Fiskifréttir - 02.05.2003, Page 11
FISKIFRETTIR 2. maí 2003
11
TexthKS ■ FRETTIR
Dælubúnaður fyrir lestar.
settar í gang um leið og súrefni er
bætt í sjóinn. Tæki til súrefnisfram-
leiðslu eru um borð.
Getur flutt um
95 tonn í ferð
Snæfugl SU verður leigður út til
fiskflutninga. Skipið getur flutt um
95 tonn af sláturfiski í hverri ferð.
I seiðaflutningum tekur skipið um
45 tonn af 500 gramma fiski en að-
eins 25 tonn af 100 gramma seið-
um. Arni sagði að aðalverkefni
Snæfugls SU verði annars vegar
að flytja laxaseiði frá seiðaeldis-
stöð Silfurstjörnunnar í Öxarfirði.
frá Kópaskeri að sjókvíum Sæsilf-
urs í Mjóafirði og hins vegar eldis-
lax frá Mjóafirði til Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað þar sem lax-
inum er slátrað og hann unninn til
útflutnings. Þá er einnig hægt að
nota skipið við að flokka fisk og
dæla á milli sjókvía. Meðal ann-
arra verkefna í framtíðinni má
nefna að gert ráð fyrir að skipið
verði leigt til flutninga á seiðum
og sláturfiski fyrir laxeldi Sam-
herja á Reyðarfirði. Þá getur skip-
ið einnig flutt og flokkað þorsk
fyrir þorskeldisfyrirtæki.
Séð yfir þilfarið á Snæfugli SU. Fyrir miðju sjást lestaropin á þrýsti-
lestunuin og þar fyrir frarnan er teljari og flokkari. Neðst á myndinni
er búnaður sem tengist vakúmtönkunum.
ESB:
Fiskimjölsbanninu brátt aflétt?
Nú hafa skapast forsendur
fyrir því að Evrópusainbandið
aflétti banni við því að notað sé
fískimjöl í fóður jórturdýra, en
bann þetta var sett á fyrir
nokkrum árum eftir að kúarið-
an kom upp.
Ekki var talið að fiskimjöl
ætti sök á veikinni heldur kjöt-
og beinamjöl, en þar sem erfitt
þótti að hafa eftirlit með því að
þessu væri ekki ruglað saman
við fóðurgerð varð niðurstaðan
sú að banna hvort tveggja. Nú
hefur verið fundin upp fljótvirk,
ódýr og tiltölulega einföld að-
ferð til þess að greina fiskimjöl
frá kjöt- og beinamjöli. Aðferðin
hefur verið prófuð á rannsókna-
stofnum innan ESB sem eru við-
urkenndar af sambandinu og þar
af leiðandi virðist ekkert því til
fyrirstöðu að leyfa sölu á fiski-
mjöli í jórturdýrafóður á ný. Frá
því að bannið tók gildi hafa
nautgripaframleiðendur notað
jurtafóður í stað fiskimjöls en það
er ekki talið eins heppilegt.
Að sögn Jóns Reynis Magnús-
sonar framkvæmdastjóra Félags ís-
lenskra fiskmjölsframleiðenda hef-
ur fiskimjölsbannið ekki haft mikil
áhrif á sölu fiskimjöls frá íslandi
enda hefur mjölið farið í sívax-
andi mæli til fiskeldis samhliða
auknu eldi í heiminum. Eigi að
síður yrði það jákvætt fyrir þenn-
an markað ef banninu yrði aflétt
og eftirspurnin þar með aukin.
Mjölsölubann ESB hefur ekki haft mikil áhrif á fískimjöl frá íslandi
enda hefur mjölið farið í sívaxandi mæli til fískeldis.
FRAMTAK
VELA- OG SKIPAÞJONUSTA
COO bléHUSTA
vecur þungt Drangahrauni l-lb Hafnarfjörður
Sími: 565 2556 • Fax: 555 6035
Netfang: info@framtak.is • http://www.framtak.is
Snæfugl SU-20
i
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju
með nýjan og glæsilegan brunnbát
Yfir 100 MKG kranar
seldir á íslandi
Alltaf fjölgar krönunum
frá MKG m FRAMTAK
• Þilfarskranar
• Bryggjukranar
• Bílkranar
/ilfGl
%
P'4