Fiskifréttir


Fiskifréttir - 02.05.2003, Page 6

Fiskifréttir - 02.05.2003, Page 6
6 FISKIFRETTIR 2. maí 2003 NYSMIÐI Óskum eigendum og áhöfn til hamingju með nýtt og glæsilegt olíuskip International Skipamálning HarpaSjöfn Stórhöfða 44, Reykjavík. Sími 567 4400. Fax 567 4410. www.harpasjofn.is Umboðsaðilar INTERNATIONAL PAINT á Islandi Frá móttöku við komu Keilis til Fáskrúðsfjarðar. Frá hægri: Gísli Jón- atansson framkvæmdastjóri Loðnu vinnslunnar hf., Hörður Gunnarsson framkvæmdastjóri Olíudreifingar ehf. og Páll Ægir Pétursson skipstjóri. Skipið er málað með INTERNATIONAL skipamálningu frá HörpuSjöfn Keilir, hið nýja olíuskip Olíu- dreifingar ehf. sem smíða var í Kína, kom til Islands í fyrsta sinn skömmu fyrir fyrir páska, nánar tiltekið til Fáskrúðsfjarð- ar. Skipið er 103,2 metra langt og ganghraði er 13 sjómílur á klukkustund með farm en 13,6 mílur án farms. Keilir getur bor- ið 5,2 milljónir lítra af eldsneyti í farmgeymum eða rúmlega helm- ingi meira en sem nemur saman- lagðri burðargetu olíuskipanna tveggja, Kyndils og Stapafells, sem hann leysir af hólmi. Bæði eldri skipin hafa verið seld, Stapafell til Ekvador og Kyndill til Nesskipa. Smíðaverð Keilis var um einn milljarður króna. „Nýja skipið býður upp á marga nýja möguleika. I því eru 10 geymar og er sérstakur dælubúnaður í hverj- um geymi. Hægt er að dæla fjórum tegundum eldsneytis samtímis. Skipið getur losað allt að einni millj- ón lítra á klukkustund ef móttakan í landi ræður við það, en því er reynd- ar ekki að heilsa á stöðum með ströndum fram hérlendis. Skipið er hannað sem efnaflutningaskip og getur flutt allt að níu mismunandi tegundir vökva samtímis ef því er að skipta, en í dag eru fluttar fimm teg- undir eldsneytis á íslensku strönd- ina,“ sagði Hörður Gunnarsson framkvæmdastjóri Olíudreifingar ehf. í samtali við Fiskifréttir. Vegna breytinga á útgerðar- mynstri og flutningum á eldsneyti rnilli hafna á landinu hefur þörf fyrir strandflutninga minnkað. Keilir verður því einnig leigður út til annarra verkefna í Evrópu á milli ferða til Islands. Ánægðir með skipið Keilur var smíðaður í Qui Xin skipasmíðastöðinni í Shanghai og Keilir siglir inn til Fáskrúðsfjarðar, sem var fyrsti viðkoniustaður skipsins á íslandi. Nýja olíuskipió Keilir. Getur losaó allt aö millj- ón lítra á klukkustund — og dælt fjórum tegundum í einu 300 kW. Hamworthy/Shillinger stýri og Rolls Royce/Tenfjord stýr- isvél. Landfestavindur og akkeris- vindur frá Rolls Roice, — umboðs- aðili fyrirtækisins hérlendis er Héð- inn hf. Dælur eru af gerðinni ITUR, umboðsaðili á Islandi er Framtak ehf. Eldsneytis- og smurolíuskiljur eru af gerðinni Alfa Laval en um- boðsaðili hérlendis er Sindri hf. Þá var skipið málað með málningar- kerfi frá Intemational, en umboðs- aðili á Islandi er HarpaSjöfn. Tæki í brú Siglinga- og fjarskiptatæki í brúnni eru öll frá viðurkenndum framleiðendum og sá Radiomiðun um útvegum þeirra. Meðal helstu tækja eru MaxSea siglingatölva, Bridgemaster Dekka ratsjár með samtengibúnaði og C-PIath sjálf- stýring og gíró. Allur fjarskipta- búnaður er frá Sailor. Þá er í skip- inu fullkomið Orlaco myndavélar- kerfi og í brúnni er Conning aflest- ursmiðstöð. eftirmálar vegna verksins voru litl- ir,“ sagði Hörður. íslensk hönnun Ráðgarður Skiparáðgjöf hannaði Keili í samvinnu við undirverktaka á Islandi, í Bretlandi og í Póllandi. Skipið er 103,2 metrar á lengd og 15 metra breitt. Dýpt að aðalþiIfari er 7,5 metrar og dýpt að efsta þil- fari 18,4 metrar. Skipið mælist 6.019 tonn (eigin þyngd). Flutn- ingsrými í tönkum er samtals 5.288 rúmmetrar. Auk þess skipið útbúið til þess að flytja gáma á þilfari. Aðalvél skipsins er af gerðinni MAN B&W Alpha 9L27/38. Hún er 3.060 kW við 800 snún. á mín. Nið- urfærslugír MAN B&W 47V040S með aflúrtaki fyrir ásrafal við 1800 snún/mín. Tvær hjálparvélar af gerðinni Man B&W Alpha 6L16/24, hvor um sig 570 kW við 1.200 snún. á mín. Umboðsaðili Man B&W vél- búnaðarins á Islandi er Afltækni ehf. Tvær rafmagnsdrifnar bógskrúf- ur af gerðinni Schottel, hvor um sig síðar lengt í viðgerðarstöðinni Chengxi. Þegar nrest var voru yfir 400 starfsmenn skipastöðvarinnar að vinna í skipinu samtímis en alls vinna þar um 20.000 manns. Smíði Keilis var boðin út í mars árið 2000 og bárust tilboð frá allmörgum löndum en þrjú hin lægstu voru kínversk. „Við erum mjög ánægðir með skipið og sama er að segja um sam- skiptin við Kínverjana meðan á smíðinni stóð. Afhendingartíminn var einnig mjög ásættanlegur. I samningnum var ákvæði um að ef hitastig færi upp yfir 35 gráður myndu slíkir dagar ekki teljast til verktíma. Um 40 dagar á smíða- tímanum reyndust svona heitir og drógust því frá. Allur búnaður í skipið er frá vestrænum framleið- endurn. Við fórum þá leið að fela kínversku stöðinni að útvega þenn- an búnað skipið í samræmi við óskir okkar og þar af leiðandi var það á ábyrgð stöðvarinnar að vélar og tæki skiluðu sér á réttum tíma. Samningsverð skipsins stóðst og

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.