Fiskifréttir


Fiskifréttir - 02.05.2003, Qupperneq 7

Fiskifréttir - 02.05.2003, Qupperneq 7
FISKIFRETTIR 2. maí 2003 7 Texti: GE „Heimsiglingin frá Kína gekk mjög vel. Við vorum afar heppnir með veður og höfðum meðbyr nán- ast alla leið í Miðjarðarhaf. Við tókum pálmaolíu, sterín og kókós- hnetuolíu í Dumai á Súmötru í Indónesíu sem við losuðum í Ríga í Lettlandi á 41. degi eftir brottför- ina frá Kína. Viðbrigðin voru mik- il að koma úr tæplega 40 stiga hita í Malakkasundi niðri undir mið- baug og norður í Eystrasalt því þar voru vetrarhörkur og ísi lagður sjór,“ sagði Páll Ægir Pétursson annar tveggja skipstjóra á Keili í samtali við Fiskifréttir. „Þegar við nálguðumst Lettland var Rígaflói fullur af 40-60 senti- metra þykkum ís sem var 8 til 9/10 að þéttleika. Við vorum svo lánsamir að geta elt norskt skip, nokkru stærra en okkar, inn á ytri höfnina í Ríga og þar var ísbrjótur sem hjálpaði skipunum áfram til hafnar. A leiðinni út, eftir að hafa losað farminn, lentum við í smá- erfiðleikum en okkur tókst að lokurn að komast inn í skipalest sem var að fara norður tlóann. Mörg skip lentu í ntiklum erfiðleikum þarna, meðal annars má nefna að eitt íslenskt flutn- ingaskip kom stórskemmt úr ísnum, missti framan af öllum skrúfublöðum og dældaðist. Það sá hins vegar ekk- ert á Keili enda fórunt við í kjölfar annarra og ruddurn aldrei brautina sjálfir. Þá er skipið með ágætis ísvöm og er í hærri ísklassa en önnur olíu- skip sem Islendingar hafa átt. Ég við- urkenni samt að mér leið ekkert vel meðan á þessu stóð, sérstaklega vegna þess að skipið var nýtt og fínt og nýmálað,“ sagði Páll Ægir. Eftir að hafa landað í Ríga fór Keilir til Kaliningrad og tók olíu sem losuð var í Hamborg. Þaðan var farið til Venspils í Lettlandi og sóttur farm- ur sem losaður var í Bremerhaven. Sturlaugur Jónsson & Co. FiskÍBlóö 26 • Sími: 551 4680 ■ Fax: 552 6331 www.Bturlaugur.is Astengi [ Mvulkan Nýr togvír! □yform starfish með plastklæddum stálkjarna Allt fyrir togveiðarnar Lentu í þéttum ís í Rígaflóa — eftir þægilega siglingu frá Kína Páll Ægir Pétursson skipstjóri á Keili tekur við blómum og árnaðar- óskum við komu skipsins til Islands. Loks var haldið til Svíþjóðar og það- an heim til Islands í fyrsta sinn. Ný kynslóð ulíuskipa „Mér lýst mjög vel á skipið. Það er vel hannað, lætur mjög vel í sjó og fer vel með mannskapinn. Skipið tilheyrir nýrri kynslóð olíuskipa , er rniklu fullkontnara og tölvuvæddara en eldri skipin okkar voru. Dælu- kerfið er tölvuvætt, t.d. er sérstakur stjórnklefi um borð þaðan sem öll- um lokum á dælukerfinu er fjarstýrt og við getum séð á tölvuskjá hversu mikið er komið í tankana. Jafnframt sjáum við hvernig djúpristan og stöðugleikinn breytist eftir magninu í tönkunum. Þá má nefna að munur- inn á þessu nýja skipi og Kyndli er sá að þetta skip er með tvöföldum skrokk, bæði í botni og síðum. Þá eru öll tæki í brúnni af nýjustu og fullkomnustu gerð,“ sagði Páll Ægir. Tíu manna áhöfn er á Keili. Skip- stjóri á móti Páli Ægi er Ingvar Frið- riksson. Yfirvélstjórar eru Gunnar Jónsson og Tómas Tómasson. I |R Barónstíg 5 • 101 Reykjavík CCrfll MB II ■ Símar55l I280 og55l I28I • Fax 552 I280 Oskum útgerð og áhöfn til hamingju með nýtt og glæsilegt skip M/S Keilir er búinn: I x MAN B&WAIpha aðalvél gerð 9L27/38-FVO 2x MAN B&W Holeby Ijósavélar gerð 6LI6/24 Ix MAN / Demp hafnarljósavél gerð D2866TE Vdemp A-s danish engineennqAmafine |po«vet i' propulsion svsrewis GENERATING SETS o www.isfell.is ísfell ehf • Fiskislóð 14 • P.O.Box 303 • 121 Reykjavík • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is _______ ferskar í fréttir hverri viku

x

Fiskifréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.