Hamar - 18.06.1937, Side 3
Sósialistar kasta grímnnni
í bafnarmálinu
Sýnishorn af kjörseðli við Alþingiskosningar í Hafn-
arfirði 20. júní 1937.
Emil Jónsson.
Frambjóðandi Alþýðuflokksins.
X Bjarni Snæbjörnsson.
Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins.
A. Landslisti Alþýðuflokksins.
B. Landslisti Bændaflokksins.
UUHl t___
C. Landslisti Framsóknarflokksins.
D. Landslisti Kommúnistaflokksins.
E. Landslisti Sjálfstæðisflokksins.
Þannig lítur kjörseðillinn út eftir að frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Snæbjörnsson, hefir verið
kosinn.
Á þingmálafundinum, sem liald-
inn var hér um daginn sagði
Guðm. Gissurarson, bæjarstjóri og
tútnaði allur út af vandlætingar-
ofsa, að það væri hringavitleysa
að vera aðráðgerahafnarbæturhér
í Hafnarfirði, og það var á hon-
um að heyra, að hann teldi þær
óþarfar með öllu. En það er svo
sem ekki í fyrsta skiftið að þeir,
sem aldrei hafa verið við sjó né ó
sjó þykjast dómbærari okkur hin-
umum þá hluti, er til þarf þar að
lútandi. T. d. samþvkti síðasta
flokksþing framsóknarmanna, að
koima á s. 1. Alþ. fram breytingum
á lögum um atvinnu við siglingar,
sem höfðu, á þinginu þar áður,
verið afgreidd sem lög og því ekki
húin að vera í gildi nema um 8
mánuði!
Sósíalistar hafa þá nú loksins
kastað grímunni í þessu máli, því
að liingað til hafa þeir ávalt þóst
vera fylgjandi hafnarmálinu og
rekið staura og lagt pramma með
rauðum haujum útaf hverju horni
i höfnina, svona rétt. fyrir kosning-
ar. Niðurstöður þeirra eru þá orðn-
ar þessar eftir allan þennan tíma,
og gæti eg trúað þvi að mörgum
þætti það hafa tekið nokkuð lang-
an tíma hjá þeim, að komast að
þessum niðurstöðum.
Fyrverandi bæjarstjóri sagði að
höfnin yrði of dýr, kostaði 5—6
milj. og því útilokað að ráðast í
hafnarbyggingu, en leggur þó eng-
ar skjallegar sannanir fram því til
staðfestingar.svo af því mættiráða
hvað ráðlegast mætti teljast að
gera, en eg gæti trúað því að
Hafnarfjörður væri ekki ver
staddur fjárhagslega fyrir því og
ætti þó annan garðinn talsvert á
veg kominn, því ef gert er ráð fyr-
ir að til lians hefði verið notað fé
hafnarsjóðs, eins og til stóð, ásamt
ríkisframlagi, veittu atvinnubóta-
fé, í stað þess að láta það fara í
óarðbært klakahögg, minkuðu fá-
tækraframfæri, í gegn um aukna
atvinnu o. fl. En slíkt þóknaðist
sósíalistum ekki. Það er því mein-
ing þeirra að þetta ófremdar
ástand haldist áfram, ástand, sem
á s. 1. vetri orsakaði tjón á bæði
mönnum og eignum, eins og oft
endranær, enda mun ekki greitt
um, fjárhagsins vegna. Er þetta
einhver sú alaumasta frammi-
staða, sem til þekkist, þar sem um
hafnarbætur liefir verið að ræða.
T. d. hafa ísfirðingar bygt höfn og
rak þá enginn slíkur nauður til,
sem okkur, því að þeir þurftu ekki
að bægja frá sér hafsjónum, hann
veltur ekki inn á pollinn á Isa-
firði, og þættumst við liér í Hafn-
arfirði víst hólpnir ef við hefðum
ekki við nema vindbáruna að
slríða. •
Hafnf'rsku sósíalistarnir liafa
nú snúið baki við sjónum og
hlaupa nú undan öldunni, þeir
hlaupa alla leið upp i hraunið hér
fyrir sunnan Hafnarfjörð til að
liamast þar að vegabótum suður
til Krýsuvíkur fyrir Austanmenn.
Þar liafa sósialistar það sem þeim
líkar. Það þykir þeim eitthvað
hjörgulegra heldur en að fást við
að auka möguleika fyrir aukinni
útgerð í Hafnarfirði, og það er í
þessa átt og i þessar og
þvílíkar framkvæmdir, sem
þeir vilja og ætla að moka
úr hlössunum, eins og Emil
sagði. Það má umfram alt
ekki eiga sér stað, að því sé mokað
i liafnfirskar liafnarbætur, heldur
verður að moka frá sjónum. Sjó-
menn og verkamenn við sjóinn
mega hara hafa ánægjuna af því
að vinna fyrir því sem mokað
verður.
Við leggjum nú af stað á síld-
veiðar og vonandi tekst að afla
þess sem með þarf, þeim til lífsvið-
urværis, sem framdrátt sinn eiga
undir afkomu útvegsins, en þegar
við svo komum aftur heim í haust,
má hamingjgan vita hvort ekki
stendur svo á að norðvestan
stormur verði og því ekki aðkomu
auðið hér vegna rafróts, en þá á
huggunin að vera sú að liinir ráð-
snjöllu sósíalistar eru að vegar-
lagningu suður í Krýsuvik, en þeir
af þeim, sem hvorki hreyfa haka
eða skóflu, sitja heima og láta sig
dreyma um notalegan stofuhita,
fenginn sunnan úr gufuliverunum
í Krýsuvík.
En hvað viðvíkur hafnarmálinu,
þá hafa sósíalistar aldrei fyrr þor-
að að ganga svo í berhögg við það,
sem á áðurnefndum þingmála-
fundi, og harma eg það ekki þótt
þeir sýndu þar sitt rétta innræti.
En livað sem sósíalistar segja, þá
er og verður hafnarmálið mál mál-
anna fyrir okkur Hafnfirðinga, og
það sem við liljótum að krefjast
er að á því séu engin vetlingatök,
að fá úr þvi skorið á hvern hátt
það verði best leyst og verða að
koma fram skjallegar áætlanir,
sem byggja má á, áður, því full-
yrðingar gerum við okkur ekki
ánægða með. I því sambandi vil eg
henda á, að margur maðurinn
hefir fundið þörfina fyrir sig að
eignast skýli yfir höfuðið og ekki
látið allar framkvæmdir stranda á
þvi einu, að hann ekki hefði á-
stæður til að byggja eins og hann
helst hefði kosið og þannig eigum
við Hafnfirðingar auðvitað að fara
að, ef svo við liorfir. Við eigum að
byrja á því að byggja hafnargarð
norðan-verðu frá og láta byggingu
suðurgarðs bíða, ef ekki reynist
kleift að byggja tvo garða, því að
norðurgarðurinn liggur betur við
til þess að taka úr mesta kraft-
sjónum, og er eg þess fullviss að
þegar hann væri kominn, mundi
stillast svo sjór hér í höfninni að
ekki mundi ástæða til að óttast
um stórskemdir á skipum né
K J Ó S I Ð
BJARNA SNÆBJÖRNSSON.
mannvirkjum, og að öllu leyti
greiðast svo um við alla aðstöðu,
að viðunandi mætti þykja hjá því
sem nú er.
Ummæli þau er Guðm. Gissurar-
son lét sér um munn fara, og áður
er á minst, á fyrnefndum þing-
málafundi, eru svo ómakleg, að
þannig talar enginn innfæddur
Hafnfirðingur, eða aðrir, sem
dvalið hafa hér langvistum og eru
orðnir samgrónir plássinu. Þannig
talar enginn, sem rekur minni til
þess er gufuskipið „Adria“ fórst
hér á klettunum, 5 menn drukn-
uðu en hinum varð bjargað við ill-
an leik, mjög langt leiddum. Þann-
ig talar enginn sem man þann
dag er seglskipið „Syltholm“ rak
hér á land og brotnaði í spón á
einu flæði, en mannskapnum var
hjargað á síðustu stundu, áður en
skipið lenti í brimgarðinum. Þann-
ig talar enginn nema sá, sem eng-
an skilning hefir á þessum málum
og lætur sig engu skipta þá bar-
áttu sein hér er lýst.
Get eg látið mér i léttu rúmi
liggja hringavdtleysur sveitapilta
og annara þeirra, sem af jafngild-
um ástæðum sýna hafnarmálinu
skilningsleysi, manna, sem virðast
liorfa starblindum augum á þá
baráttu, sem hér er háð vegna
þessara örðugleika, manna, sem
að jafnaði hvergi nærri koma og
lialda sig inni í stofuliita innan
fjögra veggja, ef nokkuð er um að
vera, en ganga svo hlygðunarlaust
gegn því að nokkuð sé aðhafst til
bóta. Sú afstaða er, vægast sagt,
fjandsamleg hafnfirskum hags-
munum.
Sigurjón Einarsson.
Hafnarmálið er stærsta
velferðarmál hæjarlns.
Emil Jónsson var ráðinn til að
leysa það mál — en hann sveikst
um að gera það, eins og svo margt
annað. Munið það, Hafnfirðingar,
við kjörborðið.
Með byggingu hafnargarðs vinst
þrennt:
1. Mannvirkjunum, sem þegar
eru til við höfnina, yrði forðað frá
eyðileggingu.
2. Skipastóll bæjarins yxi í skjóli
góðrar og öruggrar hafnar.
3. Almenningur í bænum fengi
næga atvinnu.
—o—
Sjálfstæðismenn ætla að hrinda
þessu merkasta nauðsynjamáli
bæjarins í framkvæmd, ef þeir fá
meirihluta-aðstöðu bæði á þingi og
í bæjarstjórn.
—o—
Hafnfirðingar! Þessa aðstöðu
getið þið skapað með atkvæði ykk-
ar á kjördegi. Fylkið ykkur um
frambjóðanda Sjálfstæðisflokks-
ins, Bjarna Snæbjörnsson!