Fiskifréttir


Fiskifréttir - 02.05.2003, Síða 1

Fiskifréttir - 02.05.2003, Síða 1
ISSN 1017-3609 Allt til útgerdar www.isfell.is ísfell ehf • Fiskislóð 14 • 121 Reykjavík • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is FRETTIR 16. tbl. 21. árg. föstudagur 2. maí 2003 - Góður rallafli f Faxa- flóa Netarallinu lauk nýlega, en sjö bátar tóku þátt í því víðs vegar við landið. Vilhjálmur Þorsteinsson fiskifræðingur, sem hefur yfirumsjón með netarailinu, varðist allra frétta þegar Fiskifréttir ræddu við hann í þessari viku, enda væri ekki búið að taka saman niðurstöður mælingarinnar. Þessi mynd var tekin um borð í einum rallbátanna, Arnari SH frá Stykkishólmi, í Faxaflóa og sýnir Olaf Karvel Pálsson Ieiðangursstjóra (lengst til vinstri) ásamt rannsóknamönnunum Einari Asgeirssyni og Agnari Þor- steinssyni við sýnatöku. Skip- stjórinn á Arnari SH lét vel af afla bátsins í rallinu og sagði hann útkomuna hafa verið betri en undanfarin ár. Sjá nánar bls. 3. 1 • J Ný mæling á hörpudiskstofninum á Breióafirói: Staöfestir slæmt ástand stofnsins — sníkjudýr greind í hörpudiski úr Breiöafiröi og rannsóknir standa yfir á því hvort þau tengist miklum afföllum á stóru skelinni Stofnmælingum á hörpudiski á Breiðafirði lauk í síðustu viku. Ekki hefur enn verið unnið úr niðurstöðum mælinganna en Hrafnkell Eiríksson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnuninni, sagði í samtali við Fiskifréttir að stofninn væri mjög lítiil eins og við var að búast. Astandið á hörpudiskinum nú virðist vera mjög svipað því sem það var í mælingunni í október sl. sem sýndi mjög slæma útkomu. Hrafnkell tók fram að þrátt fyrir að ástand veiðistofnsins virtist vera bágborið væri ánægjulegt að nýliðunin á hörpudiskinum virtist vera mjög góð. Ágæt nýliðun kom fram í mælingunni í október og leiðang- urinn nú í apríl gefur líklega sömu niðurstöðu. Nokkrir árgangar af ungskel virðast vera í meðallagi stórir eða þar yfir. Sú skel kemur til með að skila sér inn í veiðina á næstu árum, í fyrsta lagi haustið 2004, að því gefnu að hún fái eðli- leg vaxtarskilyrði. I rannsóknaleiðangrinum voru, auk stofnmælinganna, einnig tek- in sýni vegna fisksjúkdómarann- sókna sem fram fara hjá Rann- sóknadeild fisksjúkdóma að Keldum. Mikil afföll hafa orðið í hörpudiskstofninum á Breiðafirði undanfarin misseri sem kunnugt er. Getum hefur verið að því leitt að þau tengdust hækkandi sjávar- hita. Ástæða þótti þó til að athuga hvort aðrar orsakir kynnu að valda þessum afföllum. Frumnið- urstöður rannsókna á Keldum staðfesta umtalsverða frumdýra- sýkingu samfara vissum vefja- breytingum í skelfiskinum. I framhaldi af því var ákveðið að fara í umfangsmiklar rannsóknir. Heildarlausn á samhæfðum vélbúnaði Samstarfsaðili Rolls-Royce = HÉÐINN = Síórás 6 • IS-210 Garðabæ Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is ,,Á þessu stigi er óvarlegt að fullyrða um tengsl þessa smits við hin miklu afföll,“ sagði Sig- urður Helgason fisksjúkdóma- fræðingur í samtali við Fiski- fréttir og hann tók skýrt fram að þessi frumdýrasýking hefði eng- in áhrif á heilsu manna sem neyttu hörpudisks. Sjá nánar bls. 12. ICELANDAIR CARGO

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.