Morgunblaðið - 10.06.2021, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir reynslumiklum
og metnaðarfullum verkefnastjóra í fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsýsla með styrkveitingum innanlands og utan;
móttaka umsókna, skráning, afgreiðsla, bréfaskipti
og umsjón með greiðslum
• Kynningarmál; heimasíða, samfélagsmiðlar,
kynningarbæklingar og fleira
• Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila
• Skipulag og vinna við margvísleg verkefni og
viðburði á vegum Miðstöðvarinnar
• Almenn skrifstofustörf
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Mjög góð færni og þekking á ritvinnslu-, reikni-,
myndvinnslu- og vefforritum
• Innsýn, þekking og áhugi á bókmenntum
• Skipulagshæfileikar, nákvæmni, frumkvæði
og metnaður
• Þekking, reynsla og hæfni í textaskrifum
og miðlun upplýsinga
• Reynsla af erlendu samstarfi
• Mjög góð íslenskukunnátta auk færni og góðrar
kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli
• Lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er 100%. Verkefnastjóri heyrir undir fram-
kvæmdastjóra. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi
fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfsferilskrá og kynningarbréf (1 bls) þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni
viðkomandi í starfið, skal senda á netfangið islit@islit.is,
merkt verkefnastjóri. Gert er ráð fyrir að verkefnastjóri taki
til starfa í ágúst nk.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2021.
Nánari upplýsingar veitir
Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri, hrefna@islit.is
Hlutverk Miðstöðvar íslenskra bókmennta er að efla bókmenningu
á Íslandi með styrkveitingum og ýmsum öðrum hætti. Jafnframt
kynnir Miðstöðin íslenskar bókmenntir erlendis og stuðlar að
aukinni útbreiðslu þeirra.
Miðstöð íslenskra
bókmennta
auglýsir starf
verkefnastjóra
Verksmiðjustjóri
BEWI Iceland óskar eftir að ráða verksmiðjustjóra í nýja
plastkassaverksmiðju á Djúpavogi.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð
! Ábyrgð á framleiðslu
! Þátttaka í uppbyggingu og starfsemi verksmiðjunnar
! Starfsmannahald
! Ábyrgð á áætlanagerð og kostnaðareftirliti
! Samskipti við viðskiptavini og birgja
Menntunar og hæfniskröfur
! Reynsla eða menntun á sviði véla, tækja og
framleiðslu
! Reynsla af stjórnun
! Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
! Góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði
! Góð tölvu- og tungumálakunnátta
Bewi Iceland er nýtt fyrirtæki á Djúpavogi sem
er að reisa 2800 m2 kassaverksmiðju og reiknað
er með að framleiðsla hefjist í lok árs 2021. Á
Djúpavogi er mikill uppgangur í kjölfar
uppbyggingar laxeldis á Austfjörðum.
Djúpivogur er fjölskylduvænt samfélag með alla
helstu þjónustu s.s. leikskóla, grunnskóla,
verslanir og veitingastaði og þar sem auðvelt er
að njóta náttúru og menningar
Umsóknir sendist til helgi@laxar.is og
umsóknarfrestur er til og með 7. júní
2021. Með umsókn þarf að fylgja
starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
hæfni umsækjanda í starfið. Farið verður
með allar fyrirspurnir og umsóknir sem
trúnaðarmál. Bæði konur og karlar eru
hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veita Helgi
G Sigurðsson s: 8661065 og Elís H.
Grétarsson s: 8631022.
Tveir hjúkrunarfræðingar
á skurðstofu
80-100% starf
Leitum að tveimur einstaklingum með íslenskt
hjúkrunarleyfi og reynslu. Leyfi í skurðhjúkrun æskilegt.
Önnur staðan er stjórnunarstaða með yfirumsjón með
skipulagi og verkefnum á skurðstofunum og mun í
fyrstu vinna samhliða núverandi stjórnanda sem mun
láta af störum á næstunni sakir aldurs. Verksvið er
vinna og skipulag á skurðstofum, innkaup, gæðastarf
og eftirlit. Samskipti við sjúklinga og leiðbeining.
Æskileg er góð tölvukunnátta (word/excel), frum-
kvæði, forystu- og samskiptahæfni, stundvísi og
faglegur metnaður.
Upplýsingar veitir Stefán E. Matthíasson framkvæmdastjóri
sem tekur við umsóknum með náms- og starfsferilsskrá auk
meðmælenda, rafrænt á stefan@laekning.is, eða í síma
696 7585. Starfskjör eru samningsatriði en grundvallast á
samningi SA og viðkomandi stéttarfélags.
Skurðstofan ehf hóf starfsemi árið 1996. Þar eru gerðar dagskurð-
aðgerðir í almennum-, æða-, lýta- fegrunar-, bæklunar- og kven-
sjúkdómaskurðlækningum. Frá stofnun rúmlega 45000 aðgerðir.
Alger endurnýjun tækja og búnaðar hefur átt sér stað undanfarið
og býr fyrirtækið nú yfir bestu fánlegu tækni á sínu sviði.
Skurðstofan er lítið fyrirtæki með samheldnum hópi starfsmanna
þar sem lögð er áhersla á góða þjónustu og gæði. Vinnutími er að
öllu jöfnu frá kl 8-16 virka daga.
Lágmúla 5, 108 Reykjavík. S. 590 9213.
Leitum að öflugum
liðsauka
Umsóknarfrestur er til 15.06. 2021.
Aðstoðarmaður
tannlæknis
Tannlæknastofa í Reykjavík óskar eftir aðstoðarmanni
eða tanntækni í 95-100% starf.
Kostur er að viðkomandi hafi lokið tanntæknanámi, en
starfsreynsla þar sem reynir á þjónustulund, frumkvæði,
mannleg samskipti og vönduð vinnubrögð eru mikils
metin.
Æskilegt er að geta hafið störf eftir miðjan ágúst en
annars eftir nánara samkomulagi.
Þau sem hafa áhuga á þessu starfi eru vinsamlegast
beðin um að senda upplýsingar um sig og meðmæli á
netfangið flottartennur@gmail.com fyrir 18. júní nk.
Fullum trúnaði er heitið.
Við
leiðum
fólk
saman
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is