifjar upp myndatökuna við Fimm-
vörðuháls í samtali við Morgunblaðið. „Ég
var á leiðinni út úr dyrunum þegar ég hugs-
aði allt í einu hvað það væri leiðinlegt að
eiga bara mynd af sér í Goretex-jakka við
gosið, þannig að ég kippti með mér skyrtu
og bindi og fékk svo af mér mynd sem féll í
kramið hjá fólki,“ segir Ragnar. Myndin var
vinum hans minnisstæð, þannig að þegar
nýtt gos hófst lá beinast við að halda lífi í
hefðinni.
„Þegar ég var að skipta um föt núna á
miðvikudaginn hélt fjölskylda sem var
þarna stödd að ég væri að fara að hlaupa
þarna um nakinn, eins og einn tók upp á.
Þau voru voða fegin að svo var ekki. Það
var eiginlega snjóstormur þarna en ég náði
að flýta mér í jakkafötin á stuttum tíma og
taka mynd og þetta var töluvert auðveldara
en Fimmvörðuhálsinn. Það sem var samt
skemmtilegra við Fimmvörðuhálsinn var sú
tilfinning manns að maður ætti virkilega
skilið að upplifa gosið eftir alla gönguna. En
að fara að Geldingadölum er meira bara
eins og að mæta í bíó,“ segir Ragnar.
Ragnar við Fagradalsfjall árið 2021.
Ljósmynd/Jón Gunnar Ólafsson
Snyrtilegastur á
gossvæðinu frá 2010
Ragnar á Fimmvörðuhálsi árið 2010.
Ljósmynd/Aðsend
Sunneva Ósk Axelsdóttir féllst í vikunni á þá
hugmynd kærasta síns, Ásmundar Þórs
Kristmundssonar stálsmiðs, að leggja leið
sína upp að eldgosinu til þess að mynda nýjan
vörupakka sem hún er að setja í sölu hjá
þrifafélagi sínu Óskir og þrif. Hún hafði verið
að velta fyrir sér framsetningu vörunnar og
vildi ná góðri mynd. Hún tók pakkann saman
og hélt af stað niður á Reykjavíkurflugvöll,
þar sem Ásmundur þóttist einnig vilja ná
mynd, en þar beið þeirra óvænt þyrla. Hún
ferjaði þau á gosstað, þar sem Sunneva vissi
ekki fyrr en Ásmundur var kominn á skelj-
arnar, steinsnar frá glóandi kvikunni. „Þetta
var bara alveg algerlega óvænt,“ segir Sunn-
eva. „Þetta var eiginlega vandræðalegt, en
ótrúlega skemmtilegt. Þetta er alveg ógleym-
anleg tilfinning og minning.“ Eftir ferðina er
Sunneva enn að vandræðast með myndatöku
á vörunum sínum en það er bót í máli að hún
er unnustanum ríkari eftir ferðina.
Uppgefið erindi unnustans reyndist gabb.
Ásmundur Þór fór á skeljarnar við gosið.
Ljósmynd/Hallmar Thomsen Reimar
Hafði annað í huga
en að trúlofa sig
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Það er góðra gjalda vert að bera saman viðbrögð þjóð-
arinnar þegar fyrsta samkomubann sögunnar tók hér
gildi 16. mars 2020 og aftur þegar strangasta samkomub-
ann sögunnar tók gildi nú á miðnætti á miðvikudag. Í
fyrra flykktist ungt fólk á skemmtistaði helgina 13.-15.
mars og hélt eitt allsherjarlokadjamm, svo að það sé sagt
eins og það er. Þegar takmarkanir voru aftur á móti
kynntar í vikunni gerði sér enginn grillur um að fá útrás á
vettvangi næturlífsins, enda allir orðnir vanir hömlulaus-
um hömlum á því sviði. Í staðinn bauðst önnur sjóðandi
heit freisting: Eldgos í bakgarði Reykjavíkur. Og þar var
ungt fólk alls ekki eitt um að vilja nota síðasta séns og á
miðvikudaginn er talið að hátt í 6.000 manns hafi mætt á
gosstað, sem gerir þetta vitaskuld að stærstu samkomu
hér á landi svo árum skiptir. Þetta voru ungir sem aldnir,
Íslendingar sem útlendingar, og deginum ljósara að eld-
gosið er síður en svo einkasamkvæmi fyrir vísindamenn.
Það er fyrir fólkið í landinu og býður upp á fjölbreytt
mannlíf á tímum þegar mannlíf er á miklu undanhaldi.
Eins og
Þjóðhátíð
Morgunblaðið/Eggert
Listamaðurinn og þúsundþjalasmiðurinn
Kristinn Arnar Sigurðsson, Krassasig, hafði
fylgst með fréttum af uppátækjasömum Ís-
lendingum gera það gott í matreiðslu á gos-
svæðinu og vildi leggja sitt af mörkum til
þeirrar listar þegar hann fór þangað sjálfur,
ásamt Aroni Má sem er rætt við hér til hægri.
Kristinn matreiddi tagliatelle bolognese að
ítölskum sið á hrauninu, eins og sjá má á
myndunum. Þetta bar góðan árangur og spag-
ettíið var að sögn Arons Más, sem fékk að
smakka, einstaklega ljúffengt. Um leið gegndi
það mikilvægu hlutverki í að næra mannskap-
inn þegar upp var komið, sem Aron segir að sé
atriði sem megi fyrir alla muni ekki klikka á
þegar farið er að eldgosinu.
Matreiðsla á heljarslóð bar ljúffengan árangur
hjá Kristni, að sögn viðstaddra ferðafélaga.
Eldhús
náttúrunnar
Góður hiti náðist undir pönnuna.
Ljósmyndir/Hlynur Helgi Hallgrímsson