Morgunblaðið - 01.05.2021, Page 6

Morgunblaðið - 01.05.2021, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Dómstólasýslan leitar að kröftugum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri er forstöðumaður stofnunarinnar og hefur umsjón með daglegum störfum hennar. Dómstólasýslan er ríkisstofnun sem tók til starfa árið 2018 og er í stöðugri þróun. Hún annast sameiginlega stjórnsýslu dómstólanna og er ætlað að koma með tillögur um hvaðeina sem getur orðið til úrbóta í störfum þeirra. Dómstólasýslan fer m.a. með yfirstjórn upplýsinga- og tæknimála dómstólanna og annast þróun þeirra mála. Í því felst m.a. að leiða dómstólana áfram inn í nýja tíma rafrænna samskipta og rafræns réttarfars. Um fámenna stofnun er að ræða og störf framkvæmdastjóra því afar fjölbreytt og krefjandi. domstolasyslan.is Framkvæmdastjóri dómstólasýslunnar Helstu verkefni og ábyrgð » Daglegur rekstur dómstólasýslunnar » Gerð fjármálaáætlunar, fjárlagatillagna og rekstraráætlunar » Stefnumótun, innleiðing og eftirfylgni » Yfirumsjón og þróun upplýsinga- og tæknimála » Yfirumsjón með skipulagningu símenntunar dómara og annarra starfsmanna » Samskipti við dómstóla, stjórnvöld og alþjóðasamskipti » Fyrirsvar fyrir stofnunina út á við » Ýmis gagnaöflun varðandi málafjölda og mannaflaþörf dómstóla, töluleg úrvinnsla og framsetning gagna Hæfnikröfur » Embættispróf í lögfræði eða grunnám ásamt meistaraprófi í lögum » Fjármálalæsi, þekking og skilningur á rekstri » Þekking og reynsla af stefnumótun » Þekking á störfum dómstólanna » Mjög góð tölvu- og tækniþekking » Þekking á bókhaldskerfi ríkisins er æskileg » Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er kostur » Þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur » Leiðtogafærni og farsæl stjórnunarreynsla » Mjög góð samskipta- og samvinnufærni » Frumkvæði, jákvæðni og skipulagshæfni » Metnaður, dugnaður, þrautseigja og þolinmæði » Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. Þekking á einu Norðurlandamáli er kostur Frekari upplýsingar um starfið Stjórn dómstólasýslunnar skipar í embættið til fimm ára frá og með 1. júní 2021. Um fullt starf er að ræða. Laun og starfskjör framkvæmdastjóra fara eftir ákvörðun stjórnar dómstólasýslunnar. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferil- skrá ásamt kynningarbréfi þar sem m.a. er gerð grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir einstaka hæfniskröfur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Tómas Magnússon formaður stjórnar, sigurdur@haestirettur.is Umsóknir, ásamt fylgiskjölum, berist rafrænt á domstolasyslan@ domstolasyslan.is í síðasta lagi þriðjudaginn 11. maí 2021. Árvakur óskar eftir að ráða kraftmikinn og áhugasaman einstakling til starfa. Viðkomandi þarf að vera jákvæður, skipulagður og öflugur í mannlegum samskiptum. Starfið felur í sér sölu auglýsinga í Morgunblaðið og á mbl.is. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi mikla skipulagshæfileika, getu og metnað að taka þátt í vaxandi starfsemi Árvakurs. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið gefur Silja Jóhannesdóttir, sölustjóri, í síma 569 1170 eða í tölvupósti á netfangið siljaj@mbl.is Sölu- og markaðsfulltrúi ÁRVAKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.