Fiskifréttir


Fiskifréttir - 03.11.1995, Blaðsíða 8

Fiskifréttir - 03.11.1995, Blaðsíða 8
8 Norsk-íslenski síldarstofninn Langþráð skýrsla fiskifræðinga frá ísiandi, Noregi, Rússlandi og Færeyjum um norsk-íslenska sfldarstofninn, sem birt var í lok síðustu viku, varpar ljósi á skiptingu stofnsins eftir efnahagslög- sögum þessara landa á árabilinu 1948-1995 og afla hverrar þjóðar fyrir sig. Hún segir hins vegar ekkert um það hvaða tímabil sé eðlilegast að miða við þegar kemur að skiptingu heildarkvótans, enda var fískifræðingunum ekki ætlað að setjast í dómarasæti. Það verður hlutverk samningamanna ríkjanna á næstunni að togast á um þessa skiptingu og þeir munu geta sótt sér rök í skýrsluna fyrir nánast hvaða niðurstöðu sem þeim þóknast. 1950 -1962 Mynd 1. Á árunum 1950-1962 gekk nær allur norsk-íslenski síldarstofninn að lokinni hrygningu í ætisleit á svæðið norður af Færeyjum, austan og norðan íslands og milli íslands og Jan Mayen. Þarna hélt sfldin sig þar til haustaði og hafði vetursetu úti af Austfjörðum mánuðina október-desem- ber. Hún gekk síðan austur um á hrygningarstöðvarnar við Noreg í janúar og febrúar. Tafla 1. Heildarafli norsk-íslenskrar sfldar (sumar/vetur, smásfld/ feitsfld/stórsfld 1950-1962 í þúsundum tonna. Veiðiþjóðir Efnahagslögsaga Færevj. ísland Noregur USSR Samtals % Færeyjar 77,7 13,4 523,0 641,1 4,0 ísland 72,2 558,0 240,2 978,8 1858,2 12,1 Jan Mayen 5,3 483,6 488,9 3,2 Noregur 0,6 11311,0 484,4 11760,0 76,3 USSR 101,8 101,8 0,7 Alþjóðleg svæði 466,6 466,6 3,0 Evrópubandalagið 84,4 84,4 0.6 Ótilgreint 19,2 19,2 Samtals tonn 150,5 558,0 11589,1 3095,7 15393,2 % 1,0 3,6 75,3 20,1 100,0 100,0 Tafla 1. Á þessu tímabili veiddu íslendingar 3,6% af heildaraflanum en hins vegar voru 12,1% veidd innan íslenskrar efnahagslögsögu. Svipað er uppi á teningnum ef aðeins er tekið tillit til stórsíldarinnar, eins og sést á töflu 2 hér fyrir neðan. Tafla 2. Stórsfldarafli norsk-íslenskrar sfldar (sumar/vetur) 1950-1962 í þúsundum tonna. Veiðiþjóöir Efnahagslögsaga Færevj. ísland Noregur USSR Saratals % Færeyjar 77,7 13,4 523,0 641,1 5,0 ísland 72,2 558,0 240,2 978,8 1858,2 15,1 Jan Mayen Noregur USSR Alþjóðleg svæði Evrópubandal agi ð Ótílgreint 0,6 5,3 8363,9 19,2 483.6 484,4 466.6 84,4 488,9 8812,9 466,6 84,4 19,2 4,0 71,3 3,8 0,7 0,1 Samtals tonn 150,5 558,0 8642,0 2993,9 12344,4 % 1,2 4,5 70,0 24,3 100,0 100,0 „Þctta verður endalaust mats- og samningsatriði. Menn verða hins vegar að hafa það að leiðar- ljósi að byggja stofninn upp og nýta hann skynsamlega þannig að hann skapi öllum þjóðunum fjór- um, sem hlut eiga að máli, framtíð- armöguleika. Við höfum upplifað það að hægt er að eyða uppsjávar- stofni eins og síldinni. Það má ekki koma fyrir aftur, — Norðmenn verða að skilja það,“ sagði Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ í sam- tali við Fiskifréttir. Hann vildi ekki á þessari stundu leggja mat á það hversu stóra hlut Islendingar ættu að krefjast úr heildarkvótanum. Þegar hefur komið fram í frétt- um frá Noregi, að Norðmenn telja eðlilegast að miða skiptingu heild- arkvótans við tímabilið frá 1972 til dagsins í dag, þegar síldin hefur að langmestu leyti veiðst í norskri lög- sögu og yfirgnæfandi meirihluti aflans komið í hlut Norðmanna. Á þessu tímabili hefur afli Islendinga enginn verið, ef frá eru talin árin 1994 og 1995. Það kæmi ísle'nding- um hins vegar best að miða við tímabilið 1963-1971 þegar íslensk skip veiddu 27% heildaraflans og 35% stórsíldaraflans. í skýrslu fiskifræðinganna er tímabilinu 1950-1962 lýst sem „normal“ tímabili í göngum síldar- innar (sjá mynd 1). Á því tímabili veiddist 12-15% aflans í íslenskri lögsögu en hlutur Islendinga var 3,6-4,5%. Talið er að nú séu um 3,7 millj- ónir tonna af fullorðinni síld í stofninum, en á næstu árum muni tveir stórir árgangar frá 1991 og 1992 bætast í stofninn. Miðað við hóflega ársveiði (800-1000 þús. tonn) er gert ráð fyrir að hinn kyn- þroska hluti stofnsins vaxi við þetta í 6-8 milljónir tonna. Til sam- anburðar má geta þess að þegar stofninn var stærstur eftir 1950 er talið að hann verið allt að 12 millj- ónir tonna og að hann hafi jafnvel verið ennþá stærri á stríðsárunum. Á meðfylgjandi teikningum og töflum sjást göngur síldarinnar og skipting aflans eftir ríkjum og veiðisvæðum á þeim tímabilum sem skýrsla fiskifræðinganna nær til. Lesendum geta síðan hver um sig lagt mat á það hver sé eðlilegur afli okkur til handa í þessu síldar- stríði. Á sfldarplani á Seyðisfirði. (Mynd: Snorri Snorrason). 1963 Tafla 3. Nú eru tölurnar orðnar okkur öllu hagstæðari. Á þessu tímabili veiða íslendingar 26,6% af heildaraflanum og 27,8% eru veidd innan íslenskrar efnahagslögsögu. Sé aðeins tekið mið af stórsíldaraflanum (sjá töflu 4) eru samsvarandi tölur 35,1% og 36,7%. Mynd 2. Tímabilið 1963-1971 var mikið breytingarskeið. Á árunum 1963- 1966 var stofninn tvískiptur. Hluti hans gekk yfir á Færeyja-íslands-Jan Mayen svæðið eins og áður er lýst. Ætissvæði hins hlutans var þá vestur og suðvestur af Bjarnarey og hafði sá hluti stofnsins vetursetu úti af Norður-Noregi og hrygndi við Lófót fram til 1965. Haustið 1966 gekk þessi síld hins vegar til vetrardvalar á Austfjarðamiðum. Tafla 4. Stórsfldarafli norsk-íslenskrar sfldar (sumar/vetur) 1963-1971 í þúsundum tonna. Veiðiþjóðir EfnahagstBgsaga Færevj. ísland Noregur USSR Samtals % Færeyjar 57,2 107,0 15.6 333,7 513,5 8,5 ísland 113,2 1604,7 131,3 466,4 2115,6 36,7 Jan Mayen Noregur TTRSR 4,0 307,6 31,4 1519,0 352,9 469,1 691,9 1992,1 11,0 31,5 Svalbaröi Alþjóðleg svæði 130,5 61,0 28,9 399,3 49 4 159.4 460,3 2,5 7,3 Ótiigreint 5,0 0,6 50.1 55,7 1 l 1,1 Sámtals tonn 179,4 2211,4 1776,3 2063,8 6251,0 % 2,9 35,1 28.2 33,1 99,3 99,3 Tafla 3. Heildarafli norsk-íslenskrar sfldar (sumar/vetur, smásfld/ feitsfld/stórsfld 1963-1971 í þúsundum tonna. Veiðiþjóðir Efnahagsiögsaga Færeyj. ísland Noregur USSR Samtals % Færevjar 57,2 107,0 15,6 333,7 533,5 6,4 ísland 113,2 1604,7 131,3 466,4 2115 (, 27,8 Jan Mayen Noregur USSR 4,0 307,6 OJ U> t— o V 352,9 469.1 217.2 691,9 3806,1 217,2 8,3 45,7 2,6 Svaíbárði 130,5 : i 28,9 159,4 1,9 Alþjóðleg svæði 61,0 399,3 460,3 5,5 Evrópubandalagið 42,4 42,4 0,5 Ótilgreint 5,0 0,6 50,1 55,7 0,2 Samtals tonn 179,4 2211,4 3590,3 2301,0 8282,1 O/ /o 2,2 26,6 43,1 27,6 99,5 97,9 9 — fiskifræðingar íslands, Noregs, Rússlands og Færeyja hafa skilað skýrslu sinni um norsk- íslenska síldar- stofninn. Nú kemur að stjórn- málamönnunum að bítast um síldarbitann síldin að sækja á ný í vaxandi mæli vestur í Noregshaf eftir æti. Á síðastliðnu sumri voru ætisgöngurnar eins og sést á þessari mynd, enda hafði stofninn þá enn vaxið með tilkomu árganganna frá 1985 og 1988- 1990. Sfldin fór lítillega inn fyrir íslensku lögsöguna í júní á leið sinni norður og austur á bóginn en dvaldi þar skemur en menn höfðu vonast til. Tafla 5. Heildarafli norsk-íslenskrar síldar (sumar/vetur, smásíld/ feitsíld/stórsíld 1972-1985 í þúsundum tonna. Efnahagslögsaga Vviðiþjnðir Samtais % Færeyj. ísland Noregur USSR Færeyjar ísland Jan Mayen Norcgur 400,2 400,2 99.4 USSR Alþjóðleg svæði Evrópubandalagið Ótilgreint 2,6 2,6 0,6 Samtals tonn 0,0 0,0 400,2 2,6 402,8 % 0,0 0,0 99,4 0,6 100,0 100,0 Tafla 5. Á þessu tímabili er lítið af sfld og hún er öll við Noreg. Tafla 6. Stórsíldarafli norsk-íslenskrar sfldar (sumar/vetur) 1986-1995 í þúsundum tonna. Efnahagslögsaga Veiðiþjóðir Samtals % Færeyj. ísland Noregur USSR Færeyjar 50,0 116,2 166,2 6,9 ísland 2,5 11,0 13,5 0,6 Jan Mayen Noregur USSR Svalbaröi Alþjóðleg svæöi Evrópubandalagið Ótilgreint 7,9 64,5 4,1 1842,1 5,5 297,3 26,0 4,1 2139,4 26,0 77,9 0,2 88,2 1.1 3.2 Samtals tonn 60,4 191,7 1851,7 323,3 2427,1 % 2,5 7,9 76,3 13,3 100,0 100,0 Mynd 3. Árin 1967-1968 varð sú grundvallarbreyting að sfldin hætti með öllu ætisgöngum sínum á íslandsmið en hélt þess í stað norður um miðju Noregshafs í æt- isleit vestur af Bjarnarey og Sval- barða. Veturseta varð eftir sem áður úti af Austfjörðum bæði árin. Því má svo bæta við að á tímabilinu 1972-1986 hélt fullorðna sfldin sig alfarið nærri norsku ströndinni. Tafla 7. Skipting alls norsk-íslenska sfldarstofnsins í þyngd eftir efnahagssögu og tímabilum. 1945-1962 % 1965-1971 % 1972-1985 % 1986-1995 % Færeyjar 8,8 7,1 0.0 1,3 ísland 27,5 26.6 0,0 0,1 Noregur Jan Mayen Rússland Smugan í Noregshafi Svalharði 22.0 11.0 22.3 69 0,1 36.7 3.0 11,2 5,9 9,1 :: 100,0 0.0 0.0 0.0 0,0 87,3 1,0 II 6;2 3,1 0,9 Smugan í Barentsltafi Evrópubandalagíð 0,6 0,7 0,0 0.5 0.0 0,0 0,1 0,0 Tafla 8. Skipting hins kynþroska hluta norsk-íslenska sfld- arstofnsins í þyngd eftir efnahagssögu og tímabilum. 1945-1962 1963-1971 1972-1985 1986-1995 % % % Færeyjar 13,2 8,8 0,0 1,4 ísland 41,0 33,0 0,0 0,2 Noregur Jan Mayen Rússland Smugan í Noregshafi 18,0 16,4 (1.0 10,3 35,9 3,7 3,4 7,3 100,0 0,0 0.0 0,0 93,0 1.1 0.0 3,4 Svalharði 0.0 7,2 0,0 0,9 Smugan í Barentshafi 0,0 0,0 0,0 0,0 Evrópubandalagið 1,0 0,7 0,0 0,0

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.