Fréttablaðið - 04.08.2021, Blaðsíða 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
„En sleppur þetta ekki?“ sagði
þjónninn eftir að hafa spurt
okkur hvernig smakkaðist og ég
sýndi honum brenndan græn-
metisborgarann. Þetta var fyrir
nokkrum árum.
Nýverið héldum við hjónin
á rómaðan nýjan veitingastað
hér í höfuðborginni. Tilefnið var
reglulegt stefnumót. Tilhlökk-
unin magnaðist eftir að hafa
skoðað matseðilinn á netinu. Við
mættum á slaginu ásamt f leirum
sem höfðu stillt sér prúðbúnir í
röð. Eftir dágóða stund var röðin
teymd inn í þéttsetinn sal. Hálft
kvöldið fór í handadans til að ná
athygli þjónsins. Ég var næstum
búin með minn drykk áður en
maki minn fékk sinn og eftir
óralanga bið birtist maturinn.
Áður en ég náði að klára réttinn,
sem líktist lítið myndinni á vef-
síðunni, var diskurinn hrifsaður
án þess að nokkur spyrði „hvern-
ig smakkast?“. Við álpuðumst
heim lúpuleg með upplifun sem
var verri en í mötuneyti. Líklega
verri en gestir upplifðu á veit-
ingastaðnum „Two Panda Deli“ í
Pasadena, Kaliforníu, árið 1983
þegar vélmennin Tanbo R-1 og
Tanbo R-2 þjónuðu til borðs.
Fyrir um þrjátíu árum starfaði
ég sem þjónn á Café Óperu. Þar
var lögð áhersla á að gestir hefðu
ávallt drykk í glösum, greiðan
aðgang að þjóni og biðu sem
skemmst eftir matnum. Og við
spurðum gesti áður en langt um
leið „hvernig smakkast?“. Orðið
þjónn stóð þá undir nafni, en
orðið „waiter“ er upprunnið frá
því að þjónn var í biðstöðu til að
þjóna gestum sínum.
Mér þykir miður þegar
veitingastaðir setja mest púður
í brass og ljósakrónur, en láta
matarupplifun mæta afgangi.
Vissulega eru staðir sem stan-
dast væntingar, en þeir eru á
undanhaldi. Maður verður
kannski að sætta sig við að gamli
tíminn sé horfinn og „sleppur
þetta ekki?“-upplifunin sé tekin
við. n
Sleppur
þetta ekki?
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING á Hringbraut
og hringbraut.is
Fylgstu með!
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar
blaðið er opnað!
Kannaðu dreiileiðir og verð í síma
550 5050 eða sendu tölvupóst á
orn@frettabladid.is.
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019
Straumurinn
er í Öskju!
Askja • Krókhálsi 11-13, 110 Reykjavík • 590 2100 • askja.is
Einföld og örugg hleðsla frá Innogy
Með heimahleðslustöð frá Innogy getur þú hlaðið bílinn með einföldum og öruggum hætti.
Við erum sérfræðingar í rafbílum og svörum öllum þínum spurningum um allt sem þeim tengist.
Kynntu þér málið á askja.is/hledslulausnir
Innogy eBox Smart 22kW - Verð 189.000 kr.
Virðisaukaskattur fæst endurgreiddur af hleðslustöð og uppsetningu.