Fiskifréttir - 02.05.2003, Page 10
10
FISKIFRETTIR 2. maí 2003
ENDURSMIÐI
Snæfugl SU - fyrsti
brunnbátur íslendinga:
Fullkomiö skip
fyrir flutning
og meöhöndlun
á lifandi fiski
Fyrsti brunnbáturinn sem Islendingar eignast, Snæfugl SU, kom til
hafnar í Neskaupstað laugardaginn 19. apríl sl. eftir miklar breyting-
ar í Nauta skipasmíðastöðinni í Gdynja í Póllandi en verktaki í skipa-
smíðastöðinni er Nordship. Snæfugl SU hét áður Guðmundur Ólafur
ÓF. Hann kom nýsmíðaður til Islands frá Noregi árið 1966 og hét þá
Börkur NK og var í eigu Síldarvinnslunnar hf. Kostnaður við breyt-
ingarnar og kaup á skipinu námu um 230 milljónum króna.
„Ferðin heim gekk mjög vel.
Skipið lét vel að stjóm. Það er
greinilega fínt sjóskip og ég vænti
góðs af því í framtíðinni," sagði
Arni Ingólfsson, skipstjóri á Snæ-
fugli SU, í samtali við Fiskifréttir
en hann sigldi skipinu heim. Snæ-
fugl SU er nú í höfn í Neskaupstað
og fer hann væntanlega í sína fyrstu
ferð innan skamms. Brunnbátur er
sérútbúið skip til flutnings á Iifandi
fiski. Fiskurinn er fluttur í sjófyllt-
um tönkum eða brunnum og kemur
nafnið þaðan. Stofnað hefur verið
sérstakt félag um rekstur skipsins,
Seley ehf. Eigendur þess eru Síld-
arvinnslan hf. (40%), Samherji hf.
(30%) og Garðar Guðmundsson hf.
(30%). Síldarvinnslan hf. leigir
skipið og áframleigir það í ýmis
verkefni.
Tveir 300 rúmmetra
þrýstitankar
Guðmundur Ólafur ÓF var hefð-
bundið loðnuskip og meginbreyt-
ingin sem gerð var á skipinu í Pól-
landi er sú að sett voru tvö ný lest-
arhólf eða þrýstitankar hlið við hlið
í skipið og eru þeir hvor um sig 300
rúmmetrar að stærð. Ami sagði að
allt framskipið hefði einnig verið
tekið í gegn, einangrað og málað.
Þar var meðal annars sett niður ný
og öflug 610 kílówatta Ijósavél frá
Mitsubishi til að knýja tækjabúnað.
I framskipinu eru einnig þrýsti-
loftsdælur fyrir lestar og vakúmt-
anka en tveir 3.200 lítra vakúmt-
ankar eru á dekkinu. Aftan við lest-
arnar, milli þeirra og vélarrúms, var
komið fyrir tveim skrúfudælum
Snæfugl SU á siglingu frá skipasmíðastöðinni í Póllandi. (Myndir: Freysteinn Bjarnason).
fyrir tíðnibreytingar fyrir hraða-
stýringar mótora, RAF&TÆKNI
ehf. með aðalrofa og annan raf-
magnsbúnað, Landvélar hf. og Fer-
rozink ehf. með efni í vökva- og
hringrásarbúnað. Loks var skipið
málað með Hempels málningu frá
Slippfélaginu hf.
Dæling byggist á
þrýstingsmun
Lestamar eru sótthreinsaðar með
ósoni en búnaður til þess kemur frá
Ozotech Marine. Arni sagði að laxi
og seiðum væri dælt til og frá borði
og byggist flæði þeirra á þrýstings-
mun í lestum. Lestamar eru fullar
af sjó þegar dæling inn í þær hefst.
Tankamir em síðan tæmdir. Við
það myndast undirþrýstingur og
fiskur og sjór sogast þá inn í loft-
tæmt rúmið. Þegar lestarnar eru
losaðar er lofti og sjó hins vegar
dælt inn í þær. Við það myndast yf-
irþrýstingur og fiskurinn þrýstist út.
Til að sjórinn verði sem ferskastur
þegar skipið er á siglingu með fisk-
inn er nýr sjór látinn streyma
stöðugt í gegnum lestarnar. Þrír sjó-
ventlar eru framan við hvora lest
sem taka inn sjó og þrfr ventlar að
aftan sem hleypa sjónum út. Sjór-
inn í lestunum er þannig endurnýj-
aður 6 sinnum á klukkustund. Ef
siglt er í gegnum svæði þar sem
sjór þykir ekki nógu góður er ventl-
unum lokað og hringrásardælur
sem dæla 2.000 rúmmetrum á
klukkustund og hringrásardælur
sem geta dælt 1.600 rúmmetrum á
klukkustund.
Teljarar frá Vaka
Nýr kraftmikill 23 tonna MKG
krani frá Framtaki ehf. var settur í
skipið en 32 tonna krani, sem var
fyrir í skipinu, var færður til þannig
að í því eru nú tveir kranar. A dekk-
inu eru tveir fiskteljarar. Annar
þeirra telur sláturfiskinn og vigtar
hann áður en hann fer í lestarnar.
Hinn teljarinn, sem er frá Vaka-
DNG, telur seiðin þegar þeim er
dælt frá borði. Seiðateljarinn getur
talið allt að 200.000 seiði á klukku-
stund og beitir sérstakri mynd-
greiningartækni sem Vaki hefur
þróað. Það er sama tæknin og not-
uð er í teljurum sem telja gesti í
verslunum og stórmörkuðum eins
og Smáralind. Þá er á dekkinu
flokkari við dælurnar sem flokkar
fiskinn í 3 stærðarflokka. Við
flokkunarbúnaðinn eru jafnframt
tveir teljarar frá Vaka-DNG.
Fjöldi íslenskra fyrir-
tækja kom við sögu
Teiknistofa KGÞ á Akureyri ann-
aðist hönnun breytinganna en aðal-
verktakinn og umsjónarmaður með
verkefninu er CFLOW Fish Hand-
ling AS í Noregi. Þeir útveguðu
efni og búnað og höfðu umsjón
með útfærslum á honum en Snæ-
fugl SU er nú nútímalegt og mjög
fullkomið skip fyrir flutning og
meðhöndlun á lifandi fiski. Um-
boðsmaður Nordship í Póllandi eru
B.P. Skip hf. Önnur íslensk fyrir-
tæki eru komu hér við sögu eru
Rekstrarvörur ehf. en frá þeim kom
allur háþrýsti- og hreinsunarbúnað-
ur, Iskraft ehf. með hönnun og
teikningar á rafbúnaði og búnað
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju
með nýjan og glæsilegan brunnbát.
Umboðsaðili á Islandi
568 9030
CFLOW FISH HANDLING AS - Org. nr: N0 984 537 786 MVA
Address: Holsneset 23, N-6030 Langevág, Norway
Telephone: (+47) 70 19 59 00 - Telefax: (+47) 70 19 59 01
E-mail: office@cflow.no - Web: www.cflow.no
Bank account: 5353.05.50040 - SWIFT: DNBAN0BBAES
Sala og þjónusta á
Reykköfunartækjum
Slökkvitækjum
• Brunaviðvörunar-
og slökkvikerfum
• Köfunarbúnaður
þjónusta
Slökkvitækja-
Prófun ehf
Sími 564 1433