Fiskifréttir - 02.05.2003, Blaðsíða 9
8
FISKIFRETTIR 2. maí 2003
FISKIFRETTIR 2. maí 2003
9
ERLENT
FISKMARKAÐUR
Texti og myndir: KS
Fiskmarkaður Suðurnesja í Bolungarvík.
„Salan það sem af er þessu ári hefur gengið mun betur en á sama tíma
í fyrra en þá var samdráttur hjá okkur. Hann stafaði af því að haustið
2001 voru smábátar kvótasettir í ýsu og steinbít og þeir fengu í fyrstu
mjög litlum kvóta úthlutað í ýsu. Ysukvótinn hefur síðan aukist hjá þeim
og við njótum góðs af því,“ sagði Karl Gunnarsson, stöðvarstjóri hjá
Fiskmarkaði Suðurnesja á Bolungarvík, í samtali við Fiskifréttir.
Stofnendur
MMC
ganga
til liös
viö Cflow
Stofnendur MMC í Nor-
egi hafa gengið til liðs við
fyrirtækið Cflow Fish
Handling AS í Noregi. Petta
gerist í kjölfar g,jaldþrots
fyrirtækisins Optimar sem
MMC hafði áður sameinast.
Cflow Fish Handling var
stofnað fyrir tæpu ári af öðr-
um lykilstarfsmönnum frá
MMC og hefur síðan afgreitt
nokkur vinnslukerfi fyrir fisk-
vinnslu og fiskeldi, þeirra á
meðal búnað í brunnbátinn
Snæfugl SU, sem fjallað er
um hér annars staðar í blað-
inu. MMC hefur verið þekkt-
ast fyrir vakúmdælur sínar en
þeir hafa framleitt 500 slíkar
dælur, þar af hafa 23 dælur
verið seldar til Islands.
Vakúmdælur verða áfram
meginstoðin í framleiðslu
Cflow Fish Handling en auk
þess tekur fyrirtækið að sér
hönnun og smíði á heildar-
kerfum til flutnings og með-
höndlunar á fiski um borð í
uppsjávarveiðiskipum, í
brunnbátum og í landvinnslu.
Þótt fyrirtækið sjálft sé ungt
að árum byggir það á ára-
langri reynslu og þekkingu
þeirra sem að því standa. Um-
boðsaðili Cflow á íslandi er
Netanaust ehf. í Reykjavík.
Fráárinu 1991 hefur verið rekinn
fiskmarkaður í Bolungarvík/Isafirði
í tengslum við Fiskmarkað Suður-
nesja hf. en Fiskmarkaður Suður-
nesja hefur rekið markað undir eig-
in nafni í Bolungarvík frá árinu
1998 og á ísafirði frá árinu 1996.
Mesti annatíminn
á sumrin
Markaðirnir í Bolungarvík og á
Isafirði eru reknir í tvennu lagi þótt
þeir myndi eina heild. Fram kom
hjá Karli að á árinu 2001 hafi
3.700 tonn verið seld í Bolungarvík
og 1.850 tonn á Isafirði. A árinu
2002 fór salan niður í 3.000 tonn í
Bolungarvík og 1.300 tonn á Isa-
firði. A fyrstu 3 mánuðum ársins
2003 voru seld 730 tonn hjá Fisk-
markaði Suðurnesja í Bolungarvík
miðað við 515 tonn á sama tíma í
fyrra þannig að aukningin milli ára
er veruleg. „Annars er sumarið aðal
annatíminn hjá okkur. Þá kemur
fjöldi aðkomubáta hingað á hand-
færaveiðar auk þeirra heimabáta
sem stunda færaveiðar. Ég gæti trú-
að því að færafiskurinn sé milli 50-
60% af þeim fiski sem við seljum á
sumrin. Einnig er mikil ýsuveiði
hjá línubátum héðan á sumrin.“
Gæðin hafa aukist
Fiskinn fær Fiskmarkaður Suð-
urnesja í Bolungarvík aðallega af
smábátum, mest af heimabátum en
einnig af bátum frá Þingeyri og
Suðureyri. Þá selja þeir fisk al' bát-
um sem landa á Drangsnesi og er
Karl Gunnarsson, stöðvarstjóri hjá Fiskmarkaði Suðurnesja í Bolungarvík, og Milan Remic starfsmaður hjá markaðnum.
Stefnt aö því aö allur fiskur
veröi seldur af gólfi á þessu ári
— segir Karl Gunnarsson, stöðvarstjóri hjá Fiskmarkaöi Suðurnesja í Bolungarvík
HAM I NGJUOSKI R!
*
Oskum áhöfn og eigendum Snœfugls
til hamingju með nýja brunnbátinn.
Um borð er talningarbánaður
fyrir seiði og sláturfisk frá Vaka.
Akralind 4 • 201 Kópavogur
Sími: 595 3000 • Fax: 595 3001
Netfang: vaki@vaki.is • www.vaki.is
fiskurinn sendur þaðan til kaup-
enda. „Við seljum mest í fjarskipt-
um eins og aðrir fiskmarkaðir en
þó hefur aðeins dregið úr því. Sala
í fjarskiptum var komin upp í um
70% af heildinni en um 30% voru
seld af gólfi. Nú eru um 60% seld í
fjarskiptum og 40% af gólfi. A ár-
unum 1991-1996 var allur fiskur
seldur af gólfi. Væntalega breytist
þetta og fer þá aftur til fyrra horfs
á þessu ári. Mér sýnist að margir
séu á einu máli um að sú breyting
verði til bóta. Þá verður allur fisk-
ur sem landað er á kvöldin seldur
slægður og stærðarflokkaður á
uppboði morguninn eftir. Líklega
verður svo annað minna uppboða
seinnipart dags og þá verður seldur
fiskur af þeim bátum sem enn eru á
sjó. Sem betur fer hefur meðferð á
afla og gæði fisks sem seldur er á
mörkuðum batnað mjög mikið og
er ekki hægt að líkja því saman við
það sem áður var. Hins vegar höf-
um við ekki náð nógu góðum tök-
um á stærðarflokkuninni hingað til
vegna þess hvað mikið hefur verið
selt í fjarskiptum en það gefst kost-
ur á að kippa stærðarflokkuninni í
lag þegar allur fiskur verður seldur
af gólfi.“
Steinbítsvertíðin ekki
komin í fullan gang
Fyrir utan þorsk og ýsu er stein-
bítur helsta tegundin sem seld er á
fiskmarkaðnum. Þessa dagana er
steinbíturinn ráðandi en Karl sagði
þó að steinbítsvertíðin hjá þeim væri
ekki ennþá komin í gang af fullum
krafti. „Yfirleitt hefur steinbítsveið-
in byrjað hér í mars/apríl. En miðin
hér fyrir utan eru lokuð með reglu-
gerðarhólfí sem verður ekki opnað
fyrr en eftir hrygningarstoppið nú
um mánaðamótin. I þessu hólft er
ágæt steinbítsslóð og við eigum von
á því að smábátamir fari þangað í
byrjun maí. Menn hér eru sárir yfir
því að þessu hólft skuli hafa verið
lokað, sérstaklega vegna þess að yf-
irleitt er lítill þorskur á svæðinu á
þeim tíma. Það hefði verið kjörið ef
smábátamir hefðu getað verið þama
í hrygningarstoppinu.“ Karl gat þess
að ýsan frá þeim færi mest suður á
land, sérstaklega á veturna. Þorskur-
inn fer á vetuma að stærstum hluta
til fiskvinnslufyrirtækja á Vesttjörð-
um, eða um 70-75%, og hefur það
færst í vöxt að undanfömu að þorsk-
urinn sé unninn á heimaslóð. Á
sumrin fer þó meirihluti þorsksins til
annarra landshluta. Þá er steinbítur-
inn aðallega unninn á Vestfjörðum
og fara ekki nema um 10-15% af
honum annað.
Verðlækkun milli ára
Þrátt fyrir mikla aukningu í
magni á þessu ári hefur heildarsalan
í krónum talið ekki hækkað jafn
mikið því verðlækkun hefur orðið á
ftski milli ára. Mest hefur lækkunin
orðið á ýsunni en meðalverðið á
henni lækkaði um 44% frá mars í
fyrra til mars í ár. Þorskurinn hefur
einnig lækkað í verði, aðallega síð-
ustu vikurnar. Verð á steinbít hefur
liins vegar haldið sér nokkuð vel á
milli ára. „Styrking á íslensku krón-
unni ræður mestu um verðlækkun á
þorski og því má búast við því að
verðið á honum haldist svipað á
meðan gengið breytist ekki. Verð-
lækkun á ýsu stafar jafnframt af
meira framboði þar sem ýsukvót-
inn hefur verið aukinn. Ég hef þá
trú að ýsuverðið jafni sig og hækki
eitthvað,“ sagði Karl Gunnarsson í
lokin og hann minnti á að um mán-
aðamótin maí/júní yrði vonandi
tekið í notkun nýtt uppboðskerfi í
gegnum Netið þar sem kaupendur
geta tekið þátt í uppboðum heima
hjá sér eða í vinnunni. Jafnframt
gefst erlendum aðilum þá kostur á
að bjóða í slægðan og flokkaðan
fisk í gegnum Netið.
Frá höfninni í Bolungarvík. Það er Guðmundur Einarsson, skipstjóri á
Guðmundi Einarssyni ÍS, sem hér er að landa. (Mynd: Jón Einarsson).
Tben ehf. hefur tekið við umboði fyrir:
3T OLIVEIRA SA
Oliveira SA’ í Portúgal er framleiðandi á trollvírum, snurpuvírum, vinnsluvírum
og kranavírum.
Oliveira SA’ er þekkt fyrir gæðavír enda eingöngu notast við hágæða hráefni
við framleiðslu vírsins.
Oliveira SA' hefur yfir að ráða góðum tækjabúnaði við framleiðslu vírsins.
Oliveira SA' hefur mjög öflugt gæðaeftirlit sem tryggir ávallt gæði vírsins.
Oliveira SA' framleiðir "dæforma" vír sem og hefðbundinn vír.
Oliveira SA' hefur hafið framleiðslu á nýrri tegund "dæforma" trollvíra sem
henta sérstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður. Þessi nýi vír hefur fengið
nafnið "SUPER ATLANTIC".
ehf
Utgerðarvörur
Hvaleyrarbraut 39, 220 Hafnarfjörður s. 544-2245
aA
180 9002^
Þar sem þjónusta og þekking mætast
Alfa Laval hálfsoðnu plötuvarmaskiptarnir eru fyrirferðarminnstu, léttustu og afkastamestu kælitækin
á markaðnum. Frábær tæki fyrir gufun og þéttingu í kælikerfum um borð í fiskiskipum og öðrum skipum.
Spara pláss
Mfa Laval háifsoðnir plötuvarmaskiptar spara pláss og þyngd, mtnnka magn kælimiðils
og slærð pressu. loka. röra - og þar al leiðandi stolnkostnað.
Sterk hönnun
Hállsoðni plötuvarmaskiptirinn þolir vel sriðggar hitabreytingar og það er enginn
titringur, vegna þess hve stntt er á milli festinga. Á hálfsoðna plötuvarmaskiptinum
eru engar suður undir þrýstiálagi. Vegna snúningshreyfingar (gegnumstreyminu er
lítil hælla á að frjósi á kerfinu. Samt sem áður, ef það gerist, er hönnunin miðuð við
aö varmaskiptírinn þoli frostþensluna og verði ekki lyrir skemmdum.
Einstakar plötur
Alla Laval hálfsoönu plötuvarmaskíptarnir eru hannaðir til þess að svara þörfum
þeirra sem nola ammóníak og nýja HCFC og HFC kaelimiðla bæði I fæöikerlum og
þurrgufunarkerfum. Einstök lögim platnanna hámarkar varmaskipti með því að auka
flæöi kælimiðilsins, bæði um alla plötuna og umallan plötustaflann.
5INDRI Sindri • Klettagörðum 12 • 104 Reykjavík • Sími 575 0000 • Fax 575 0010 • www.sindri.is
Avinningur
• Fyrirferðarlítil hönnun, hálfsoðni
plötuvarmaskiptirinn þarl 20-50% minna pláss
heldur en jaln afkastamikill röravamaskiptir.
• Lítið neyslurúmmál.
• Minni viöhaldskostnaður vegna minna
varmaski ptayfi rborðs.
• Smíðaður úr eíningum, þess vegna er auðveli
að breyla síðar og aðlaga nýjum þörfum.
• Mikið rekstraröryggi, langur keyrslulimi.