BSRB-tíðindi - 11.10.1984, Side 3
SÓKNIN ER HAFIN
-ÓROFA SAMSTAÐA
í gær sýndi BSRB styrk sinn.
Samstöðu og styrk. Þúsundir
söfnuðust við Alþingishúsið
á þingsetningardegi. Menn
voru alvarlegir - þungir í
skapi. Menn sýndu stillingu-
héldu reisn sinni. Innan dyra
var Alþingi sett.
Þær þúsundir, sém oftlega
safnast saman við Alþingi,
hafa verið nefndar "Alþingi
götunnar". Þetta hugtak
hefur verið ranglega notað.
Það hefur verið notað til að
gera lítið úr fólkinu í þessu
landi. Það verður ekki gert
aftur.
Styrkur okkar sem þjóðar
liggur í fólkinu. Hann liggur
í því að fólk lætur ekki
bjóða sér hvað sem er. Þetta
er grundvöllurinn sem menning
okkar byggir á. A þessum grunni
er barátta BSRB háð. Fólkið-
félagsmennirnir í BSRB hafa
fengið nóg-það lætur ekki
bjóða sér hváð sem er.
Við erum að berjast fyrir
tilveru okkar sem þjóð.
Menn spyrja: Hvað eigið þið
manna sér engin úrræði til
þess að framfleyta sér. ,
Það er viðurkennt af
öllu,líka helstu ráðamönnum
þjóðarinnar,að opinberir
starfsmenn og þúsundir ann-
arra eru komnir svo langt á
eftir í launakjörum að ekki
verður lengur við unað.
Þetta fólk hefur sýnt
ótrúlegt langlundargerð en
nú er þolinmæðin þrotin.
Hvað halda menn að skapi
þá gífurlegu samstöðu,þann
íélagslega anda og þann styrk
sem allsráðandi er £ ,því verk-
falli sem hafið er hjá opin-
berum starfsmönnum?^
Ekkert nema fjárhags-
legt öngþveiti þorra þeirra'
sem nú eiga í verkfallsbar-
áttu gæti skapað þessa
miklu samstöðu.
Hvað ætla ráðamenn
þjóðarinnar lengi að streit-
ast á móti því að veita
þessu fólki sanngjarnar leið-
réttingar á kjörum þess?
Fulltrúar rikisvalds-
ins halda því blákalt fram
að þjóðarbúið hafi ekki
efni á 'því að bæta þ'essi
skammarlega lélegu kjör.
Sannleikurinn er sá
að þjóðfélagið þolir það
ekki mikið iengur að halda
þannig niðri launakjörum fólks.
Þetta vita flestir ráða-
menn þjóðarinnar.Að því hlýtur
að koma að ríkisvaldið viður-
kenni þá staðreynd að þjóð-
félagið verður að tryggja sér
hæfa starfsmenn til þess að
halda uppi þeirri þjónustu.
sem menningarþjóðfélagið get-
ur ekki verið án.
við? Við svörum: Tilvera okkar
sem þjóðar byggist á því að
hér séu greidd^góð laun. Það
verður að innrétta samfélagið
með þetta fyrir augum. Við
höfnum því að tvær þjóðir
búi £ sama landi.
Það er þess vegna sem barátta
okkar hefur vakið athygli um
alla Evrópu.
Ráðherrar £ r£kisstjórn hafa
undanfarið stigið mikil ógæfu-
spor. Ef til vill alvarlegri
en þeir gera sér grein fyrir
£ hita leiksins. Timinn einn
getur leitt £ ljós hver
áhrifin verða f samskiptum
þjóðar og þings.
I þeim darraðardansi sem nú
er að baki hafa félagsmenn
BSRB sýnt stillingu. Þeir
hafa sýnt jjann styrk sem
sæmir upplýstri þjóð. I fram-
haldinu ætlumst við til þess
að stjórnvöld söðli um. Að
ráðherrar £ rfkisstjórn láti
af þeim ljóta leik að hundsa
félagsmenn-láti af þeim leik
að taka lögin £ eigin hendur.
Enda þótt ráðherrum hafi
Jafnvel þeir sem sffellt
hamra á þeirri fyrru að ein-
göngu þurfi að hugsa um
framleiðslu varnings til út-
flutnings og innanlands-
neyslu,verða að viðurkenna
að opinber þjónusta er ómiss-
andi. Allt tal um undirstöðu-
atvinnuvegi án þjónustu er
tfmaskekkja.
Sú harða hr£ð sem nú
er gerð að samtökum opin-
berra starfsmanna er mikið
alvörumál.
Stjórnvöld svffast
einskis.Svo langt er gengið
að fulltrúar rfkisvaldsins
þverbrjpta lög,þar á meðal
lög um kjarasamninga,
rfkisútvarps og tollalög.
Þannig leikur á þvi
fullur vafi hvort við búum
hér við réttarriki eður ei.
Hér er á ferðinni
tilraun þröngsýnna afla
þjóðfélagsins til þess a$
brjóta samtökin á bak aftur.
En hér liggur annað og
meira á bak við.Ef'þessi
atlaga tekst kemur röðin
næst að öðrum félögum £
verkalýðshreyfingunni.
Islenskt launafólk
gerir sér Ijóst hver hætta
liggur £ þv£ að leyfa hinum
sterku samtökum atvinnurek-
enda að deila og drottna með
tilstyrk r£kisvaldsins.
Þvf spyrjum við: Hvernig
getum við komið £ veg fyrir
það slys að verkalýðshreyfing
in verði brotin niður og gerð
áhrifalaus um ófyrirsjáan-
lega framtfð?
Mitt svar er skýrt og
afdráttarlaust: Við eigum
fipast þá förum við ekki á
taugum. Við erum tilbúin með
útrétta sáttahönd. Við höfum
ftrekað krafist þess £ samninga-
viðræðum að eiginlegar við-
ræður hæfust. Það ábyrgðar-
leysi stjórnvalda að svara
engu hefur vissulega reynt á
þolrif samninganefndarmanna
en þeir eru tilbúnir. Ekki
til samningaþófs. Nú verða
stjórnvöld að leggja spilin
á borðið. Tafarlausar við-
ræður um launahækkanir verða
að hefjast strax.
Við höfum beðið átekta. Við
höfum hlustað en ekkert heyrt.
Við höfum horft upp á hluti
gerast sem okkur þykja ósæmi-
legir og óraði ekki fyrir að
myndu gerast. En við dæmum
ekki. Það er annarra að dæma.
Hafi menn efast um styrk BSRB.
Hafi menn efast um samstöðuna
þá gera þeir það ekki eftir
virðulegan útifund á þing-
setningardegi.
Við b£ðum ekki lengur. Sóknin
er hafin. Sóknin eftir
réttlæti.
tafarlaust að hefja samstillta
baráttu um að ná fram rétt-
látri skiptingu þjóðartekna.
Hefjum baráttu gegn þv£ undir-
heima efnahagskerfi sem allir
vita um en enginn hefur þorað
að taka á.
Launafólk: Látum okkur
ekki nægja að býtast um þá
köku sem atvinnurekendasam-
tökin og rfkisvaldið reyna að
telja okkur trú um að tii
skipta se.
Góðir fundarmennT
Við höldum þennan fund
hér á þeirri stundu sem
Alþingi íslendinga hefur ver-
ið sett.
Við skorum á alþingis-
menn að gefa framkvæmdavald-
inu fyrirmæli um að setjast
að samningaborðinu með sam-
tökum okkar og semja um rétt
láta lausn þeirrar kjara-
deilu sem við ei^um £.
Við skorum á fulltrúa
rikisvaldsins að láta af
úreltum tilskipunaraðferðum,
sem tilheyra löngu liðnum
tfma.
Við munum standa fast á
þv£ að afnema ranglæti og
misrétti. Samstaðan mun skila
okkur áfram á þeirri braut.
Það er hlutverk Alþingis
og almannasamtaka £ landinu
að viðhalda og treysta lýð-
ræði,mannréttindi og frelsi
£ landi voru.
Við skorum á alþingis-
menn að standa traustan
vörð um þessa grundvallar-
þætti islensks þjóðfélags.
(Ræöa formanns flutt
á útifundi BSRB í gær
lo. október)