BSRB-tíðindi - 11.10.1984, Page 4
KERFIÐ
ER HRUNIÐ
Stundum fer það svo að menn
smíða sér kerfi sem siðan
ber þá ofurliði.
Kjaradeilunefnd er dæmi um
slíka missmíð. Arið 1976
fengu opinberir starfsmenn
verkfallsrétt.Samkvæmt honum
gátu þeir lagt niður vinnu
væri of hart að þeim gengið.
Þegar opinberir starfsmenn
leggja niður vinnu gengur
margt úr skorðum.Til þess að
"t^yggja brýnustu starfsemi
á sviði öryggismála og heilsu-
gæslu var komið á fot eins
konar dómstol sem nefnist
Kjaradeilunefnd og var henni
samkvæmt lögum ætlað að skipa
mönnum til starfa væri öryggi
eða heilsu manna stefnt í
bráðan voða vegna verkfalls.
Kjaradeilunefnd var þannig
hugsuð sem eins konar öryggis-
ventill og átti hún að vera
óháð deiluaðilum.
Um önnur mál átti verkfalls-
nefnd BSRB að fjalla og veita
undanþágur frá verkfalli;
undanþágur frá þeirra eigin
verkfalli.Þegar þúsundir
manna leggja niður vinnu er
alvara á ferðum.Brýnt er að
deiluaðilar sýni hvor öðrum
traust og virði rétt hvors
annars. Ríkisstjórnin hefur
sýnt í verki að hun virðir
ekki verkfallsrétt opinberra
starfsmanna.Hún viðurkennir
ekki að þetta er þeirra
verkfall. Þetta kom í ljós
þegar yfirmönnum stofnana
var skipað að virða verkfalls-
nefnd BSRB að vettugi og
skjóta öllum málum til Kjara-
deilunefndar,jafnt þeim sem
vörðuðu öryggi og heilsu sem
öðrum málum. Þetta gerði
ríkisstjórnin til þess að ná
tökum á verkfalli opinberra
starfsmanna,skerða verkfalls-
rétt þeirra. Mál sem eðlilegt
hefði verið að skjóta til
verkfallsnefndar BSRB lentu
nú í stórum bunkum inn á borð
Kjaradeilunefndar, sem síðar.
úrskurðaði á grundvelli örygg-
ishagsmuna og heilsugæslu.
Ein slík beiðni til kjaradeilu-
nefndar kom t.d. frá breska
sjónvarpinu BBC. Hún var á þá
leið að heimilað yrði að senda
sjónvarpsefni um gervihnött
til Bretlands.Kjaradeilunefnd
synjaði að sjálfsögðu beiðn-
inni á þeirri forsendu að mál-
ið varðaði hvorki öryggishags-
muni né heilsugæslu.I kjara-
deilunefnd velkjast fram og
aftur í lögfræðilegum vanga-
veltum beiðnir frá gamal-
mennum og hjartasjúklingum um
að gert verði við bilaða síma
þeirra.Beiðni biskups um að
lesnar yrðu dánartilkynningar
í útvarp var hafnað enda
flokkast^þetta ekki undir
öryggismál.öllum þessum málum
hefði verkfallsnefnd BSRB
greitt úr að bragði en kjara-
deilunefnd var dæmd skv.
starfsreglum sínum til þess
að hafna þeim. Allt var þetta
gert til þess að skerða verk-
fallsrétt BSRB.En ríkisstjórn-
in féll á eigin bragði.
Smám saman tók það að renna
upp fyrir mönnum að í aðför
sinni að verkalýðshreyfingunni
hafði ríkisstjórnin jafnframt
lagt til atlögu gegn heil-
brigðri skynsemi. Kjaradeilu-
nefnd var4orðin að ófreskju.
Þegar saman komu starfsregl-
ur nefndarinnar og þau mál
sem hún fékk til úrlausnar
varð til einkennilegur grautur.
Flokkaðist það til dæmis undir
öryggis- eða heilbrigðismál
að útvarpað yrði frá setningu
Alþingis? Nei,sagði nefndin
og hafnaði beiðni útvarps-
stjóra. Þegar Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
ákvað að ganga framhjá kjara-
deilunefnd og mælast til þess
að útvarpað yrði frá setningu
Alþingis þrátt fyrir að
nefndin hefði hafnað því varð
endanlega ljóst að afskræming-
in var orðin alger, kerfið
var hrunið.
Nú skortir það eitt á að
ríkisstjórhin hafi manndóm
til þess að viðurkenna orðinn
hlut.
HINU ÓLÖGLEGA DV-LITVARPI
LOKAÐ-EKIÐ Á RANNSÓKNAR
LÖGREGLUMANN AÐ STÖRFUM
Rannsóknarlögreglumaður sem
var að bera út tækjabúnað úr
hinni ólöglegu útvarpsstöð
DV-manna í gær var keyrður
nið-ur utan við DV-húsið við
Sxðumúla. Hann slapp ómeiddur.
Þórir Oddsson, vararannsóknar-
lögreglustjóri ríkisins, stað-
festi þetta í samtaii við BSRB-
tíðindi í gærkvöldi.
Sex rannsóknarlögreglumenn
komu í DV-húsið í gær með
dómsúrskurð frá Sakadómi
Reykjavíkur um að gera ætti
upptækan tækjabúnað hinnar
ólöglegu útvarpsstöðvar.
DV-menn höfðu greinilega haft
spurnir af því að rannsóknar-
lögreglumennirnir væru væntan-
legir og létu skammirnar dynja
á þeim er inn kom. Lögreglu-
mennirnir voru þó ekki hindraðir
í að taka tækin en einhverjir
hlupu út á götu, ^stoppuðu
umferð og báðu fólk að koma
inn og taka fram fyr-ir
hendurnar á lögreglunni.
Enginn sinnti því en eins
og áður sagði var ekið á
einn rannsóknarlögreglumanninn
utan við húsið.
Á sama tíma og tækin voru
gerð upptæk í Síðumúlanum
fór annar hópur rannsóknar-
lögreglumanna upp á efstu
hæð í Austurbrún 2, þar sem
hin ólöglega útvarpsstöðin
var, sú sem kallaði sig
Frjálst útvarp. Rannsóknar-
lögreglan kom þeim mönnum
algjörlega í opna skjöldu
og gekk allt hljóðalaust
fyrir sig þar.
VERKWIiSTtelNDI BSRB
UTGEFANDI: KVNNINGARNEFND BSRB
UMSJÓN HELGI MAR ARTHÚRSSON
FRETTAMAÐUR VALHALLARUTVARPSINS
HANNES HOLMSTEINN GISSURARSON/
FYLGIST MEÐ ÚTIFUNDI BSRB I GÆR