Fiskifréttir


Fiskifréttir - 02.05.2003, Qupperneq 3

Fiskifréttir - 02.05.2003, Qupperneq 3
FISKIFRETTIR 2. maí 2003 3 Bretland: „ Flöggunarskip “ tá þungar sektir Skásta útkoman síöastliöin 4 ár — segir Siguróur Þórarinsson, skipstjórí á Arnari SH Til sölu mb.NarfiVE 108 sknr 0795 Þrjú fiskiskip sem eru skráð í Bretlandi en í eigu spænsk-enskra útgerða, voru nýlega dæmd af breskum dómstóli til þess að greiða samtals sem svarar 1,6 milljónir sterlingspunda eða jafnvirði 192 milljóna íslenskra króna fyrir að veiða langt umfram kvóta og fela það í veiðidagbókum sínum. Skipin heita Whitesands, Grampian Avenger og Granpian Avenger II. Þau veiða við strendur Bretlands en landa afla sínum að rnestu leyti á Spáni. Eitt skipanna hafði landað ólöglega fiski, aðal- lega lýsingi en einnig skötusel, að verðmæti 120 milljóna íslenskra króna á tveggja og hálfs árs tíma- bili. Veitt var 25 sinnum meira en fært var til bókar. Sjö önnur bresk- spænsk skip til viðbótar hafa verið kærð á sömu forsendum og munu mál þeirra verða tekin fyrir á næstu vikum. Fishing News greindi frá. Úr netarallinu á Arnari SH. (Myndir: Einar Ásgeirsson). Netarallió gekk vel í Faxaflóa: „Veiðin var með skárra móti. Við höfum tekið þátt í netarallinu í Faxaflóa síðastliðin 4 ár og þetta er skásta útkoman frá því við byrjuðum í þessu,“ sagði Sigurð- ur Þórarinsson, skipstjóri á Arn- ari SH frá Stykkishólmi, í samtali við Fiskifréttir. Netarallinu er ný- lega lokið en 6 bátar tóku þátt í því vítt og breitt við landið auk Arnars SH, þ.e. Örvar SH, Gandí VE, Kap VE, Guðrún VE, Þórs- nes II SH og Þórsnes SH. Arnar SH lagði netin á 48 stöð- um vítt og breitt frá svæði út af Garðsskaga og norður á svæði út af Malarrifi. Veiðin tók 8 daga en 72 net voru dregin dag hvern. ,,Það var misjafnt hvað veiddist eftir róðrum. Mest komumst við upp í 12 tonn í róðri og síðan fengum við allt niður í lítið. Við fengum um 41 tonn í þessum 8 róðrum þannig að meðalaflinn hefur verið um 5 tonn á dag. Til samanburðar rná geta þess að við fengum ekki nema tæp 30 tonn í fyrra í jafnmörgum róðrum og netin voru lögð á svipuðum stöð- um eins og alltaf,“ sagði Sigurð- ur. Netin voru með 4 stærðir af riðl- um, 6,7,8 og 9 tommur. Sigurður sagði að frekar lítið hefði fengist af þorski í stóru riðlana eins og reyndar undanfarin ár. Mestur afl- inn kom í minni riðlana, 6 og 7 tommu, og það var smár fiskur, lík- lega 4-5 ára þorskur. Til dæmis voru þeir eitt sinn með 1.200-1.400 fiska yfir daginn en aflinn var samt ekki nema um 4 tonn. Minni fisk- urinn er því greinilega í vöxt sam- kvæmt þessu. Netin voru bæði úr fjölgirni og eingirni og veiddist áberandi meira í eingirnisnetin. Á þessum árstíma þegar farið er að birta þetta mikið veiðist reyndar yfirleitt meira í eingirnisnetin en þau ganga fyrr úr sér. Fjölgirnið er sterkara og endist betur yfir vetur- inn. Sjálfur er Sigurður mest með 8 tommu riðla í netunum á Arnari SH. Hann var spurður hvernig netaveiðin hefði gengið í vetur. „Við erum búnir með kvótann og hættir í bili. Veiðin var misjöfn í vetur. Haustið var lélegt og vetrar- vertíðin var voðalega gloppótt.“ Smíðaður íV-Þýskalandi 1956, lengdur 1983, skutlengdur og hækkaður 1998. Vél: Caterpillar árg. 1987,632 hö. Stærð: 95,9 Brl., 109 BT., lengd 27,43 m. Með bátnum fylgja eftirfarandi varanlegar aflaheimildir: Skarkoli 15 tonn. Ýsa 5 tonn og jöfnunarsjóður þorskur 8,4 tonn. Áhöfnin á Arnari SH frá Stykkishólmi, sem tók þátt í netarallinu, ásamt Ólafi Karvel Pálssyni leiðangursstjóra (lengst til hægri). Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með nýja skipið og Rolls-Royce búnaðinn iJ£l = HÉÐINN i fl Stórás Stórás 6 • 210 Garðabæ Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101

x

Fiskifréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.