Fiskifréttir


Fiskifréttir - 24.06.1988, Page 2

Fiskifréttir - 24.06.1988, Page 2
SKIN í SKÚRVR VfÓ ONR Umsjón: Halldóra G. Sigurdórsdóttir og Þorsteinn G. Gunnarsson Veiðibann og vont veður Togararnir fóru flestir á veiðar strax að loknum sjómannadegi og komu þeir nær allir til löndunar 13. og 14. júní. Uppistaðan í afla þeirra var þorskur. Veðrið hafði áhrif á veiðar togaranna, sérstaklega Vestfjarðatogaranna. Þeir leituðu nokkrir hafnar undan veðri um miðja síðustu viku með lítinn sem engan afla. Humaraflinn hefur verið lítill það sem af er vertíð, sérstaklega á Höfn, þar sem kvótinn er mestur. Veiðar úthafsrækju ganga ágæt- lega en afli dragnótabáta var frek- ar rýr í vikunni. Annars var aflinn vikuna 12. til 18. júní sem hér segir: Vestmannaeyjar Mánudaginn 13. júní lönduðu tveir togarar; Klakkur landaði 118.4 tn og var þorskur þar af 60.7 tn og ýsa 34.3 tn. Halkion landaði 82.6 tn en þar af var sett í tvo gáma. Báðir togararnir voru sex daga í túrnum. Bergey landaði 14. júní eftir viku túr 168.2 tn og var þar af sett í fjóra gáma. Sindri landaði 16. júní eftir átta daga túr 116.3 tn og skiptist aflinn í eftirtald- ár tegundir: Ufsi 47.6 tn, ýsa 29.3 tn og þorskur 22.9 tn. Gullborgin var á netum og landaði tvisvar sinnum samtals 12.4 tn. Trollbát- urinn Frigg landaði einu sinni rúm- um 30.0 tn og var sett í einn gám af honum. Sigurfari var einnig á trolli en hann landaði einu sinni 32.0 tn en þar af var sett í einn gám. Suðvesturland Þorlákshöfn: Heildarafli báta í vik- unni var 353.3 tn en togarinn Jón Vídalín landaði 14. júní eftir átta daga túr 135.0 tn og var þorskur uppistaðan eða 100.0 tn en 15.0 tn voru af ufsa í aflanum. Þorlákur seldi aftur á móti sinn afla 129.0 tn í Bremerhaven þann 6. júní og feng- ust fyrir aflann um átta miljónir króna. Þeir voru þrír netabátarnir sem lönduðu heima alls 19.9 tn úr fimm sjóferðum. Arnar var afla- hæstur með 15.7 tn úr tveimur róðrum, Særós RE landaði 1.3 tn úr einni sjóferð og Valur RE land- aði tæpum 3.0 tn úr tveimur róðr- um. Sex dragnótabátar lönduðu einusinni hver alls 146.1 tn. Friðrik Sigurðsson landaði 42.4 tn, Höfr- ungur III 37.8 tn, Jóhann Gíslason 34.9 tn, Örn KE 31.0 tn, Aðalbjörg II 8.5 tn og Aðalbjörg RE 9.0 tn. Færabátarnir voru níu sem lönd- uðu en hver bátur réri ekki nema einu sinni og skiluðu þeir róðrar rúmum 4.0 tn á land. Aflahæstur færabátanna var Sif með 880 kg en annars fór aflinn allt niður í 200 kg. Á trolli voru þrír bátar sem lönd- uðu einu sinni hver samtals 103.0 tn. Stokksey landaði 55.0 tn, Guðfinna Steinsdóttir kom með 28.0 tn og Narfi 20.0 tn. Fjórtán humarbátar lönduðu í vikunni samtals 15.8 tn af humri og 64.6 tn af öðrum fiski en alls lönduðu þeir samtals 23 sinnum. Eftirtaldir humarbátar lönduðu tvisvar sinn- um hver: Klængur landaði 2.0 tn af humri og 6.0 tn af öðrum fiski, Júl- íus kom með 1.8 tn af humri og 4.5 tn af öðrum fiski, Dalaröst landaði 1.4 tn af humri og 5.8 tn af botn- fiski, Gulltoppur landaði 0.8 tn af humri og 1.8 tn af öðrum fiski, Jó- hanna Magnúsdóttir landaði 1.5 tn af humri og 3.5 tn af öðrum fiski, Hafnarvíkin landaði 1.1 tn af humri og 6.5 tn af öðrum fiski, Friðrik Bergmann kom með 1.0 tn af humri að landi og 8.5 tn af öðrum fiski og Jóhanna landaði 0.6 tn af humri og 3.1 tn af öðrum fiski. Eft- irtaldir humarbátar lönduðu einu sinni í vikunni: Hásteinn 1.3 tn af humri og 8.2 tn af öðrum fiski, Njörður landaði 0.9 tn af humri og 3.5 tn af öðrum fiski, Snætindur landaði 1.0 tn af humri og 3.5 tn af öðrum fiski, Fróði 0.8 tn af humri og 2.5 tn af öðrum fiski og Kristín kom með 180 kg af humri að landi og tæp 3.0 tn af öðrum fiski. Grindavík: Níu bátar lönduðu humri í vikunni en þeir réru allir einu sinni hver: Þröstur 1.4 tn af humri og 3.9 tn af öðrum fiski, Þórkatla 0.5 tn af humri og 2.7 tn af öðrum fiski, Hraunsvík 0.6 tn af humri og 2.2 tn af öðrum fiski, Sigrún 0.6 tn af humri og 2.2 tn af öðrum fiski, Þorsteinn Gísla 450 kg af humri og 5.8 tn af öðrum fiski, Reynir 0.2 tn af humri og 3.1 tn af öðrum tegundum, Þorbjörn 1.0 tn af humri og 4.4 tn af öðrum fiski, Máni landaði 0.9 tn af humri og Már landaði 850 kg af humri. Fimm trollbátar lönduðu í vikunni og fór Oddgeir í tvo róðra og skil- uðu þeir 8.4 tn á land. í eina sjó- ferð fóru eftirtaldir trollbátar: Sig- urþór 3.0 tn, Ólafur 13.0 tn, Höfr- ungur 38.0 tn og Harpa 19.6 tn. Hafberg var eini netabáturinn sem landaði og skilaði hann 26.8 tn á land úr þeim þremur sjóferðum sem hann fór í. Tveir dragnótabát- ar lönduðu afla: Stafnes fór í tvær sjóferðir sem skiluðu 10.7 tn á land og Eldeyjar-Boði landaði einu sinni 23.8 tn. Tveir færabátar lönd- uðu einu sinni hver: Anna 3.6 tn og Hrappur 290 kg. Keflavík: Fimm netabátar lönduðu afla í vikunni og fóru eftirtaldir í fimm sjóferðir: Gunnar Hámundason 13.0 tn og Svanur 19.1 tn. í þrjá róðra fóru: Hólmsteinn 5.5 tn og Óli 6.6 tn. Þorkell Árnason landaði einu sinni 2.1 tn. Sjö trillur lönduðu á mánu- deginum 13. júní en þetta var afli sem þeir veiddu deginum áður og var þetta alls 5.5 tn. Njarðvík: Bergvíkin landaði 14. júní 170.0 tn og var þorskur þar af 160.0 tn en ýsa 10.0 tn. Sandgerði: Heildarafli báta í vikunni var 283.0 tn en þessi afli fékkst í 55 sjóferðum. Togar- inn Sveinn Jónsson landaði síðan þann 14. eftir átta daga túr 145.0 tn og var mest af karfa í aflanum. Fjórir trollbátar lönduðu og fór Elliði tvisvar sinnum út og skiluðu þeir túrar 58.0 tn á land. Eftirtaldir trollbátar lönduðu einu sinni hver: UnaíGarði5.0tn, Einir23.0tn og Geir goði 17.6 tn. Fjórir netabátar lönduðu; Eldeyjar-Hjalti landaði 12.3 tn úr þeim eina róðri sem hann fór í, Hólmsteinn landaði þrisvar sinnum alls 9.6 tn, Þorkell Árna- son fór tvisvar sinnum út og skil- uðu þeir róðrar 5.3 tn og Bragi sem einnig landaði tvisvar sinnum kom með 4.0 tn að landi. Tveir drag- nótabátar voru að: Njáll sem land- aði þrisvar sinnum kom með 19.4 tn og Hvalsnesið landaði einu sinni 2.3 tn. Jón Helgason var eini línu- báturinn sem landaði en hann réri einu sinni og landaði 1.9 tn. Átta humarbátar lönduðu og fóru eftir- taldir í tvo róðra hver: Jón Gunn- laugs landaði 0.6 tn af humri og 3.5 tn af öðrum fiski, Reynir landaði 1.3 tn af humri og 9.0 tn af öðrum fiski, Hafnarberg landaði 1440 kg af humri og3.7tnaf öðrum fiski og Akurey landaði 690 kg af humri og 4.1 tn af öðrum fiski. í einn róður fóru eftirtaldir humarbátar: Dröfn 650 kg af humri og 2.1 tn af öðrum fiski, Bliki 575 kg af humri og 4.9 tn af öðrum fiski, Nonni 670 kg af humri og Rán landaði 0.7 tn af humri og 1.2 tn af öðrum fiski. Færabátar lönduðu 36.2 tn í vik- unni en alls réru þeir 23 sinnum. Hafnarfjörður: Aðeins fimm bátar réru í vikunni og voru það allt netabátar: Hafbjörg 2.1 tn, Þórður Kristinn 1.3 tn, Ingvi 0.7 tn en þessir lönduðu allir einu sinni hver. í tvo róðra fóru: Frosti 3.6 tn og Rúna 5.3 tn. Reykjavík: Þrír togarar lönduðu í vikunni. Hjör- leifur landaði 13. júní eftir viku túr 150.0 tn og fóru 45.0 tn í gáma. Uppistaða þess sem í gáman fór var þorskur eða 40.0 tn en það sem fór til vinnslu í landi var: Þorskur 76.0 tn, karfi 11.0 tn, ýsa 6.0 tn og steinbítur 5.0 tn. Otto N. Þorláks- son landaði einnig 13. júní og hann var viku í sínum túr en alls kom hann með 217.0 tn og skiptist afl- inn í eftirtaldar tegundir: Karfi 123.0 tn, ufsi 79.0 tn og þorskur 10.0 tn. Jón Baldvinsson landaði 14. júní eftir átta daga túr 190.0 tn og fóru 90.0 þar af í gáma. í gám- ana fóru 66.0 tn af þorski, 14.0 tn af ýsu og 7.0 tn af steinbít en til vinnslu í landi fóru 90.0 tn af þorski og 4.0 tn af karfa. Vesturland Akranes: „Hér var snarvitlaust veður svo minni bátar gátu lítið róið,“ sagði heimildarmaður okk- ar á staðnum en bátar lönduðu 15. og 16. júní. í tvo róðra fóru: Leynir 5.2 tn, Enok 3.8 tn og Bresi 3.0 tn. í eina sjóferð fóru: Valdimar 3.0 tn, Reynir 0.6 tn og Gunnar 1.3 tn. Sturlaugur H. Böðvarsson landaði 13. júní eftir viku túr 127.0 tn og var þorskur uppistaða aflans eða 114.0 tn en annars var 6.0 tn af steinbít í aflanum og 6.0 tn af kola. Kross- víkin landaði einnig 13. júní eftir viku túr 170.0 tn og var þorskur uppistaða aflans eða 140.0 tn. Skipaskagi landaði 13. júní í Hafn- arfirði um 90.0 tn en hann var einnig viku að veiðum. Þorskur var uppistaða aflans. Haraldur Böðvarsson landaði 16. júní eftir fimm daga túr 101.0 tn og var mest af þorski í aflanum eða 83.0 tn en af ýsu var 14.0 tn og steinbít 2.0 tn. Rif: Rifsnesið var á trolli en það landaði tvisvar sinnum alls tæplega 61.0 tn. Hamrasvanur fór í eina sjóferð og landaði 4.3 tn en hann var einnig á trolli. Á netum voru tveir bátar: Jói á Nesi landaði fimm sinnum alls 8.8 tn og Valdís landaði fjórum sinnum samtals 5.5 tn. Tveir dragnótabátar voru að í vikunni: Þorsteinn landaði 3.1 tn úr þeim eina róðri sem hann fór í og Báran landaði tvisvar sinnum alls 2.3 tn. Ólafsvík: Lómur var á netum og fór hann í tvo róðra sem skiluðu 4.3 tn á land. Pétur Jacop var eini handfærabáturinn sem var að en hann réri einu sinni og skil- aði 1.3 tn áland. Átta dragnótabát- ar lönduðu í vikunni: Hringur landaði tvisvar sinnum samtals 7.7 tn, Auðbjörg landaði einu sinni 0.8 tn, Auðbjörg II landaði tvisvar sinnum alls 2.4 tn, Matthildur sem réri fjórum sinnum landaði 7.2 tn, FRÉTTIR Útgefandi: Frjálst framtak hf. Reykjavík Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðjón Einarsson Rítstjórnarfulltrúi: Eiríkur St. Eiríksson Ljósmyndarar: Grimur Bjarnason Gunnar Gunnarsson Kristján E. Einarsson Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 18, sími 685380 Auglýsingastjórar: Hildur Kjartansdóttir Guðlaug Guðmundsdóttir Setning og prentun: Prentstofa G. Benediktssonar Áskrift og innheimta: Ármúla 18, slmi 82300 Pósthólf 8820 128 Reykjavík Áskriftarverð: 1785 kr. Jan.-aprfl. innanlands. Hvert tölublað i áskrift: 111,56 kr. Lausasöluverð: 129 kr.

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.