Fiskifréttir


Fiskifréttir - 03.11.1995, Blaðsíða 3

Fiskifréttir - 03.11.1995, Blaðsíða 3
FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. nóvember 1995 3 Tækninýjungar Nýr langdrægur sónar frá Furuno: Greindi Irol- munnatorfu á fimm þúsund metra dýpi — kominn í fjögur íslensk fiskiskip Ný gerð Furuno sónars, CSH-22F, hefur vakið mikla athygli og hafa fjórir slíkir sónarar verið seldir í fjögur íslensk skip frá því að tækið kom fyrst fram fyrir einu og hálfu ári. Helsti kostur nýja sónarsins er mikil langdrægni en samkvæmt fréttum í Fishing News Interna- tional hafa kolmunnatorfur fundist niður á allt að 5000 metra dýpi með þessu nýja fiskileitartæki. Að sögn Jóns Steinars Arnason- ar, sölustjóra Brimrúnar hf. sem hefur umboð fyrir Furuno hér- lendis, hafa viðtökurnar við nýja sónarnum verið slíkar að nú er um sex mánaða afgreiðslufrestur á tækinu. íslensku skipin fjögur, sem fengið hafa CSH-22F sónar- inn, eru nótaskipin Júpíter f>H, Is- leifur VE, Börkur NK og frystitog- arinn Guðbjörg IS. Nýi sónarinn er endurbætt gerð eldri sónars, CSH-20F, en þrjú tæki af þeirri gerð hafa verið seld í íslensk skip. Samkvæmt upplýsingum Jóns Steinars er hægt að fá nýja sónar- inn ýmist 24,28 eða 32 kílóriða en vegna þess hve tíðnisviðið er lágt Skjámynd af langdræga Furuno CSH-22F sónarnum er langdrægnin mjög mikil. Sónar- inn er með innbyggðum magnmæl- um sem greina á milli einstakra fiskitorfa með nákvæmni þannig að aðeins skakkar 50 tonnum til eða frá. í frétt FNI segir að sónar af þessari gerð hafi verið settur í norska tog- og nótaskipið Seta fyrir kolmunnavertíðina, sem stendur frá í febrúar og fram í maí, og hafi áhöfn skipsins náð að Fiskifélag íslands: Ný bók um fiskileitartæki „Fiskileitartæki, — undirstaða, tækjaumfjöllun, bergmálsmæling- ar“ heitir nýútkomin bók sem Fiskifélag íslands gefur út. Höf- undar eru Stefán A. Kárason og Emil Ragnarsson hjá Tæknideild Fiskifélags Islands og Fiskveiða- sjóði íslands og Páll Reynisson á Hafrannsóknastofnun. Bókin leysir af hólmi eldri bók um fiskileitartæki sem Fiskifélagið gaf út undir umsjón Jakobs Jak- obssonar. Nýja bókin er ætluð nemum í stýrimannanámi, svo og nemum í tækninámi á sviði raf- eindavirkjunar, auk þess sem ákveðnir kaflar nýtast í faginu „Veiðitækni" sem kennt er við sjávarútvegsdeild Háskólans á Ak- ureyri. Einnig ætti bókin að nýtast ýmsum tæknimönnum, skipstjórn- armönnum og öðrum sem áhuga hafa á því að dýpka skilning sinn á þessu sviði, eins og Emil Ragnars- son, einn höfundanna, segir í for- mála. SALTFISKKASSAR - 25 KILOA íslenskir nótaskipstjórar kynntu sér CSH-22F sónarinn á dögunum. Á myndinni eru frá vinstri: Sveinn Kr. Sveinsson tæknistjóri Brimrúnar, Reynir Jóhannsson skipstjóri á Víkurbergi GK, Gunnar Gunnarsson skip- stjóri á Svani RE, Jón Eyfjörð skipstjóri á Þórshamri GK og Guðmundur Sveinbjörnsson skipstjóri á Sighvati Bjarnasyni VE. I baksýn er Jón Steinar Árnason. Fiskmarkaðir Allir markaðir Vikan 22.-28. okt. 1995 Hám. Lágm. Meðal- verð verð verð Magn Tegund (kr/kg) (kr/kg) (kr/kg) (kg) Annar afli Grálúða Karfi Keila Langa Lúða Skarkoli Steinb. Ufsi Ýsa Þorskur 315,00 165,00 93,00 145,00 141,00 530,00 129,00 270,00 86,00 164,00 180,00 5,00 165,00 30,00 20,00 40,00 90,00 20,00 40,00 30,00 26,00 40,00 90.594 16.093 37.666 51.346 42.679 4.815 21.386 12.043 43.028 136.306 152.385 63,50 165,00 71,94 65,08 115,76 382.23 112,19 111.24 77,42 98,84 121,42 99,10 608.341 greina kolmunnatorfu á 5000 metra dýpi með tækinu. Afli Setu á vertíðinni varð alls 15 þúsund tonn af kolmunna og var það mesti heildaraflinn á vertíðinni. Ör þróun hefur orðið í gerð fiskileitartækja að undanförnu og Jón Steinar segir að það færist í vöxt að best útbúnu fiskiskipin séu með tveimur til þremur Furuno sónurum. Þetta á einkum við um skip sem stunda bæði nóta- og flot- trollsveiðar. Þau eru þá útbúin með hinum langdræga CSH-22F og annað hvort CSH-82, sem er hægt að fá 78,84,95 og 107 kílóriða, eða CSH-71 sem er 180 kílóriða. Furuno CSH-82 er alveg nýr á markaðnum en hinn síðast nefndi hefur reynst mjög vel á t.d. makríl- veiðum. Makrfllinn er sundmaga- laus og kemur því illa eða ekki fram á lágtíðnisónurum, eins og ís- lensku skipin nota, en með há- tíðnisónurum er hins vegar hægt að finna makríltorfur á mjög af- mörkuðu svæði og með miklu meiri nákvæmni á grunnu vatni en áður hefur verið hægt. — Það er ekki bara makríllinn sem getur verið erfiður. Það getur oft reynst erfiðleikum bundið að finna loðnuna ef hún er dreifð og mikið er um hita- eða straumskil. Við slíkar aðstæður lofar nýi CSH-82 sónarinn mjög góðu, segir Jón Steinar Arnason. NÝTT TILBOÐ TIL ALLRA SALTFISKFRAMLEIÐENDA ^Ný stærð: 580 X 380 X 155mm ( Hækkar um 15mm ) %/ Viðurkennd gæðavara. > Bestu fáanleg verð %/ Einnig 25 kílóa kassi af stærðinni 760 X 383 X 140mm F./stóra fiskinn '■■/ Báðar stærðirnar fyrirliggjandi á iager hjá Jóni Ásbjörnssyni, en í eigu DANAPAK ^)ón xd-sbj 'ómsson kji. ÚTFLUTNINGS- OG HEILDVERSLUN Geirsgata 11 • Pósthólf 286 • 121 Reykjavík Sími 551 1747- Fax 551 9463 Danapak Cardboard Packaging Ltd. Box 60, Aastrupvej 30, DK-8500 Grenaa, Danmark Sími: 0045 86 32 23 00 (Jens Sörensen) Fax: 0045 86 32 57 06

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.