Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða þjónustulundaða bílstjóra til að annast akstur fyrir ráðherra
hjá Stjórnarráði Íslands. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. október 2021.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meginverkefni ráðherrabílstjóra er akstur með ráðherra, ýmis konar þjónustuverkefni og önnur verkefni sem hópstjóri
ráðherrabílstjóra felur bílstjórunum. Vinnutími er breytilegur og því nauðsynlegt að viðkomandi hafi svigrúm til að vinna að
kvöldi og um helgar þegar þess gerist þörf. Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðnar þrekkröfur sem gerðar eru til starfsins
áður en til ráðningar kemur.
Hæfniskröfur
• Hreint sakavottorð skilyrði
• Gild ökuréttindi
• Gott líkamlegt atgervi
• Reglusemi og trúnaður áskilinn
• Stundvísi, snyrtimennska og rík þjónustulund áskilin
• Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp áskilin
• Góð almenn tölvufærni
• Góð færni í íslensku í ræðu og riti skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og
ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Á síðari
stigum ráðningarferlis verður farið fram á að umsækjendur útvegi sakavottorð og útprentun úr málaskrá lögreglunnar.
Ráðið er í stöðurnar til reynslu í sex mánuði með möguleika á fastráðningu í framhaldinu. Áhugasamir einstaklingar, óháð
kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta
gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra
f.h. ríkissjóðs og viðkomandi stéttarfélags
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðkomandi stéttarfélags
Nánari lýsing á starfi er á heimasíðu Intellecta. Upplýsingar veita: Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is)
og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511-1225
Ráðherrabílstjórar
Umbra þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins
Umbra - þjónustumiðstöð
Stjórnarráðsins er miðlæg
þjónustueining sem sér um
tiltekna rekstrarlega þætti
og annars konar þjónustu
fyrir ráðuneyti og stofnanir.
Starfsmenn eru 38 og
notendur þjónustunnar á
sjötta hundrað.
Snjall sölumaður
Vélar og verkfæri er sölu- og þjónustufyrirtæki á sviði rafbúnaðar, aðgangsstýringa, hurða-
og gluggabúnaðar, lása og lykla ásamt verkfærum.
Við óskumeftir að ráða öflugan sölumann
í samhent söluteymi til starfa sem fyrst.
Við leitum að aðilameð reynslu af sölu á
fyrirtækjamarkaði semhefurmetnað til
að ná framúrskarandi árangri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Heimsóknir til núverandi viðskiptavina og
öflun nýrra viðskiptasambanda.
• Tilboðsgerð og eftirfylgni.
• Ráðgjöf og afgreiðsla viðskiptavina.
• Önnur tengd verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Haldgóð reynsla af sölumennsku á fyrirtækja-
markaði er mikill kostur.
• Geta til að vinna sjálfstætt og skipulega,
þjónustulund og góð framkoma.
• Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu
og rituðu máli. Kunnátta í Norðurlandamálum
og/eða þýsku er kostur.
• Iðn- eða háskólamenntun á sviði rafiðnaðar
er mikill kostur.
• Þekking og áhugi á byggingavörumarkaði
er kostur.
• Góð tölvukunnátta.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Siglaugsson í síma 550 8500. Umsóknir ásamt
ferilskrá sendist á starf@vv.is í síðasta lagi 5. maí 2021.
Skútuvogur 1 c • 104 Reykjavík • Sími 550 8500 •www.vv.is
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
Umhverfissjóður
sjókvíaeldis
Umhverfissjóður sjókvíaeldis auglýsir
eftir umsóknum um styrki til rannsókna
sem styðja við markmið sjóðsins um
lágmörkun umhverfisáhrifa af völdum
sjókvíaeldis, samkvæmt reglugerð nr.
874/2019.
Umhverfissjóður sjókvíaeldis starfar
samkvæmt lögum nr. 71/2008 um
fiskeldi, og er sjálfstæður sjóður í eigu
ríkisins á forræði sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Samkvæmt reglugerð nr. 874/2019
um Umhverfissjóð sjókvíaeldis skal
stjórn sjóðsins taka ákvörðun um
forgangsröðun verkefna við úthlutun
hvers árs. Við mat á umsóknum
við úthlutun árið 2021 munu njóta
forgangs rannsóknarverkefni á laxalús,
kynlausum eldisfiskum (genaþöggun)
og orkuskiptum í sjókvíaeldi. Eftir sem
áður styrkir sjóðurinn verkefni á sviði
burðarþolsmats og vöktunar.
Stofnanir, fiskeldisfyrirtæki, einstaklingar
og lögaðilar geta sótt um styrki til
sjóðsins.
Umsóknarfrestur er til klukkan 16:00,
28. maí 2021
Umsóknum er skilað rafrænt á eyðu-
blaðavef stjórnarráðsins.
Nánari upplýsingar á www.anr.is
Nánari upplýsingar veitir:
Anna Guðný Guðmundsdóttir:
anna.gudny.gudmundsdottir@anr.is