Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 5

Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 5 Verkefnastjóri hjá Þekkingarsetri Vestmannaeyja Þekkingarsetur Vestmannaeyja (ÞSV) óskar eftir að ráða verkefnastjóra í fullt starf frá 1. september nk. Starfið felst m.a. í ráðgjöf, verkefnastjórnun og frum- kvæðisvinnu á sviði byggðamála samkvæmt sér- stökum samstarfssamningi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Verkefnastjóri kemur m.a. að stefnumörkun landshlutans í atvinnu-, samfélags-, umhverfis- og byggðamálum eins og fram kemur í Sóknaráætlun Suðurlands. Starfsstöðin er í skap- andi vinnuumhverfi ÞSV og samstarfaðila að Ægis- götu 2 í Eyjum. Verkefnastjórinn starfar í teymi ráðgjafa og tekur þannig þátt í fjölbreyttum verkefnum hjá sveitar- félögunum fimmtán á Suðurlandi. Þjónustan felst í handleiðslu og ráðgjöf við mótun og þróun verkefna með einstaklingum og fyrirtækjum á sviði atvinnu- og menningarmála. Auk þess að leiðbeina og hafa umsjón og eftirfylgni með styrkveitingum úr Upp- byggingarsjóði Suðurlands. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu í starfi, sjálfstæði og frum- kvæði við úrlausn verkefna. Leitað er að lausnar- miðuðum einstaklingi sem á auðvelt með að vinna með öðrum. Starfssvið • Stuðla að samstarfi fyrirtækja, einstaklinga, félagasamtaka, stofnana og sveitarfélaga á Suðurlandi. • Veita ráðgjöf og handleiðslu um þróun verkefna, s.s. á sviði nýsköpunar-, menningar- og sam- félagsverkefna. • Veita ráðgjöf og handleiðslu um fjármögnun verkefna, í tengslum við styrkumsóknir og aðra fjármögnun. • Þátttaka í að móta, kynna og veita þjónustu. • Þróun og eftirfylgni verkefna, s.s. í tengslum við Sóknaráætluna Suðurlands, Byggðaáætlun og önnur landshluta- og/eða svæðisbundin verkefni. • Almenn verkefnastjórnun og ráðgjöf. Hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Reynsla af verkefnastjórnun/ráðgjöf æskileg. • Þekking, skilningur og reynsla af atvinnu-, sam- félags- og/eða byggðamálum æskileg. • Góð færni í mannlegum samskiptum. • Góð tölvufærni og hæfni í tjáningu í ræðu og riti. • Frumkvæði, sjálfstæði, framsýni og metnaður. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hörður Baldvins- son, frkvstj. ÞSV sími 841 7710. Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2021. Umsóknum um starfið skulu sendar á netfangið hbald@setur.is Orkugarður Grensásvegi 9 108 Reykjavík www.os.is Sérfræðingnum er einkum ætlað að halda utan um eftirlit með framkvæmd leyfa til leitar, rannsókna og nýtingar hagnýtra jarðefna og jarðrænna auðlinda hafsbotnsins ásamt gagnasöfnun, skráningu í gagnagrunn og miðlun talnaefnis um jarðefni, en einnig þátttaka í öðrum verkefnum jarðefnateymis stofnunarinnar. Menntunarkröfur: Meistaragráða í jarðvísindum, umhverfisverkfræði eða sambærileg menntun. Hæfniskröfur: • Sjálfstæð, fagleg og skipulögð vinnubrögð • Góð samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum • Þekking og reynsla af miðlun efnis í ræðu og riti • Góð færni í íslensku og ensku • Kunnátta í einu norðurlandamáli er æskileg • Þekking á landfræðilegum upplýsingakerfum er kostur. • Þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu er kostur. • Þekking og reynsla af störfum tengd jarðrænum auðlindum er kostur Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt, sem og í hópi. Starfið býður upp á möguleika á þátttöku í alþjóðlegu samstarfi. Næsti yfirmaður er orkumálastjóri Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis við viðkomandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar um starfið veita orkumálastjóri Guðni A. Jóhannesson (s.893- 0390) gaj@os.is og Kristján Geirsson, verkefnisstjóri (s.569-6000) kg@os.is Umsóknir skulu berast rafrænt á os@os.is, eða til Orkustofnunar, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2021 Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Orkumálastjóri Orkustofnun: • Annast stjórnsýslu sem stofnuninni er falin með lögum, svo sem auðlindalögum, vatnalögum, raforkulögum, lögum um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins og lögum um kolvetni. • Safnar gögnum um nýtingu orkulinda og annarra jarðrænna auðlinda. • Stendur fyrir rannsóknum á nýtingu orkulinda og annarra jarðrænna auðlinda. • Vinnur að áætlanagerð til langs tíma um orkubúskap þjóðarinnar. • Er stjórnvöldum til ráðuneytis um orkumál og aðra auðlindanýtingu. • Fer með leyfisveitingar vegna rannsókna og nýtingar á auðlindum og orkuvinnslu. • Annast eftirlit með framkvæmd raforkulaga. • Fer með umsýslu Orkusjóðs, niðurgreiðslna vegna húshitunar og Orkuseturs. Sérfræðingur Orkustofnun auglýsir lausa til umsóknar stöðu sérfræðings á málasviði jarðrænna auðlinda. Um er að ræða áhöfn á skip sem fer til Grænlands í sumar og verður þar fram á haust. Þá vantar einnig matsvein á skipið til Grænlands. Einnig vantar skipstjóra og vélstjóra á dráttarbát félagsins sem er með olíuflutningarpramma og sér um að dæla olíu á skip á faxaflóasvæðinu. Þá óskum við eftir skipstjórnarmanni með hafsöguréttindi á Faxaflóasvæðinu. Góð laun í boði. Umsóknir berist á bragi@icetugs.is Nánari upplýsingar gefur Bragi í síma 898 1477 Icetugs ehf óskar eftir að ráða skipstjóra, stýrimenn og vélstjóra atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.