Fiskifréttir


Fiskifréttir - 24.06.1988, Page 11

Fiskifréttir - 24.06.1988, Page 11
föstudagur 24. júní 11 Fréttir „Vinnslukvótinn verður aldrei minni en kvóti skipa í eigu vinnslustöðvar“ — segir Haiidór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra — Við höfum unnið að þessu máli í fullri samvinnu við Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda og sú reglugerð sem nú lítur dagsins ljós er árangur málamiðlunar sem náðist á Alþingi. Það voru ýmsir alþingismenn sem börðust gegn kvótakerfinu og ég lýsti því yfír að ég myndi vinna að því að sett yrði reglugerð um veiðar og vinnslu og það stend ég við, sagði Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra, er hann var spurður um tildrög þess að ákveðið hefur verið að setja vinnslukvóta á rækjuvinnslustöðv- arnar. Halldór sagði að reglugerðin væri tiltölulega rúm að sínu mati og þar væri tekið tillit til flestra sjónarmiða. Vinnslukvóti rækju- stöðva yrði t.a.m. aldrei minni en rækjukvóti þeirra skipa sem væru í eigu sama fyrirtækis. Ráðherra sagði að ýmsir hefðu brugðist illa við fjölgun rækjuverksmiðja und- anfarin ár en setning þessarar reglugerðar miðaði að því að hamla gegn slíkri fjölgun. Varðandi þann klofning sem virðist vera kominn upp í samtök- um rækjuframleiðenda vegna þessa máls, sagði Halldór Ás- grímsson: — Ég ætla ekki að gerast dómari í því máli. Rækjuframleiðendur verða að leysa sín mál á sama hátt og öðrum aðilum í sjávarútvegi hefur tekist að leysa sín mál á und- anförnum árum. Við höfum unnið að reglugerðinni í samráði við það félag sem verið hefur starfandi í greininni og átt við það gott sam- starf. Halldór Ásgrímsson Lárus Jónsson, framkvæmdastjóri Féiags rækju og hörpudiskframieiðenda: „Þessar deilur stafa af misskilningi“ — Mér vitanlega hafa aðeins tveir rækjuframleiðendur sagt sig úr Félagi rækju- og hörpudisk- framleiðenda, þannig að ekki er um klofning að ræða, svo ég viti til. Ég held að þær deilur sem upp hafa komið stafi af misskilningi og félag- ið hefur ekki beitt sér í þessu máli, sagði Lárus Jónsson, fram- kvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda er hann var inntur eftir afstöðu FRH til vinnslukvótans og þeirra deilna sem upp hafa komið meðal félags- manna vegna hans. Að ' sögn Lárusar hafa verið mjög skiptar skoðanir meðal fram- leiðenda í þessu máli. Eftir að stjórnvöld höfnuðu málaleitan Fé- lags rækju- og hörpudiskframleið- enda um að vinnslan fengi ráðstöf- unarrétt yfir helmingi þess 36 þús- und tonna rækjukvóta sem ákveðinn var, komu fram þau sjónarmið að eðlilegt væri að setja stýringu á vinnsluna í kjölfar kvóta á veiðiskipin. Samkomulag náðist um þetta mál á Alþingi en að sögn Lárusar hafa nokkrir framleiðend- ur ekki viljað sætta sig við þessi málalok. — Ég lít svo á að hér sé um tilraun að ræða og því hefur verið margsinnis lýst yfir að reglugerðin eigi aðeins að gilda til áramóta og verði þá væntanlega endurskoðuð, sagði Lárus en hann sagði að það væri sjávarútvegsráðuneytið sem tæki ákvörðun um kvótaskiptingu milli einstakra verksmiðja. „Meiriháttar mistök“ foSurUú „Það er að okkar mati ófært, nú þegar komið er fram í júní, að banna með reglugerð tilteknum rækjuverksmiðjum að kaupa meira en eitthvert ákveðið magn af rækju til vinnslu. Þessar verk- smiðjur eru búnar að gera samn- inga við ákveðin skip um kaup á rækju og slík reglugerð myndi ganga þvert á þá samninga,“ sagði Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ í samtali við Fiskifréttir um fyrirhugaðan vinnslukvóta á rækju. „Aðdragandi þessa máls er búinn að vera langur og fæðingar- hríðir miklar," hélt Kristján áfram, „og ég trúi því ekki, að nú I háttar mistök, ef þetta yrði gert sé komið barn. Það væru meiri- | nú.“ Togvírar- Dragnótavírar Fyrirliggjandi togvírar og dragnótavírar V/” - 1.%” Sömu gæði og áður. Gott verð. Jónsson & Júlíusson Ægisgata 10 - sími 25430 Dæludrif Getum afgreitt með stuttum fyrirvara Castoldi dæludrif, fyrir vélar upp í 1200 hestöfl. Kjörinn drifbúnaður fyrir hraðgenga báta. Castoldi drifin eru með innbyggðum gír og tengjast því beint við vél. Vélar & Taekl hf. Maríne & Technical Ltd. Tryggvagata 18, simar 21286 — 21460 Til sölu LAUSN BA-107 Mjög vandaður bátur, vel útbúinn. Góð greiðslukjör. Upplýsingar í síma 91-45454 l—

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.