Þróttarblaðið - 01.12.1985, Qupperneq 4
4
ÞRÓTTARBLAÐIÐ
Hótel
Staður
Skipholti 27, Reykjavík
s. (91)26210(91)26477
Staður íþróttafólksins af lands-
byggðinni.
Tek að
mér alla
málningar
vinnu
úti sem
inni
JÓIM H. ÓLAFSSON
MALARAMEISTARI
GAUKSHÓLUM 2
SÍMI 74803
Þú skalt ekki byggja
hús þitt á sandi heldur
úr steypu frá okkur
<
o
STEYPUSTOÐINk
33600 SÆVAR HÖFÐA 4
„Þróttur á
framtíðina í mjög
efnilegum strákum"
„Þaö er auövitaö visst áfall að missa
meistaraflokkinn niöur í 2. deild, sér-
staklega skapar þaö meiri vinnu viö
fjáröflun og nokkur hætta er á aö ein-
staka menn freistist til þess að ganga
úr liðinu. Sérstaklega eftir að farið er
að bjóða mönnum peninga í öðrum her-
búðum. En ég er persónulega ekkert
hræddur um framtíö meistaraflokks-
ins. Þróttur á framtíðina í rosalega
góöum strákum, sem koma eftir eitt til
tvö ár upp úr 2. flokki.”
Þetta segir Ómar. Eins og vant er
gneistar af Omari Siggeirssyni, þegar
hann lýsir skoðunum sínum. Hann er
nú aö hætta eftir fjögurra ára for-
mennsku í knattspyrnudeild og ár þar
á undan sem varaformaður. Hann er
þó ekki aö draga sig í hlé, heldur aö
hægja á sér í bili. Bakveiki plagar
Ömar, sem verður nú einnig að hverfa
úr fagi sínu sem málarameistari um
sinn og sýsla viö eitthvað léttara.
Þurfum sterka stjórn
Þegar Þróttarblaöiö ræddi við Omar
lá fyrir aö eingöngu vantaði nýjan for-
mann í næstu stjórn deildarinnar.
„Þaö eru frábærir menn tilbúnir í slag-
inn með nýjum formanni. Ég vil bara
ekki finna einhvern í þaö starf. Það er
ekki nóg aö eiga stórefnilega stráka í
kippum eða reynda úrvalsleikmenn í
meistaraflokki. Viö þurfum sterka
stjórn til þess aö halda utan um þetta
allt.”
Síðasta tímabil var það erfiðasta hjá
knattspyrnudeild um nokkurt skeiö.
Samstarf viö Jóhannes Eövaldsson um
þjálfun meistaraflokks mistókst alger-
lega. Og hátt í 200 þúsund króna tap
varð á rekstri, en árin á undan skiluðu
hagnaði.
Þegar Jóhannes tók pokann sinn var
4. flokkur karla
5. flokkur karla
— segir Ómar
Siggeirsson
leitaö til Theodórs Guömundssonar,
sem áöur var aðstoöarþjálfari meö Ás-
geiri Elíassyni. Og Theodór hefur nú
veriö ráöinn þjálfari meistaraflokks
næsta timabil.
Ný tök á þjálfun
„Viö höfum eðlilega hugsaö mikiö
um þjálfaramál félagsins aö undan-
förnu,” segir Ömar. „Kostnaður viö
meistaraflokksþjálfara liöa í 1. og 2.
deild, bæöi í knattspyrnu og handknatt-
leik, er löngu kominn út í algerar öfg-
ar. Félög sem starfa á þetta litlum
markaði peningalega séð, eins og hér
er, ráöa ekkert viö þjálfunarkostnað
upp á hálfa til heila milljón króna á ári
eöa jafnvel enn hærri.
Það er erfitt aö bregöast viö þessu,
þegar búiö er að koma svona
greiðslum á. Viö erum þó staðráðnir í
aö gera tilraun til þess. Ætlunin er aö
byggja upp sjálfstætt þjálfaralið innan
félagsins, fyrir alla flokka. Félagiö
mun þá leggja fram skipulag og sjá um
sérstaka menntun þjálfaranna, alger-
lega eftir eigin kerfi. Viö erum þegar
búnir aö fá sjö menn og ætlum aö fá 3—
5 í viðbót. Ég hef mikla trú á því aö
þetta skili okkur langt um betri
árangri í náinni framtíð.”
Næsta sumar
Er Stefnan sett á 1. deild aftur strax
næsta sumar? „Stefnan veröur von-
andi sú, aö byggja upp ennþá traustari
baráttu innan félagsins og ná í fram-
haldi af því eðlilegum og þá vonandi
góöum árangri í öllum flokkum. Þaö er
ekki aðalatriðið aö ná meistaraflokki
strax aftur upp í 1. deild, en við
munum ábyggilega stefna aö því.
Miklu meira máli skiptir að undirbúa
þátttöku okkar í 1. deild, þegar viö
náum þangaö aftur, þannig, aö Þróttur
eigi þangað fullt erindi til frambúðar.
Viö höfum verið nálægt þessu mark-
miði á undanförnum árum. Viö tókum
áhættu í sumar, sem endaði meö skelli.
Þannig er þetta í íþróttum. En ég veit
það nákvæmlega, aö Þróttur nær fót-
festu á toppi íslenskrar knattspyrnu
áöur en langt um líður, ef viö notum
þann efniviö sem er fyrir hendi í félag-
inu.”
Þetta segir Omar Siggeirsson.