Þróttarblaðið - 01.12.1985, Side 15

Þróttarblaðið - 01.12.1985, Side 15
ÞRÓTTARBLAÐIÐ 15 Skúli Sveinsson: Mbl. Vanmáttarkennd eða áhugaleysi Þaö er alls ekki auövelt verk að út- skýra slæmt gengi Þróttar í sumar. Margir halda ef til vill aö þaö væri hægt aö setja upp lista meö einum 20— 30 atriöum um hvaö heföi verið að hjá félaginu í sumar en hér á eftir ætla ég aö ræöa nokkur þau atriöi sem aö mínu mati höfðu mest aö segja um slæmt gengi liðsins í knattspyrnunni í sumar. Þaö sem var áberandi í leik liösins í sumar var áhugaleysi leikmanna. Þaö var eins og flestir þeirra hefðu lítinn eða engan áhuga á aö vinna leiki eöa eigum viö frekar að segja aö menn hafi trúaö því áöur en þeir komu í leikinn aö hitt liðiö væri mun betra og því væri bara formsatriði aö ljúka leiknum? Ég er ekki alveg viss um hvort kalla eigi þetta áhugaleysi eöa vanmáttar- kennd gagnvart hinum liðunum. Hvort heldur sem þaö er nú þá tel ég að meginorsökin fyrir slæmu gengi liðsins sé að finna í þessum þætti. Baráttan, sem ekki var fyrir hendi í liðinu, kom aðeins síöari hluta sumars- ins eftir að skipt var um þjálfara. Ástæöan getur veriö aö leikmenn hafi veriö orönir þreyttir og því hafi breyting verið nauösynleg. Hver svo sem ástæöan var þá haföi breytingin góö áhrif á liöið þó svo það nægði ekki til aö halda sér í 1. deildinni. Annaö mikilvægt atriði er án efa óstöðugleikinn í hópnum, hverjum sem það er um að kenna. Alls léku 26 leik- menn fyrir liðið og þar af tíu sem léku þrjá leiki eða færri. Liö sem nær aldrei að stilla upp sama liðið tvo leiki í röð getur ekki náð langt, þaö er alveg ljóst. Brottför Páls Ölafssonar eftir fjóröu umferöina hlítur einnig að hafa haft sín áhrif á leikmenn þá sem eftir voru því Palli hefur verið aðal markaskor- ari liösrns í nokkur ár og hann var einn aöalmaöurinn í liöinu. „Jónsmálið” svokallaöa gæti einnig hafa haft ein- hver áhrif á móralinn í liöinu þó svo mér persónulega finnist það ekki eðli- legt aö leikmenn séu aö láta slík leiðindamál hafa áhrif á sig. Öll þessi atriði hafa trúlega lagst á eitt um að slá leikmenn Þróttar út af laginu í sumar. Hvert þeirra er mikil- vægasti skýringarþátturinn ætla ég mér ekki að skera úr um hér en eitt er víst: Þróttarar geta örugglega lært af mistökum síöasta sumars og því ætti svona slæmt sumar ekki aö líta dags- rns ljós á næstunni. Þetta á bæði við um leikmenn og ekki síður stjórnarmenn knattspyrnudeildarinnar. SMARABAKARÍ Kleppsvegi 152 — Sími 82425 Brauð og kökur í miklu úrvali Kransakökur og veislutertur. Marsipantertur — sherrytertur — Rjómatertur Opið Virka daga 8 — 18.00 Laugardaga 8 — 16.00 Sunnudaga 9 — 16.00 Eðlisávisiin Kj örbókareigendur nj óta góðra kj ara hvenær sem þeir leggj a inn. Þeir sem safna rata á Kjörbókina. Stefán Kristjánsson: DV. Slakur sóknarleikur Þegar svara á þeirri spurnmgu hvers vegna Þrótti hafi ekki vegnað betur í 1. deildinni í knattspyrnu sl. sumar koma strax nokkrar ástæöur upp í hugann. I mörg ár hefur lið Þróttar verið efni- legt en aldrei hefur liðiö náö aö spjara sig sem skyldi. Liöiö hefur sem kunnugt er verið á eilífu flakki á milli 1. og 2. deildar og aldrei náö að festa sig í sessi. Ein af aöalástæöunum fyrir slökum árangri Þróttarliösins í sumar tel ég vera mjög slakan sóknarleik liðsms. Liöinu gekk bærilega aö skora mörk í fyrstu leikjunum en eftir aö Páll Olafs- son hvarf á braut til Þýskalands hrundi sóknarleikur liðsins eins og spilaborg. Ekki var í herbúðum Þrótt- ara aö finna arftaka hans. (Sama sagan er raunar uppi á teningnum núna í handknattleiknum og hlýtur þaö aö vera Þrótturum áhyggjuefni aö meistaraflokkslið félagsms falli bæöi í 2. deild í knattspyrnu og handknattleik svo til strax eftir að Páll yfirgefur klakann.) Enn ein ástæöan fyrir falli Þróttara í 2. deild í sumar er ofríki meöal- mennskunnar meðal leikmanna liðs- ins. I liðinu er enginn stjörnuleik- maður en á hinn bóginn margir efnilegir en enn of ungir til að gera stóra hluti. Ef Þróttarar halda rétt á málunum næstu árin er möguleiki á því aö liðið geti staðið sig betur en á síðustu árum. Þróttarar hljóta aö stefna aö því. Þaö er kominn tími til aö þetta 35 ára gamla félag láti að sér kveða í toppbaráttu 1. deildar en það gerist ekki nema aö ýmsar og miklar breytingar eigi sér stað. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir

x

Þróttarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttarblaðið
https://timarit.is/publication/1579

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.