Fiskifréttir


Fiskifréttir - 02.05.2003, Side 5

Fiskifréttir - 02.05.2003, Side 5
FISKIFRETTIR 2. maí 2003 5 SKOÐUN Atkvæöaveiöar meö línu — eftir Pétur Hafstein Pálsson Línuveiðar hafa verið stundaðar frá Islandi í meira en hundrað ár. Það róðrarlag senr við þekkjum í dag mótaðist um og eftir rniðja síð- ustu öld. Með lögum og samning- um var settur rammi utan um þess- ar veiðar er laut að róðrartíma og línulengd. I seinni tíð hafa línuveið- ar verið hafnar til vegs og virðingar og nú hafa pólitíkusar áttað sig á að nota megi meðbyr veiðanna til at- kvæðaveiða. Eins og oft áður þegar þannig stendur á eru hin raunveru- legu rök skrumskæld og beygð eft- ir hentugleika hvers og eins. Gamli tíminn Þegar línuveiðar tóku kipp eftir rniðja öldina var beitt þungri hamplínu í þungan trébala sem eru margfalt þyngri en þeir álbalar sem notaðir voru seinna á öldinni. Lengst af voru 11 menn ráðnir til róðranna, 6 í landi að beita og 5 um borð við sjósóknina. Land- menn voru á hlut eins og sjómenn- imir. I hverjunr bala (starnpi) er eitt bjóð sem telur 420 - 500 króka. Róið var með 36 - 45 bjóð eftir landsvæðum, kjarasamningum, lögum og árstíma. Skipin kornu síðan saman á ákveðnum stað og tíma þar sem merki var gefið um að róður mætti hefjast. Tilgangur þessa var að koma reglu á lagnim- ar og slá á kappið við veiðamar sem og að tryggja einhvern líkleg- an hvíldartíma sjómanna. Margar hetjusögur eru til af hinni miklu og hörðu sjósókn sem þessum vetrar- róðrum fylgdi en því miður einnig mörg harmsagan. Nýi tíminn Það var því vonum seinna að menn leituðu nýrra leiða til að gera þessa róðra skilvirkari og áhættu- rninni. Skipin voru stækkuð og lína og bali létt með gerviefnum og áli. Fyrir um 30 árum var sums staðar farið að „róa með tvöfalt“ en það þýddi að í stað tveggja róðra með 45 bjóð var farinn einn tveggja daga róður með 90 bjóð. Helsti ávinningur var sá að betur fiskaðist vegna lengri legu línunnar og skip- in komust á þau mið sem líklegust þóttu til árangurs auk þess að skip- in lönduðu að morgni til en ekki á kvöldin. Sólarhringurinn nægði ekki áður til að róa á bestu miðin og vitað er að ferðalögin til og frá miðum hafa verið hættulegri sjó- farendum en veiðamar sjálfar. Páttaskil Um 1980 urðu síðan mikil kaflaskipti í línútgerð á íslandi en þá koma beitningavélamar til sög- unnar sem settar voru í stærri línu- bátana sem síðan hafa kallast ,,vélabátar“. Landmennirnir sem áður voru í landi að beita fóru allir um borð og ennfremur var þremur mönnum bætt við í áhöfnina sem nú taldi 14 rnanns. (Voru reyndar 16 á fyrstu árununr). Þetta gerði það að verkum að skipin gátu verið á bestu miðunum eins lengi og þörf var á. Síðan þessar vélar voru settar um borð í línubátana hafa þeir getað tryggt hráefni til vinnslu allt árið. I framhaldi af þessum umskiptum þróaðist svokölluð segulnaglalína, önnur gerð króka leit dagsins Ijós og allt dráttarkerfið gert mýkra og betur hæft til að vinna við misjafnar aðstæður. Til við- bótar hafa öll staðsetningar- og skráningartæki gengið í gegnum byltingarkenndar framfarir með innleiðingu tölv- unnar. veiðarfærið sem fær þá einkunn. Með því að hagræða rökum fyrir línuveiðum tókst talsmönnum smá- báta, og þingmönnum þeim hliðholl- um, að koma þeim ranghugmyndum að hjá fólki að litlir línubátar væru þeir einu sem landa atla til vinnslu á landsbyggðinni. Nú eru frambjóð- endur komnir nreð sömu raddir á loft varðandi „dagróðrarbáta undir 100 tonnum sem beita í landi" og „strand- veiðiflotann" án þess að nokkur al- menn skilgreining sé til á fyrirbærun- um. Það liggur t.d. ekki ljóst fyrir hvað það nákvæmlega er að „beita í landi“ og ekki hvað „dagróðarbátur" Þróun smá- bátanna Stóru skipin eru ekki þau einu sem nýtt hafa sér þessa tækni. An þess að hnýta neitt í smábátasjó- menn þá getur sá floti þakkað þessari þróun árangur þeirra við veiðar undanfarin ár sem samhliða pólitískum glufum í kerfinu hafa fært þeim stóran hlut þorsk- veiðiheimildanna. Hver hefði ekki nýtt sér tækifærið? Um borð í nrinni skipunum, sem orðin eru margfalt stærri, hraðskreiðari og burðarmeiri en áður, er hluti beitningavélanna kominn. Vélasamstæðan sam- anstendur af dráttarkerfi, uppstokk- ara, rekkasamstæðu til geymslu á lín- unni og beitningavélinni sjálfri sem annað hvort er fyrir niðurskoma beitu eða heila sem er skorin niður um leið og beitt er. Eftir að stærðarmörk smá- báta voru hækkuð úr 4,9 í 14,9 tonn er einfalt mál að fylgja eftir þeirri þróun, sem þegar er hafin, að setja alla samstæðuna um borð í þessa báta. Allur gangur er á því í dag hvemig menn bera sig að. Sumir stokka upp í landi, aðrir skera beituna niður í landi og beita með vélinni á sjó. Skilgreining á vélabeitningu og handbeitningu er því fyrir löngu farin að skarast og mun skarast meira og meira á næstu misserum. Skilgreiningar og frambjóðendur Hið jákvæða við allar línuveiðar er að þær eru vistvænar, tryggja ákveð- in gæði og aflinn er undantekninga- lítið unnin á Islandi. Það er því rétt að tala um byggðavænar veiðar þó ég haldi því ekki fram að lína sé eina er. Er t.d. nóg að landa daglega hluta ársins, eins og „vertíðarflotinn" (gömul skilgreining á ftskiskipum) hefur alla tíð gert, til að fá þessa nafn- bót? Hugtakið „strandveiðifloti" er mjög vítt og margir sem gera tilkall til þeirrar nafnbótar, talsvert fleiri en þeir sem róa með línu . Öll þessi hug- tök sem notuð hafa verið urn skipa- flokka skarast og breytast nær árlega og eru ónothæf viðmið til að gera upp á milli útgerðarflokka, á sama hátt og stærðarmörkin „100 tonn“ sem allir vita að eru mjög teygjanleg eining. Kvótaívilnun Allar hugmyndir frambjóðenda unr kvótaívilnun miðast við at- kvæðaveiðar en eru settar fram í Um borð í beitingavélarbáti. (Mynd/Fiskifréttir: Heiðar Marteinsson): „Þannig er í raun veriö aö refsa þeim útgeröum, sem unn- iö hafa aö viöur- kenndum markmiö- um, fyrir þaö eitt aö nýta tæknina veiö- unum og byggöun- um til framdráttar“ skjóli vistfræðilegra raka og byggðasjónarmiða. Augljóslega eru hugmyndir franrbjóðenda settar fram til að útiloka suma línubáta frá kvótaívilnunum. Gildir einu þó þau skip skapi jafnari og tryggari vinnu á landsbygðinni, noti sarna rnann- afla, séu jafn umhverfisvæn og vegna tækni sinnar ekki síður hagkvæm en önnur línuskip. Hins vegar telja menn greinilega að þeim fylgi ekki sá atkvæða- tjöldi sem nægir til að hafa þá með. Þannig er í raun verið að refsa þeim útgerðum sem unnið hafa að viðurkenndum mark- miðum fyrir það eitt að nýta tæknina veiðunum og byggðun- um til framdráttar. Að lokum Ef það er vistfræðilega gott að auka línuveiðar þá á að gera það á réttum grunni og með það að markmiði að sem flestir breyti út- gerðarnrynstri sínu. Lágmarks- krafan hlýtur þó að vera sú að all- ar starfandi línuútgerðir fái sama tilboð urn ívilnanir eða sérstöðu. Ef frambjóðendur vilja færa heimildir milli svæða og/eða á milli aðila í greininni eiga menn að hafa þor til að segja það beint. Atkvæðaveiðar frambjóðenda rnega ekki fara fram með öðru en almennum rökum og ioforðum en ekki með því að fara með stað- reyndir að eigin geðþótta. Þetta á jafnt við um einstaklinga sem stjórnmálaflokka. Höfundur er framkvæmda- stjóri útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtækisins Vísis í Grindavík. Ósíqim Samfierja tiC hamingju meðflhesiCegt sfjp. (PöfjQim samstarf viðframCeiðsCu vinnsCubúnaðarins. Bakkatún 26 - 300 Akranes - lceland Tel.: + 354 430 2000 - Fax: + 354 430 2001 E-mail: skaginn@skaginn.is

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.