Fiskifréttir


Fiskifréttir - 02.05.2003, Side 2

Fiskifréttir - 02.05.2003, Side 2
2 FISKIFRÉTTIR 2. mai 2003 SJAVARUTVEGUR KARLINN I BRUNNI Aflaverðmæti 2002 - hlutfallsleg skipting Rækja Heildaraflaverðmæti 76,9 milljarðar kr. FISKMARKAÐIR Allir markaðir (Islandsmarkaðu r) dagana 20.-26. apríl 200: (Tölur fyrir slægöan físk eru á undan tölum fyrir óslægðan flsk) Meðal- Lægsta Tegund Magn verð verð kg kr./kg kr./kg Hæsta verð kr./kg PORSKUR 538.177 181,65 20,00 252,00 ÞORSKUR 736.826 134,87 65,00 226,00 ÝSA 292.023 110,50 5,00 230,00 ÝSA 133.901 136,13 30.00 245,00 UFSl 158.041 44,97 10,00 68,00 UFSl 65.743 38,38 5,00 55,00 LÝSA 2.098 22,41 10,00 47,00 LÝSA 755 35,80 10.00 50,00 GULLKARFI 11 60,00 60,00 60,00 GULLKARFI 69.321 57,45 5,00 112,00 LANGA 32.694 94,07 10,00 135,00 LANGA 9.860 80.13 5,00 120,00 BLÁLANGA sl. 2.035 72,36 59.00 105,00 KEILA 18.869 67,51 5,00 75.00 KEILA 13.988 58,13 20,00 77,00 STEINBÍTUR 66.749 99,26 5,00 120,00 STEINBÍTUR 324.447 79,23 5,00 88,00 TINDASKATA ósl. 7.244 12,40 5,00 29,00 HLÝRI 4.469 103,36 50,00 130,00 HLÝRI 1.020 86,10 50,00 127,00 SKÖTUSELUR 16.626 188,21 70,00 330,00 SKÖTUSELUR 7 120,00 120,00 120,00 SKATA 623 98,11 5,00 250,00 SKATA 665 42.55 15,00 150,00 HÁFUR 45 5,00 5,00 5,00 HÁFUR 38 5,00 5,00 5,00 ÓSUNDURLIÐAÐ sl 8 135,00 135,00 135,00 LÚÐA 6.469 237,74 30,00 700,00 LÚÐA 65 298,69 100,00 500,00 GRÁLÚÐA sl. 9.676 161,96 100.00 188,00 SKARKOLI 91.878 157,27 10,00 340,00 SKARKOLI 64 128,67 115,00 150,00 ÞYKKVALÚRA sl. 19.009 231,85 50,00 355,00 LANGLÚRA 220 59,95 10,00 100.00 LANGLÚRA 739 32,04 10,00 45,00 SANDKOLI 2.266 61,61 5,00 70,00 SANDKOLI 53 48,87 30,00 50,00 SKRÁPFLÚRA 2.337 62,36 5,00 65,00 SKRÁPFLÚRA 136 51,3 45,00 65,00 GRÁSLEPPA ósl. 2.457 73,26 5.00 85.00 RAUÐMAGI ósl. 1.416 40.82 5,00 140,00 SANDHVERFA sl. 3 350,00 350,00 350,00 ÞORSKHROGN 36.113 22,77 5,00 75.00 GRÁSLEPPUHROGN 1.178 445,20 310,00 450,00 KINNFISKUR 21 350,00 350,00 350,00 LITLI KARFI ósl. 92 5,00 5,00 5,00 GELLUR 217 502,60 480,00 520.00 KINNAR 154 140,32 100,00 200,00 NÁSKATA sl. 135 40,00 40,00 40,00 UND.KARFI 50 5,00 5,00 5,00 UND.ÞORSKUR 28.950 112,04 70,00 130,00 UND.ÞORSKUR 33.491 78,79 26,00 120,00 UND.STEINBÍTUR ósl. 123 46,00 46,00 46,00 UND.YSA 27.076 49,99 18,00 69,00 UND.ÝSA 7.436 42,31 30,00 65,00 BÚRI 11 20,00 20,00 20,00 HNÝSAsl. 5 30,00 30,00 30,00 BLEIKJA sl. 285 286,59 190,00 390,00 LAX sl. 894 337,26 330,00 360,00 FLÖK/STEINBÍTUR 6.069 233,62 215,00 245,00 HROGN ÝMIS 4.006 30,25 5,00 310,00 UND.UFSI 1.214 34,91 10,00 40,00 UND.UFSI 227 10,00 10,00 10,00 2.781.619 121,22 Fjölveiðiskipið Baldvin Porsteinsson EA 10, sem áður hét Hannover og þar áður Guðbjörg IS, kom til heimahafnar í desember á síðasta ári frá Riga í Lettlandi þar sem skipið var lengt um 17,6 metra og gerðar á því ýmsar aðrar breytingar. Skipið er eftir lengingu um 86 metrar að lengd, mesta breidd er 14 metrar og brúttótonnin eru rétt tæp 3 þúsund. Skipið fór á loðnuveiðar strax eftir áramótin en eftir loðnuvertíðina var settur vinnslubúnaður í það á Akureyri. Það fór síðan í sína fyrstu veiði- ferð sem vinnsluskip í annarri viku apríl á grálúðu og karfa á Hampiðju- torginu og kom til hafnar í byrjun vikunnar eftir 19 daga túr með um 250 tonn af afurðum. Aflaverðmætið er áætlað um 53 milljónir króna. „Þessi veiðiferð var fyrst og fremst farin til að prófa nýja vinnslubúnaðinn. Það komu fram ýmsir bamasjúkdómar sem við gát- um lagað sjáifir en að öðru leyti gekk vinnslan mjög vel og búnaður- inn lofar góðu. Hins vegar var sára- tregt fiskirí. Við verðum því fégnir að komast sem fyrst á úthafskarf- ann. Annars hefur skipið reynst frá- bærlega vel eftir breytingamar í Pól- landi. Þær voru mjög vel lukkaðar og gerðu gott skip ennþá betra,“ sagði Hákon Þröstur Guðmundsson, skipstjóri á Baldvin Þorsteinssyni EA, í samtali við Fiskifréttir. Nýr vinnslubúnaður Starfsmenn Samherja hf. höfðu umsjón með því þegar vinnslubún- aðurinn var settur í Baldvin Þor- steinsson EA á Akureyri en verkið var unnið af mörgum undirverk- tökum. Meðal þess sem sett var í skipið var rækjuvinnslulína sem hafði reyndar verið í því fyrir leng- ingu. Nýr lausfrystir var settur í skipið en hann var endursmíðaður hjá Slippstöðinni ehf. á Akureyri sem annaðist einnig niðursetningu hans. Þá var vinnslulína fyrir bol- físk endurbætt en fyrir voru í skip- inu frystitæki fyrir pönnufrystingu. Einnig var sett niður ný innvigtunar- , úrsláttar- og pökkunarlína frá Skag- anum hf. á Akranesi. Loks var kom- ið fyrir búnaði til að ganga frá afurð- um á bretti og flytja þær niður í lest og er hann frá Slippstöðinni ehf. á Akureyri. Eftir er að setja niður síld- arflökunarvélar en það verk bíður vegna óvissu um síldveiðar í sumar. Ahyggjur af grálúðunni Hákon Þröstur sagði að hann hefði þungar áhyggjur af því hvernig komið væri fyrir grálúð- unni. „Það eru alltof mörg skip að skarka á því sem ekkert er en þau voru um 15 á slóðinni að þessu sinni. Það verður að segjast eins og er að þarna er engin lúða sem heit- ið getur. Við erum að skjóta okkur í fæturnar hvernig við komum fram við þessa fiskstofna. Það er legið á því litla sem þarna er af grálúðu þótt afli á togtímann sé skelfilega lítill. Við komumst í um eitt tonn á togtímann þegar best lét en annars var aflinn um 300-600 kíló á tog- tímann. Það er ekki svo langt síðan „Eg hef þungar áhyggjur af grá- lúðunni. Það eru alltof mörg skip að skarka á því sem ekkert er.“ menn voru að fá 2 tonn á togtím- ann. Við skiljum ekkert í því að það skuli hafa verið aukið við grá- lúðukvótann við þessar aðstæður.“ Fengu 16.500 tonn á loðnuvertíðinni Hákon Þröstur ítrekaði að Baldvin Þorsteinsson hefði reynst frábærlega á loðnuveiðunum í vetur. Þeir fengu samtals 16.500 tonn á vertíðinni en þeir hófu veiðar 3. janúar sl. Mest fengu þeir um 2.400 tonn í einni veiðiferð en skipið ber ekki meira þar sem ein lestin er eingöngu notuð sem frystilest. „Við vorum að mestu búnir að veiða okkar kvóta í flottroll- ið þegar loðnan gekk á grunnin. Við vorum því nokkuð sáttir við að hætta þegar Ijóst var að ekki yrði bætt við kvótann. Við vorum þó ekki alveg sáttir við það að Hafrann- sóknastofnun skyldi ekki senda skip til að mæla loðnuna í útköntunum. Þar voru heilmiklir flekkir sem ég held að hægt hefði verið að veiða eitthvað áfram úr á besta tíma en það var því miður ekki gert.“ Óvíst með veiðar á norsk-íslensku síldinni Baldvin Þorsteinsson EA er eitt öflugasta fjölveiðiskip flotans. Nú þegar er búið að reyna loðnuveiðar, karfaveiðar og grálúðuveiðar á því. Hákon Þröstur sagði að þeir hefðu einnig tekið eitt rækjuhol út af Norðurlandi í túrnum til þess að prófa rækjuvinnslubúnaðinn. Þeim væri ekkert að vanbúnaði að skella sér á rækjuna ef því væri að skipta þótt það væri ekki spenn- andi veiðiskapur miðað við verðið sem fæst fyrir rækjuna. Þá getur skipið einnig farið á kolmunna- veiðar en ekki er gert ráð fyrir að það veiði þorsk og flaki um borð. Hins vegar fer það eftir því hvem- ig samningar um norsk-íslensku síldina fara hvort skipið taki þátt í þeim veiðum í ár. „Uthafskarfinn er næst á dagskrá og við höfum frétt af mokveiði rétt utan við 150 mílna línuna. Skipin eru að fá upp í 7 tonn á togtímann. Annars er það svolítið skrýtin fræði að karf- inn heitir úthafskarfi þegar hann er rétt utan við 150 mílna línunan en þegar hann er rétt innan við lín- una heitir hann eitthvað annað!“ Peningastjórnun en ekki fiskveiðistjórnun Talið barst að fiskveiðistjómun almennt og Hákon Þröstur sagði að það viðhorf væri víða ríkjandi meðal sjómanna að of mikið tillit væri tekið til peningasjónarmiða. „Maður heyrir þær raddir að þetta sé ekki lengur fiskveiðistjómun heldur peningastjómun. Fiskveiði- stefnan þjónar ekki upphaflegum tilgangi sínum nægilega vel að mínum dómi sem er vemdun og skynsamleg nýting fiskstofnanna. Það er spuming hvort þetta eigi allt að vera á einum og sama staðnum, hvort friðun og fiskvemd eigi ekki að vera á hendi sjálfstæðrar stofn- unar sem hefði ekki annað hlut- verk,“ sagði Hákon Þröstur. Utgefandi: Framtíðarsýn hf. Skaftahlíð 24 105 Reykjavík FRETTIR Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðjón Einarsson gudjon @fiskifrettir.is Ritstjórnarfulltrúi: Kjartan Stefánsson kjartan @fiskifrettir.is Auglýsingastjóri: Hertha Árnadóttir hertha@fiskifrettir.is Ritstjórn: Sími: 511 6625 Fax: 511 6692 gudjon @fiskifrettir.is Sími: 511 6624 Fax: 511 6692 Auglýsingar: Sími: 511 6623 Fax: 511 6692 Áskrift og innheimta: Sími: 511 6622 Fax: 511 6692 Ljósmyndir: Ljósmyndadeild DV Prentvinnsla: Gutenberg Áskriftarverð fyrir hvert tölublað: Greitt m. greiðslukorti: 335 kr/m.vsk Greitt m. gíróseðli: 380 kr/m.vsk Lausasöluverð: 447 kr/m.vsk Handbókin SJÁVARFRÉTTIR fylgir áskrift að Fiskifréttum, en hún kemur út í byrjun september ár hvert.

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.