Þróttarblaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 12

Þróttarblaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 12
12 ÞRÓTTARBLAÐIÐ Verslið við hverfisbúðina Rangá Skipasundi 56 Sími33402 SÓLBAÐSTOFA DÓRA Langholtsveg 128 — Sími: 81512 Höfum opnaö nýja sólbaðstofu að Langholtsveg 128. Við hliðina á Hársnyrtistofu Dóra. Bjóðum upp á Solana Nova sólbekki með 28. stk. 160 watta u.v.a. perum, sem innihalda mun minni B geisla og gefa þær jafnan og brúnan lit án bruna. Það nýjasta í dag. FRÁBÆR ÁRANGUR. Opiö Mánud,—föstud. 8.00—22.00 Laugardaga kl. 9.00—16.00 Sunnudaga kl. 9.00—14.00 HÁRSNYRTISTOFA DÓRA Langholtsveg 128 — Sími: 685775 HÁRGREIÐSLU OG RAKARASTOFA Egill Örn Einarsson heitir knattspyrnumaöur í Þrótti sem staöið hefur sig mjög vel í íþrótt sinni undan- farin ár. Egill er 15 ára gamall og hefur leikiö 11 landsleiki fyrir Island í drengjaliöinu og meöal annars veriö fyrirliöi þess aö undanförnu. Hann fór í sumar til Parísar í boöi UEFA og er einn yngsti leikmaðurinn sem leikiö hefur meö drengjalandsliöinu frá upp- hafi. Þróttarblaöið ræddi viö hann fyrir skömmu og viö spurðum hann fyrst hvernig það atvikaöist aö hann fór til Parísar á vegum UEFA. „Þeir hjá UEFA buöu strákum frá öllum löndum Evrópu og einnig frá S- Ameríku til Parísar í tilefni af ári æsk- unnar. Allir sem þarna voru eru í drengjalandsliöi viðkomandi lands og því allir yngri en 16 ára. Eg veit ekki hvers vegna ég varö fyrir valinu hér heima en þeir hjá KSÍ hringdu bara í mig og buðu mér að fara og ég tók því. Viö vorum í París í þrjá daga. Fyrsta daginn fórum viö í aöalstöðvar UEFA og skoöuðum okkur um þar auk þess sem viö litum viö í æfingabúöum hjá franska landsliöinu sem lék síöan viö Uruguay tveimur dögum síöar og viö sáum. Frakkar unnu þann leik 2—0 og var hann mjög skemmtilegur. Annan daginn skoðuðum viö París, fórum meðal annars upp í Effelturninn og Notre Dahm kirkjuna. Viö höföum að vísu ekki tíma til að fara upp á efstu hæöina í Effel því þaö tekur svo langan tíma. Þriöja daginn sáum viö síöan leik Frakka og Uruguay.” — Hvenær byrjaðir þú í knattspyrnunni? „Ég hef veriö 9 eöa 10 ára. Það voru nokkrir strákar í mínum bekk sem voru að fara í fótbolta og þeir plötuöu mig meö sér til þess aö þeir gætu skipt í tvö liö. Tryggvi fékk mig síöan til aö halda áfram aö æfa og síðan hef ég verið í Þrótti. Þar á ég flesta mína vini og mig langar ekkert til aö skipta um félag. Handbolta hef ég æft meö Þrótti frá því ég var 11 ára.” — Þú hefur farið víða með landsliðinu og Þrótti þó þú sért ekki gamall? „Já, það má segja þaö. Fyrsta feröin EGILL ÖRN EINARSSON: 15ára með 11 landsleiki var til Ungverjalands í maí meö lands- liöinu og síðan hef ég farið til Noregs og þá var ég valinn sem fyrirliöi liðs- ins. Loks fórum viö til Skotlands í haust. Ég byrjaöi þó á því að fara meö Þrótti út þegar ég var í 5. flokki. Allar þessar feröir hafa veriö mjög skemmtilegar og eftirminnilegar og maöur kynnist mörgum strákum og ekki síöur hvernig knattspyrna er leik- inn þarna úti. Hún er mun betri en hér heima, þetta er eiginlega hálfgert dútl hér miðað viö þar. Hjá Þrótti erum viö til dæmis 15 sem æfum reglulega og þaö þýðir að allir eru öruggir í hópinn, menn þurfa því ekki að leggja neitt á sig frekar en þeir vilja.” Menn veröa aö fá aö berjast fyrir sæti sínu í liðinu, þá er allt miklu skemmtilegra og það er einnig nauðsynlegt ef árangur á aö veröa góöur.” — Hver er draumastaða þín á vellinum? „Alla vega ekki vörnin þar sem ég leik núna. Miðjan er skemmtilegust þar er maður frjálsari og maður er þá alltaf aö byggja upp en í vörninni er maöur meira í því að passa einhvern ákveðinn mann og því mjög bundin. Besti leikmaður Islands er án efa Ás- geir Sigurvinsson og Platini er minn uppáhaldsleikmaður í heiminum. Hann erfrábær.” — Hversu oft æfir þú í viku á sumrin? „Þaö er misjafnt en þegar maöur var yngri þá var maður í fótbolta allan daginn. Síðan fara menn aö vinna og þá minnkar sá tími sem maður getur gefið sér í fótboltann. Annars er ég ný- byrjaður aö æfa gólf og finnst þaö alveg rosalega skemmtilegt. Eg hef aðeins einu sinni gert mark í landsleik og það var meiriháttar furöu- legt. Viö vorum aö leika við Dani í Nor- egi og ég tók aukaspyrnu við hliðarlínu alveg á miðjum vellinum. Ég ætlaöi aö gefa háan bolta rnn í markteiginn á Bjarna. Boltinn kom niður, hoppaöi yfir alla þvöguna og markamðurinn fraus alveg og inn fór tuðran. Alveg furöulegt mark. — Aldrei meiðst? „Jú, ég hef tvisvar tognaö í baki og í bæöi skiptin var það í úrslitaleik í yngri flokkunum. Strákarnir geröu grín að mér og sögöu aö þaö væri oröin venja aö ég tognaði í úrslitaleikjum,” sagöi Egill Örn knattspyrnumaður framtíðarinnar hjá Þrótti. Eftirtaldir aðilar hafa styrkt Kmttspyrnufélagið Þrótt vegna útgáfu þessa blaðs: Siguröur Guðmundsson Löggiltur endurskoðandi. Sími 84822. Arnarhóll - veitingahús Hverfisgötu8-10. Sími 18833. Akurey h.f. Byggingaverktaki. Sími 83970. Heildverzlun Esja s.f. Sundaborg 1. Sími 687020. Sparisjóður Reykjavíkur ognágrennis. Sími 27766. Jöfurh.f. Nýbýlavegi 2. Sími 42600. Marel h.f. Suðurlandsbraut 32. Sími 686858. S. Arnason & co. Vatnagörðum 4. Sími 685044. Vörumerking h.f. Dalshrauni 14. Sími 53588.

x

Þróttarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttarblaðið
https://timarit.is/publication/1579

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.